Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2004, Síða 20
20 FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2004
Fókus DV
Heima í stofu að
horfa á Ómar
„Ég var bara í stofunni heima.
Það sem var eftirminnilegt var að
dagskráin var rofln og Ómar Ragn-
arsson birtist með fréttirnar. Mig
minnir að það hafi verið einhver
bíómynd í gangi. Ómar sagði mér
Hvar varstu
28. febrúar 1986?
síðar að hann hefði verið staddur í
veislu, og fengið hringingu, en
fyrstu farsímarnir voru þá komnir á
markað. Þar fékk hann að frétta frá
systur sinni sem var stödd í Svíþjóð
að Palme hafi verið myrtur. Hann
rauk svo upp á fréttastofu og fór
með fréttina í loftið, líklega á undan
kollegum sínum í Svfþjóð. Þessi
frétt fékk á mann, eins og fréttirnar
um morðið á Kennedy Bandaríkja-
forseta, dauði Bjarna Ben og gosið í
Eyjum hafði gert áður. Maður
gleymir ekkert þeim atburðum né
hvar maður var þegar maður frétti
af þeim.
En Svíar
eru dugleg-
ir í að
drepa fyrir-
menn sína.
Fyrst var
það Gústaf
III (kon-
ungur Sví-
þjóðar
1772-
1792)., svo
Olof og nú
síðast Anna
Lindh. Þeir
erueina
Norðurlandaþjóðin sem hefur
stundað þetta eitthvað. Það er
ómögulegt að segja til um hver drap
Palme. Það var mikið hatur gagn-
vart honum þó hann hafi verið vin-
sæll af mörgum. Hann var yfir-
burðamaður og hæðin þannig að
jaðraði við hroka. En morðið var
ekki endilega pólitískt. Þetta hatur
hefur einnig getað náð til vitfirrts
manns.
Það er skondið í sambandi um-
ræðu um öryggismál að það er
hæpið að við verðum fyrir árás ut-
anaðfrá eða hryðjuverkum eða ein-
hverju slíku, en þó er verið að eyða
tugum milljóna í að vernda okkur
frá þessum hættum. En það er
hugsanlegt að einhver verði fyrir
árás geðveiks manns, en samt eru
vistunarmál hérna í molum. Er ekki
nú verið að loka Sogni þó þar sé yf-
irfullt? Þó eru til fyrirbyggjandi að-
gerðir til að bæta ástand geð-
sjúkra."
Forsætisráðherra Svíþjóöar og
leiðtogi Sósíal Demókrataflokksins,
OlofPalme, var drepinn í miðborg
Stokkhólms árið 1986. Flestir héldu
að slíktgæti ekkigerst á Norður-
löndunum ogfréttin kom þvísem
áfall. Lógreglan klúðraði rannsókn-
inni og morðinginn hefur aldrei
náðst, en margar samsæriskenning-
arhafa farið á kreik. Morðið á Önnu
Lindh ífyrra varsíðan annað áfall
fyrir Svía en þar virðast opinberir
starfsmenn vera í mestri hættu á
Norðurlöndum.
Vigfús Geirdal sagnfræð-
ingur
Ragnheiður Gröndal Bjartasta
vonin í islensku tónlistarlifi og
söng að auki lag ársins. . -
íslensku ÉlistarveriUaiiiin
llngu stelpurnar stálu senunni
íslensku tónlistarverðlaunin fyrir árið 2003
voru afhent við hátíðlega athöfn í Þjóðleikhúsinu
í gærkvöld. Tónlistarfólk og önnur fyrirmenni fjöl-
menntu á athöfnina sem var send út beint í Sjón-
varpinu, á Rás 2 og á Tónlist.is. Hátíðin heppnað-
ist prýðilega að þessu sinni en fjölmargir lista-
menn skemmtu og kynnarnir Eva María Jónsdótt-
ir og Gísli Marteinn Baldursson stóðu sig með
prýði.
Einungis ein verðlaun hjá Mínus
Nokkuð var um óvænt tíðindi í flokki popptón-
listar. Rokkhljómsveitinni Mínus hafði verið spáð
afar góðu gengi en þeir drengir fóru einungis
heim með ein verðlaun. Þau voru fyrir plötu árs-
ins, Halldór Laxness, og er óhætt að segja að
Mínusmenn hafi verið vel að verðlaununum
komnir.
Flestir spáðu rétt fyrir um lag ársins. Það var
valið Ást, eftir Magnús Þór Sigmundsson, texti eft-
ir Sigurð Norðdal, í flutningi Ragnheiðar Gröndal.
Óhætt er að segja að frægðarsól Ragnheiðar hafi
skinið skært á síðasta ári þrátt fyrir ungan aldur
hennar og kom það því fáum á óvart að hún var
einnig valin nýliði ársins.
