Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2004, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2004, Blaðsíða 22
22 FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2004 Sport DV v Fjórir leikirfram að EM í Slóveníu íslenska landsliðið í handbolta er farið af landi brott en á engu að síður eftir að spila l’jóra leiki þar til keppni á Evrópumótinu í Slóveníu hefst. Liðið tekur þátt í fjögurra landa móti í Danmörku og Svíþjóð, leikur einn leik að auki við Dani og fer síðan til Slóveníu þriðjudaginn 20. janúar. í dag spilar það við Dani í Farum-höllinni klukkan 19, leikur gegn • Svíum í Malmö á morgun klukkan 20 og að lokum við Egypta í Farum á laugardaginn klukkan 13. Liðið leikur síðan æfmgaleik við Dani á mánudaginn í Bröndby og það er síðasti leikurinn áður en átökin hefjast í Slóveníu. íslenska úrvalsdeildin hefst 6. febrúar Úrvalsdeild RE/MAX- deildarinnar í handbolta hefst 6. febrúar með fjórum leikjum en ísienski karla- handboitinn er í hléi meðan á Evrópumótinu í Slóveníu stendur. 6. febrúar mætast Stjarnan-KA í Garðabæ, Fram-ÍR í Framhúsinu, Haukar-HK á Ásvöllum og Valur-Grótta/KR í Valsheimilinu. 1. deildin hefst degi fyrr en þar spila hin liðin sjö sem komust ekki í úrvalsdeildina að þessu sinni. Upp um tvö sæti hjá FIFA FIFA hefur gefið út fyrsta styrkleikalista sinn á nýju ári og íslenska knattspyrnu- landsliðið fer upp um tvö sæti að þessu sinni, í það 56. Lítið er um breytingar á listanum og Brasilíu- menn, sem eru í efsta sætinu, hafa sem fyrr gott forskot á næstu lið, Frakkland og Spán. Engin breyting er hjá 46 efstu þjóðunum á listanum. Breiddin er íslenska landsliðið í handknattleik hélt af landi brott í gær. Stefnan var tekin á Kaupmannahöfn þar sem íslenska liðið tekur þátt í æfingamóti með Dönum, Svíum og Egyptum. Að því loknum leikur það aukaæfingaleik við Dani áður en flogið verður til Slóveníu. DV Sport náði í skottið á uppteknum þjálfara landsliðsins, Guðmundi Guðmundssyni, í Köben í gær og spurði hann út í stöðuna, áherslur í næstu leikjum og fleira. „Það er ekkert farið að reyna á stöðuna á þeim Sigfúsi Sigurðssyni og Degi Sigurðssyni. Við förum á æflngu í kvöld [á morgun, innsk. blm.] og ég veit ekki hvenær Sigfús verður nákvæmlega klár en það er ekki líklegt að hann verði með á æfmgunni í kvöld,“ sagði Guðmundur. Talað hefur verið um að Sigfús sé með brjósklos í baki og ef það væri raunin mun hann ekki verða í miklu standi til þess að leika á EM. Guðmundur segir að Sigfús sé ekki með brjósklos. Sigfús ekki með brjósklos „Nei, hann er með vísi eða vott af brjósklosi en annars er ekki rétt að ég sé mikið að greina hann. Það væri réttast að slík greining kæmi frá lækni landsliðsins. Ég á eftir að ræða mál Sigfúsar við lækninn og í framhaldinu tökum við ákvörðun um það hvenær við getum sett hann af stað aftur. Hvað Dag Sigurðsson varðar er hann að koma til og hann verður með á æfingunni," sagði Guðmundur. Fleiri menn eiga við smávægileg meiðsl að stríða. Snorri Steinn Guðjónsson tognaði lítillega á æfingu fyrr í vikunni en það á ekki að há honum, að sögn Guðmundar. Reynir Þór Reynisson hefur verið að glíma við meiðsi í baki en hann er orðinn fullfrískur og klár í slaginn. Áhersla á vörnina Landsliðið lék þrjá æfingaleiki við Sviss um helgina, eins og flestum ætti að vera kunnugt. Sá fyrsti tapaðist illa en næstu tveir voru miklu betri og unnust næsta örugglega. Guðmundur var með nokkrar áherslubreytingar á leik liðsins í þessum leikjum en var hann sáttur við hvernig þær komu út? „Þetta var ágætt. Fyrsti leikurinn var náttúrlega mjög slæmur en það var gott að fá svona áminningu strax. Við lærðum af þeim leik og kláruðum hina vel, sem ég var mjög sáttur við. Það verða litlar áherslubreytingar í þessum leikjum hérna í Danmörku. Aðaláherslan er sem fyrr á vörnina en við þurfum að leggja enn frekari áherslu á að þétta hana núna þar sem við getum ekki slegið þvf föstu að Sigfús geti beitt sér að fullu," sagði Guðmundur og bætti við að sóknin yrði einnig frnpússuð. Erfitt val Eftir leikina gegn Sviss var hópurinn skorinn niður um fjóra leikmenn