Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.06.1949, Page 10

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.06.1949, Page 10
36 TÍMARIT V.P.I. 1949 hóla þá, er fallið hafa þar sem nú stendur bærinn að Hóli. Er innar dregur, eykst halli landsins nokkuð og malareyrar byrja nú meðfram ánni. Malarlagið er þó fyrst, eins og áður segir, mjög þunnt, en fer síð- an ört hækkandi inn dalsbotninn. Áðurnefndir skriðuhólar við Hólstún virðast hafa fallið í tvennu lagi með eilítið mismunandi stefnu. Þeir fyrri stefna lítið eitt utar, og sem útvörður frá þeim mun vera Álfhóll, er stendur einn sér niður undir sjó. Þessir hólar hafa á sínum tíma fallið í sjó fram og flætt yfir þá á allstóru svæði. Þeir síðari hafa fallið þverara á f jörðinn og nær lokað þvert yfir. Ekki verður sagt að svo komnu máli hvort þeir hafa fallið í sjó fram og þá myndað nokkurt lón innan við sig eður eigi. Hæð sandsins innan við hólana og það, að ekki verður vart við leirlag milli sands og malar svo áberandi sé, bendir þó eindregið til, að skriðuhólarnir hafi fallið á leiru og lónmyndun því lítil eða engin. IJt fyrir þrengslin við hólana hefur Fjarðará ekki borið möl eða sand svo verulegu nemi, og hefur því lítið eða ekki lagt til uppfyllingar þar fyrir utan, eða í leiruna í núverandi fjarðarbotni, annað en þann leir, sem hún hlýtur að hafa borið til sjávar. Leirmagnið í leirunni er all mismunandi, en mun þó að mestu liggja á milli 3 til 8%. Þetta magn getur verið borið fram af Fjarðará, Skútuá og öðrum þeim lækjum, sem í fjarðarbotninn falla. Af þessu sést, að-fjarðar- svæðið innan Sigluf jarðareyrar hefur áður verið all- miklu stærra en það er nú, en síðan fyllzt smám sam- an meir og meir. Lengi framan af hefur uppfyllingunni miðað mjög hægt áfram, og má ætla, að þá hafi útfallsstraum- urinn borið nær jafnmikið efni út í djúpál fjarðarins og alda og straumar báru inn með löndunum, og upp- fylling í firðinum miklu jafnari en síðar varð. Nokkuð hefur þó orðið eftir innst í firðinum, þar sem útfalls- straumurinn náði sízt til að soga það út á dýpið, og auk þess hefur framburðar árinnar gætt nokkuð fyrst um sinn. Uppfylling þessi hefur smátt og smátt hlaðizt upp í fulla hæð án verulegrar leirumyndunar, líkt og á sér stað á Borgarsandi í Skagafirði og víðar. Þannig hefur fyllt upp í dalinn og fjörðurinn sam- tímis orðið grynnri og grynnri. Leiran. Hvenær leiran fyrir alvöru hefur byrjað að mynd- ast er erfitt að segja. Ef til vill hefur það ekki skeð fyrr en á allra síðustu tímum, eftir að fjara fjarðar- botn'sins hafði því sem nær fengið núverandi lögun, og er ekki ósennilegt, að skriða sú, er féll á Ráeyri og orsakaði myndun Skútueyrar, eigi hér verulegan hlut að máli. Nú er eins og f jarðarbotninn geri tilraun til, í einu stökki, að flytja sig alllangt út á við og nú sé að myndast nýr fjarðarbotn laust utan við Skútueyri, og þaðan þvert á f jörðinn yfir að ósum Hafnarlæksins. Gamlir Siglfirðingar segja dýpi ört minnkandi á þessu svæði. Jafnvel svo mjög, að skip hafi legið þar fyrir 30 árum, sem nú er 60 til 70 cm. dýpi um fjöru. Ætti því hér að vera um að ræða 8 til 10 cm. grynningu á ári hverju. I höfninni innan við Siglufjarðareyri mun vera um 3 til 5 cm árlega grynningu að ræða, og við garð þann, er gerður hefur verið á leirunni nær ósum Hafn- arlæks, er um 5 cm hæðarmunur fyrir hvert ár, er garðurinn hefur staðið. Þó er allstrangur útfalls- straumur út með garðinum að sunnanverðu, og ber þess engar menjar, að hlaðizt hafi meira upp með garðinum að sunnan en á all breiðu svæði inn frá

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.