önnur ung stúlka sem verið hefur afar áber-
andi síðustu misserin heitir Eivör Pálsdóttir. Þrátt
fyrir færeyskan uppruna hennar vilja margir ís-
lendingar orðið eigna sér hana enda orðin ein af
bestu söngkonum landsins. Eivör gerði sér lítið
fyrir og sló mörgum eldri og reyndari söngkonum
við þegar hún var valin söngkona ársins í gær.
Glæsilegur árangur það en stúlkan var ekki hætt
þar heldur nældi sér líka í titilinn flytjandi ársins
ásamt hljómsveit sinni, Krákunni.
Það kom nokkuð á óvart að Stefán Hilmarsson
var valinn söngvari ársins, en það breytir því ekki
að Stefán er vel að titlinum kominn, einn af okkar
bestu söngvurum. Síðustu verðlaunin í flokki
popptónlistar fóru svo til Sigur Rósar fyrir mynd-
band ársins, við fyrsta lagið af plötunni (). Leik-
stjóri myndbandsins var Floria Sigmundi.
Tómas R. aðaldjassarinn
I flokknum ýmis tónlist var hljómplata ársins
valin Óður til Ellýjar en flytjandi er söngkonan
Guðrún Gunnarsdóttir. Hljómplata ársins í
flokknum sígild tónlist var valin Brandenborgar-
konsertar eftir Jóhann Sebastían Bach í flutningi
Kammersveitar Reykjavíkur, tónverk ársins var
Konsert fyrir klarínettu og blásarasveit eftir
Tryggva M. Baldvinsson. Flytjendur: Sveinhildur
Torfadóttir og Blásarasveit Reykjavíkur, stjórn-
andi: Kjartan Óskarsson. Flytjandi ársins í sígilda
flokknum var valinn Sinfóníuhljómsveit íslands
og konsertmeistararnir Guðný Guðmundsdóttir
og Sigrún Eðvaldsdóttir.
Plata ársins í flokki djasstónlistar var valin
Havana eftir Tómas R. Einarsson og kom það
fáum á óvart. Björn Thoroddsen var útnefndur
flytjandi ársins og lag ársins var valið Bros eftir
Tómas R. Einarsson.
Tómas R.
Einarsson
Adcilmaður-
inn i djass-
heiminum
átti bæði
plotu og
lag ársins.
íslenska óperan tekur aftur til starfa
Sjálfsmorðshetja
Sýningar eru aftur að hefjast á
óperunni Werther eftir Jules
Massenet. Hún var fyrst sett á svið
árið 1887, en var sýnd í fyrsta sinn
hérlendis seint á síðasta ári í ís-
lensku óperunni. Tvær sýningar eru
eftir, laugardagana 17. og 24 janúar.
Óperan er byggð á skáldsögu
Goethes, Raunir Werthers unga,
sem kom út rúmum hundrað árum
áður og hafði mikil áhrif á róman-
tíkera síns tíma. Bóhemar um alla
Evrópu kepptust um að klæða sig
eins og sögupersónan og gengu í
sumum tilfellum jafnvel svo langt
að fremja sjálfsmorð að fyrirmynd
hans. Má þannig segja að hann
hafi verið nokkurskonar Kurt
Cobain sinnar kynslóðar. í stað rif-
inna gallabuxna og ógirtra skyrtna
klæddust menn bláum kjólfrökk-
um og gulum vestum að fyrirmynd
goðsins, og í stað þunglyndisþjóð-
laga eins og „AIl Apologies" og
„Smells Like Teen Spirit" skrifuðu
menn ástarbréf til kvenna sem
vildu ekkert með þá hafa En helsti
munurinn var þó sá að Werther
ungi var einungis til í skáldsögu.
Werther var þó engu síður tals-
maður sinnar kynslóðar og fann til
dæmis upp hugtakið Weltschmerz,
sem enn þann dag í dag er notað til
að lýsa hugarástandi djúpþenkj-
18. aldar
andi og dapurra manna. Þetta er
þó í fyrsta sinn sem óperan er sett
upp hérlendis en sýningin er stytt
útgáfa af verkinu. Hér þarf Werther
ekki að þjást nema í rétt rúman
einn og hálfan tíma sem er talsvert
styttri tími en raunir hans standa
yfirleitt yfir.
Fyrir þá sem vilja óperur í litlum
skömmtum má benda á að hádeg-
isóperan er einnig að fara að hefjast
aftur en fyrsta sýning verður þriðju-
daginn 20. janúar. Þá munu Hulda
Björk Sigurðardóttir, Ólafur Kjartan
Sigurðarson og Kurt Kopecky flytja
lög eftir George Gershwin undir yfir-
skriftinni Bla bla bla.
Werther Sýningar hefjast aftur á laugardaginn.