og fóru því 18 leikmenn með til Danmerkur í gær. Það val kom nokkuð á óvart enda var fastlega búist við að Guðmundur myndi velja endanlegan 16 manna hóp á mánudag. „Það var eiginlega óhjákvæmilegt að hafa 18 leikmenn af því að£ við erum með meidda menn. Þeirra síðasta prófraun verður í þessum leikjum næstu daga og eftir það verð ég að velja lokahópinn," sagði Guðmundur en það vakti nokkra athygli að hann skyldi ekki velja Heiðmar Felixson í 18 manna hópinn. í staðinn tók hann hinn unga Haukamann, Ásgeir Örn Hallgrímsson. Hugsaði mikið „Því er ekki að neita að valið var geysilega erfitt að þessu sinni og ég þurfti að hugsa mig lengi um áður en ég tók ákvörðun. Sérstaklega var valið kannski erfitt á milli þeirra Heiðmars ogÁsgeirs. Báðir hafa sína plúsa og mínusa, eins og t.d. að annar er eldri og hinn yngri. En það er í þessu eins og öðru að það verður að taka ákvörðun og það er í mínum höndum. Ég kaus að taka Ásgeir inn að þessu sinni og ég tel það hafa verið rétta ákvörðun og verð að standa eða falla með henni." Mikil breidd Mikið hefur verið talað um það undanfarið að breiddin í íslenskum handbolta hafi sjaldan verið eins mikil og hún er núna og því sé það ánægjulegt erfiði fyrir Guðmund að velja í hópinn að þessu sinni. Upprunalegi 28 manna hópurinn sem Guðmundur valdi var mjög sterkur og það var síður en svo auðvelt að velja 16-leikmenn úr honum. Fyrir utan þennan 28 manna hóp er síðan fjöldi efnilegra ieikmanna sem banka á dyrnar og bíða eftir sínu tækifæri. Guðmundur segir að þessi breidd í landsliðinu sé engin tilviljun. „Það er svo sannarlega engin tilviljun að þessi breidd er komin í íslenskan handknattieik því það hefur verið unnið markvisst að því undanfarin ár að stækka hópinn. Allt frá því ég tók við landsliðinu hef ég haft það að reglu að taka inn í hópinn unga og efnilega leikmenn svo þeir fengju smjörþefinn af því hvað það er að vera í landsliðinu. Það er svo að sýna sig núna að þessir strákar eru að verða klárir í slaginn og það sýnir sig að þessi stefna hefur borgað sig hjá mér,“ sagði Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handknattleik. henry@dv.is „Það ersvo sannar- lega engin tilviljun að þessi breidd er komin í íslenskan hand- knattleik því það hefur verið unnið markvisst að því undanfarin ár að stækka hópirin." Staðreynd um strákana okkar Rúnarvarði níu skot gegn Sviss Rúnar Sigtryggsson leikur mikilvægt hlutverk fyrir íslenska landsliðið enda miðpunktur varnarinnar sem á að leggja grunninn að góðum árangri liðsins. Rúnar stóð vaktina vel í leikjunum gegn Sviss og vörnin gekk mjög vel í seinni leikjunum tveimur. Þegar upp var staðið hafði Rúnar varið níu skot frá svissnesku skyttunum, þar af sjö í seinni leikjunum tveimur. Sjö leikmenn íslenska liðsins náðu að verja skot; Jaliesky Garcia varði næstmest, eða fimm, og Gunnar Berg Viktorsson tók tvö. ooj@dv.is Varði níu skot í vörninni Rúnar Sigtryggsson stóð vatkina vet í vörninni gegn Sviss og varði meðal annars níu skot frá svissnesku skyttunum i leikjunum þremur. Staðreynd um strákana okkar Vinstri vængurinn var mjög veikur íslensku skytturnar fundu sig ekki í leikjunum gegn Sviss og íslenska landsliðið nýtti aðeins 17 af 63 langskotum sínum (27%) í leikjunum þremur, þar af aðeins 5 af 31 í íyrsta leiknum (16%). Þegar skotnýtingin af níu metrunum er skoðuð eftir leik- stöðum kemur í ljós að við fáum mjög lítið frá vinstri vængnum í þessum þremur leikjum - aðeins 3 mörk samtals og 11% skotnýtingu. Skotnýtingin er betri hjá hægri skyttunum, með Ólafs Stefánsson í broddi fylkingar, en best hjá leik- stjórnendunum. Snorri Steinn Guðjónsson nýtti langskot sín 76%. LANGSKOT GEGN SVISS Vinstri skyttur (11%) Jaliesky Garcia 16/3 Gunnar Berg Viktorsson 3/0 Patrekur Jóhannesson 7/0 Samtals 26/3 Leikstjórnendur (50%) Snorri Steinn Guðjónsson 7/5 Ragnar Óskarsson 7/2 Samtals 14/7 Hægri skyttur (30%) Ólafur Stefánsson 14/5 Ásgeir Örn Hallgrímsson 4/1 Heiðmar Felixson 2/0 Samtals 20/6 Hornamenn (0%) Logi Geirsson 2/0 GuðjónValurSigurðsson 1/0 Samtals 3/0 X

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.