Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.06.1950, Blaðsíða 10

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.06.1950, Blaðsíða 10
32 TlMARIT V.F.l. 1950 * ALÞJOÐAORKUMALAKADSTEFIMAN (World Power Conference) STOFNUN ISLENZKKAR LANDSNEFNDAR. Fjórða aðalráðstefnan í London 1950. Tekið saman á skrifstofu raforkiunálastjóra fjTÍr íslenzku landsnefndina. Stofnsetning og markmið. I sambandi við brezku heimsveldissýninguna í London 1924 var haldin alþjóðaráðstefna, kölluð The First World Power Conference, sem fjallaði um rannsóknir á orku- lindum jarðarinnar og hagnýtingu þeirra. Frumkvæði að þessari ráðstefnu átti skozkur maður, Daniel Nicol Dunlop, sem gegndi löngu og rómuðu starfi í brezkum raf- magnsiðnaði. Fyrir atbeina hans var ákveðið á lokafundi ráðstefnunnar, þann 11. júlí 1924, að setja á stofn al- þjóðasamband undir nafninu The World Power Con- ference (skammstafað W.P.C.), er mynda skyldi tengsl milli hinna ýmsu greina raforkuvinnslu og eldneytis- vinnslu; milli sérfræðinga hvarvetna í heiminum; og milli verkfræðinga annarsvegar og embættismanna, vís- indamanna. og hagfræðinga hinsvegar. Nafni sambandsins hefur á islenzku verið snúið í Al- þjóðaorkumálaráðstefnan, skammstafað A.O.R. Alþjóðaorkumálaráðstefnan hefur aðalbækistöð sína í London, og Bretar hafa frá upphafi haft mestan veg og vanda af starfsemi hennar. D. N. Dunlop var for- maður framkvæmdaráðs ráðstefnunnar frá 1924 til dánar- dægurs 1935, og brezkir menn hafa gegnt því starfi síðan. 1 lögum Alþjóðaorkumálaráðstefnunnar er markmið hennar sett fram þannig: „Markmið Alþjóðaorkumálaráðstefnunnar er að at- huga, hvernig hagnýta megi orkulindir sérhvers lands til eigin þarfa og alþjóðaþarfa — með þvi: að athuga hagnýtanlegar orkulindir í hverju landi, fall- vötn, kol, olíu og aðra orkugjafa; að miðla reynslu um þróun tækni i landbúnaði, áveitu- framkvæmdum og samgöngum á landi, í lofti og á vatni; að efna til ráðstefna verkfræðinga, eldneytissérfræðinga og annarra sérfræðinga, og kunnáttumanna á sviði vísindalegra og tæknilegra rannsókna; að leita ráða þeirra aðila, er nota eldsneyti og orku, og þeirra, er starfa að framleiðslu véla og tækja til orku- vinnslu; að efna til ráðstefna um tæknilega menntun í því skyni að endurskoða kennslufyrirkomulag í ýmsum löndum og athuga leiðir til endurbóta; að ræða fjárhagsleg og þjóðhagsleg viðhorf iðnaðar, í sérhverju landi og landa á milli; að ræða um stofnun alþjóðaskrifstofu, er safni gögnum og geri skýrslur um orkulindir jarðarinnar og miðli upplýsingum í vísindum og tækni með milligöngu þar til nefndra fulltrúa í hverju landi.“ Ráðstefnur. Aðalverksvið A.O.R. hefur verið að efna til alþjóða- ráðstefna um orkumál. Ráðstefnurnar eru með tvennu móti: aðalráðstefnur (Plenary Meetings), sem fjalla almennt um hagnýtingu orkulindanna, og aukaráðstefn- ur (Secional Meetings), sem fjalla um ýms sérmál innan ramma verksmiðs A.O.R. Haldnar hafa verið fjórar aðalráðstefnur: Fyrsta Alþjóðaorkumálaráðstefnan í London 1924. Ráð- stefnan stóð yfir frá 1. til 11. júlí, og voru haldnir alls 40 fundir. Mættir voru yfir 40 fulltrúar frá 43 löndum. Önnur Alþjóðaorkumálaráðstefnan í Berlín 1930, dag- ana 15. til 25. júli. Á ráðstefnunni voru lagðar fram til umræðna 392 skýrslur og ritgerðir, sem fjölluðu um orkumálin frá öllum hliðum. Mættir voru 3.891 skrá- settir fulltrúar frá 34 löndum. l>riðja Alþjóðaorkumálaráðstcfnan í Washington 1936, dagana 7. til 12. sept. Ritgerðir voru lagðar fram um 18 mismunandi viðfangsefni, og mættir voru nálægt 3000 fulltrúar frá 54 löndum. Fjórða Alþjóðaorkumálaráðstefnan í London, dagana 10. til 15. júlí 1950. Viðfangsefni ráðstefnunnar var „Orkulindir jarðarinnar og orkuvinnsla" (World Energy Resources and Production of Power). Mættir voru 1.600 fulltrúar frá 52 löndum. Að þessari ráðstefnu verður vikið nánar hér í lokin. Aukaráðstefnur hafa verið haldnar á þeim stöðum og með þeim viðfangsefnum sem hér segir: Aukaráðstefnan í Basel 1926: Vatnsorkuvirkjanir og fljótasiglingar o. fl. EUlsneytisráðstefna í London 1928: Rekstur eldsneytis- iðnaðar, meðhöndlun og nýting eldsneytis. Aukaráðstefnan í Barcelona 1928: Bygging og rekst- ur vatnsorkuvera. Aukaráðstefnan í Tokíó 1929: Hagnýting orkulinda, skipulegur samrekstur og fjárhagsleg stjórn raforku- vera, orkuþörf til flutninga, betri nýting við orkuvinnslu. Aukaráðstefnan í Skandinavíu 1933: Orkuþörf til stór- iðju og flutninga á landi og sjó. Efnaverkfræðiráðstefna í London 1936: Fyrsta alþjóða- ráðstefnan um efnaverkfræði. Aukaráðstefnan í Vín 1938: Orkuþörf til landbúnað- ar, smáiðnaðar, heimiiisþarfa, útilýsingar og til járn- brauta. Eldsneytisráðstefna í Haag 1947: Vinnsla, dreifing og hagnýting eldsneytis og orku. Á ráðstefnunum eru ekki flutt framsöguerindi, en í

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.