Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.07.1944, Blaðsíða 7

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.07.1944, Blaðsíða 7
T I M A R I T V. F. L 1 í) 1 1 21 stæðukenndai'. Enda liefir raunin orðið sú, að liðin eru nú 7 ár án jiess að Sildarverksmiðjur ríkisins hafi séð sóma sinn i því að lialda áfram þvi verki, sem hafið var með svo glæsilégum árangri. Hins vegai' er nú svo að sjá, að jjessi 7 ára náms- ferill herra Jóns Gunnarssonar liafi þó ekki liðið til einskis. N'irðist herra Jón Gunnarssori nú gugnaður á andófinu og farinn að slá undan á bæði horð. Mun jafnvel hafa staðið lil að framkvæma kælingu í sum- ar, ef ekki hefðu fundizt ráð til þess að fresta aðgerð- um enn um sinn. Þessu til sönnunar má m. a. nefna, að nú fyrir skömmu leitaði stjórn verksmiðjanna lil mín eftir skriflegu samþykki um það, að hún mætli fram- kvæma kælingu á bræðslusíld án minnar íhlutunar og óskaði eins konar afsalshréfs fyrir hugmvndinni, sem eg sótti um einkaleyfi á árið 1!)Ö7 með samþ. þáv. verksmiðjustjórnar. En þar sem framkvæmdarstjór- inn vildi ekki fara fram á þetta afsal skriflega varð ekki af neinu samkomulagi, og geri eg ráð fyrir að nú eigi að kenna minum lílilnnUlegu persónulegu hags- nuinum uin það, að ekki sé liægt að kæla síld i sumar eða á næstunni! Þegar það er athugað, að snjór liefir verið í lmés- hætur á Siglufirði allt fram að þessu og möguleikar fyrir hendi til að liandsama hann á ódýran liátt, en hins vegar lílvlegt, að taka hans gæti aukið móttöku- getu verksmiðjanna að miklum mun og skapað þjóð- inni mikil verðmæti, þá virðist það illa farið, að herra Jón Gunnarsson skuli ekki geta hrotið odd af oflæti sínu. II. Ilér skal nú vikið að helztu niðurstöðum nefndar þeirrar, er rannsakað hefir aðgerðir síldarverk- smiðjustjórans og sljórnarinnar og tekin upp orð- rétt ummæli nefndarinnar, l)ls. 12!) -134. í nefndinni sátu þeir Trausti Ólafsson efnafræðingur, Loftur Bjarnason útgerðarmaður og Haraldur Guðinurids- son útgerðarmaðui'. í álitinu segii' svo: „Sildargeymslit i keelil>rú. Með tilliti til hinna stórkostlegu tafa við móttöku sild- arinnar, sem oftlega hafa valdið miklu veiðitapi, hefir á undanförnum árum verið nokkuð um það rætt, að byggja vrði stærri þrær til sildárgeymslu. Flestum hefir þó ver- ið ljóst, að það væri hrein og bein neyðarráðstöfun að salia síldina til langrar geymslu. Fyrsta ríkisverksmiðjan nevddist meðal annars til að gera þetta, en útkoman var bágborin. Mjölið Iítt hæl'l til skepnufóðurs, vegna seltu og stækju, lýsið súrt, og afurðirnar minni en ella, og sildin miklu verri til vinnslu, svo að afköst verksmiðj- unnar urðu lítil og þar af leiðandi vinnslan dýr. A þennan liátt hlaut að lækka verulega verð það, sem hægt var að greiða fyrir sildina. Það liefir því ávallt verið mikilsvert viðfangsefni, á hvern hátt liægt væri að geyma síld lítt skemmda í að minnsta kosti 1— 2 mánuði, svo að verksmiðjurnar gætu tekið til að vinna úr slikri síld, þegar veiði þryli um tíma eða væri lokið að fullu. í sambandi við greinargerð um efnatap við hina venju- legu þróargeymslu sildarinnar, minnist Trausti Ólafsson á það í erindi, sem birtist i Tímariti V.F.Í., 2. h. 1936, að elnatapið niundi minnka, ef liæg't væri að fá betri aðferð en söltunina til ])ess að verja sildina skemmdum og nefnir t. d. að geyma liana við lægra hitastig, en tíðkazt hafði. Segir hann meðal annars: „En hvort hægt væri að koma við beinni kælingu svo, að það borgaði sig, skal ósagt látið að svo stöddu.“ Sumarið 1937 gerði (iísli Halldórsson, sem þá var fram- kvæmdastjóri S.R., tilraun með geymslu bræðslusíldar, á þann hátt að kæla hana með salti og snjó. Síldin var tjeymd uni mánaÖartima otj reyndist þá át/ietlegu fallin til vinnslu, svo að fnll afköst náðust, auk þess sem mjöl otj olía reyndist ijóð vara. í hvert mál sildar (135 kg) var notað um 7.4 kg. salt og 21 kg af snjó. Telur (i. H. að salt og snjór hafi þá kost- að um 65 aura á mál. Eii þró sú, sem byggð hafði verið í þessu augnamiði, varð óeðlilega dýr af ýmsum ástæðum, og er ekki þörl' á, að það sé rakið hér. En meðal annars af því, hve þróin reyndist dýr, munu margir hafa talið þessa tilraun dauða- dæmda sem framtiðarlausn. Þvi hefir einnig verið hald- ið fram, að el' þessi aðferð ætti að koma að gagni, þvrfti svo mikið þróarpláss, að þrærnar yrðu að byggjast langt frá verksmiðjúnum, en af því hlytist svo mikill kostnað- ur, að aðferðin kæmi, meðal annars af því, ekki til greina. Nefndin vill i þessu sambandi benda á eftirfarandi: 1. Það virðist ekki rétt að leggja til grundvallar i þessu máli þróarverð, sem vitað er að varð óþarflega hátt, meðal annars vegna þess, hve mikla áherzlu þurfti að leggja á að hraða byggingunni, sökum nauins tima. 2. Jafnvel þótt þessi þróargerð hefði ekki, að öllu leyti, revnst hentug, verður að teljast óverjandi, að ekki skvldi þá gerð tilraun með annað fvrirkomulag. 3. l'm pláss fyrir þrær er það að segja, að það er víða litlum takmörkum bundið, þótt ef til vill sé ekki hægt um vik á Siglufirði.*) 4. Það virðist ástæðulaust að miða slíkar þrær við það allra mesta, sem liugsanlegt er að ekki sé hægt að taka á móti á venjulegan hátt í mestu sildarárum. Aðferðin gæti komið að miklum notum, þó ekki væri um svo stórfelldar framkvæmdir að ræða. Tilraun sú, sem gerð vai sumarið 1937 með kælingu bræðslusildar, náði ekki lengra en það, að kæld voru rúmlega 1000 mál i svo nefndri forþró kæliþróarinnar, og var hún geymd þar um mánaðartíma. Ællunin var sú að blanda salti og snjó í sildina í öðrum helming þessarar forþróar, meðan flutt væri úr hinum helmingnum í geymsluþrærnar, sem voru á tveimur hæðum í aðalþróar- byggingunni. Skyldi þessi flutningur fara fram, þegar er blönduninni væri lokið. Þessi flutningur fór aldrei fram af þeirri ástæðu, að þegar tilraunin var gerð, höfðu geymsluþrærnar þegar verið fylltar af síld á venjulegan hátt. Orsökin til þessa virðist hafa verið sú, að ekki hafi þótt verjandi að nota ekki nefnt þróarpláss, þegar allar aðrar þrær voru fullar af síld, og skipin biðu í hrönnum eftir losun. Hefir þá sennilega verið gert ráð fyrir, að tími yrði til þess að vinna úr „kæliþrónni", er hrotunni létti, svo að gera mætti þá fyrirhugaða kælitilraun i full- *) Þetta er auðveldlega hægt á Siglufirði samkv. athug- un, er eg hefi gert. — G. H.

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.