Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2004, Blaðsíða 29
DV Fókus
r
FIMMTUDAGUR 15.JANÚAR 2004 29
Ragnheiður Guðfinna Guðnadóttir, fyrrum fegurðardrottning íslands, er á leiðinni
í sjónvarpið. Hún er að fara af stað með þátt á PoppTíví þar sem hún ætlar að
fjalla um allt milli himins og jarðar sem varðar fólk á aldrinum 13-19 ára.
Upprennandi
stjama Ragnheiður
lætur sérekki nægja
að vera fegurðar-
drottning heldur er
hún á leiðinni að
verða sjónvarps-
stjarna, enda hörku-
kona þarna á ferð.
„Við erum ekki alveg búin að
móta þáttinn ennþá, en erum að
vinna því,“ segir Ragnheiður Guð-
finna Guðnadóttir, íyrrum fegurðar-
drottning í samtali við DV. Á næst-
unni hefjast sýningar á nýjum sjón-
varpsþætti á Popptíví sem Ragn-
heiður stjórnar og er þetta frumraun
hennar í sjónvarpi.
„Mér flnnst mjög spennandi að
vera að fara í sjónvarpið og gaman
þegar manni býðst tækifæri til þess.
Ég get ekki sagt að ég hafl mikið vilj-
að vera í sjónvarpinu og sviðsljósinu
og í raun aldrei hugsað mér að fara
út í eitthvað sem tengist sjónvarpinu
fyrr en núna,“ heldur hún áfram.
Sjónvarp, af hverju?
Ragnheiður vinnur að nýja þætt-
inum ásamt framleiðandanum
Halldóri Kolbeins, sem meðal ann-
ars hefur séð um Lúkkið á Popptíví.
Hún segist hafa tekið sér langan
umhugsunarfrest áður en hún sló
til.
„Þetta er samt búið að vera mjög
skemmtilegt. Sérstaklega þar sem ég
kem sjálf með hugmyndir að efninu
sem er í þættinum. Eg legg meginá-
herslu á að koma með eitthvað í
þáttinn sem er áhugavert og fræð-
andi fyrir ungmenni um sjálfsmynd
og allt sem tengist útliti og fleiru sem
er að gerast hverju sinni. Svo líka að
kíkja bak við tjöldin hjá hinum og
þessum og margt fleira.“
Þátturinn verður sýndur einu
sinni í viku á PoppTíví og markhóp-
urinn er ungt fólk á aldrinum 13-19
ára, stelpur og strákar, og svo eldri
hópur sem yrði þá konur þar sem
hún fjallar um málefni tengd þeim.
Ragnheiður verður með ráð tengd
„Þetta verður ábyggi-
lega voða spennandi
og það leggst bara
vel í mig að vera í
sjónvarpinu."
umhirðu húðarinnar og annað
tengt útliti og förðun. „Til að byrja
með ætla ég með þættinum að
reyna að ná til menntaskólakrakk-
anna, kíkja jafnvel í skólana og sjá
hvað er að gerast í þeim. Svo er
aldrei að vita hvort markhópurinn
breytist eftir því sem líður á en það
er mjög erfitt að segja að svo
stöddu," segir Ragnheiður og er
greinilega uppfull af skemmtileg-
um hugmyndum.
Áhorfandinn númer eitt
„Þetta verður ábyggilega voða
spennandi og það leggst bara vel í
mig að vera í sjónvarpinu. Ég veit
að ég á eftir að mæta mikilli gagn-
rýni og vil þá endilega að fólk segi
mér hvað megi betur fara. Svo er
kannski efni í þættinum sem sumir
hafa engan áhuga á og þá verður
maður bara að halda vel utan um
þá sem hafa áhuga og sinna þeim
áhorfendum," segir hún. „Maður er
nú vanur umtali og gagnrýni og ég
held að ég sé búin að brynja mig vel
fyrir því. En auðvitað veit ég að
þátturinn á ekki eftir að verða jafn
vinsæll hjá öllum en ég vona samt,
þegar fram líða stundir, að ég eigi
eftir að ná til fólksins í landinu og
allir geti fundið eitthvað við sitt
hæfi,“ sagði Ragnheiður að lokum
um nýja sjónvarpsþáttinn sinn.
Breytingar á vinsælasta þætti meðal
yngstu kynslóðarinnar á Popptíví
Pétur Jóhann
í 70 mínútur
Hinir vinsælu Sveppi og Auddi
hafa boðað breytingar á þætti sín-
um 70 mínútum á Popptíví. „Þetta
verður alger sprengja hjá okkur,"
hefur verið haft eftir sjálfum
Sveppa. Legið hefur í loftinu að
þriðji stjórnandinn verði kynntur til
sögunnar áður en langt um líður og
hafa menn verið að velta því fyrir
sér hver verði fyrir valinu. Sam-
kvæmt heimildum DV munu þeir
félagar ekki leita langt yfir skammt.
Félagi þeirra úr sjónvarpsgríninu
Svínasúpunni, útvarpsmaðurinn
Pétur Jóhann Sigfússon, mun verða
þriðja hjól undir vagni. Grínið verð-
ur því í fyrirrúmi eftir sem áður en
Pétur Jóhann var fyrir nokkrum
árum kjörinn fyndnasti maður ís-
lands í þar til gerðri keppni en
Auddi, eða Auðunn Blöndal, varð í
2. sæti í hliðstæðri keppni. Pétur Jó-
hann hefur að undanförnu stjórnað
útvarpsþættinum Ding Dong á FM
en mun að öllum líkindum hverfa
frá hljóðnemanum í kjölfar þessar-
ar upphefðar. Þröstur Gestsson,
dagskrárstjóri FM957, staðfesti í
samtali við DV að Ding Dong hyrfi
af dagskrá stöðvarinnar á morgun
og von væri á nýjum dagskrárlið í
staðinn. Þetta þykir gefa sterkar vís-
Pétur Jóhann Þrítugur grínarinn færir sig úr útvarpinu yfír isjónvarpið tilþeirra Sveppa
ogAudda.
bendingar um að Pétur Jóhann ætli
sér að söðla um. „Ég hef ekki hug-
mynd um hvað ég er að fara að gera
en ég veit að það verður eitthvað al-
veg rosalega spennandi," segir
Doddi litli, félagi Péturs í Ding
Dong, sem vill ekki tjá sig frekar um
þetta mál, frekar en Pétur sjálfur.
Stjörnuspá
Ragnheiður Gyða Jónsdóttir útvarpsmaður
..er 47 ára í dag. „Hér
helgarhúnsig kær-
leika og meðaukinni
sjáifsvitund gerir hún
, sér Ijóst að ást og
náin kynni þarfnast
meira sjálfstrausts af
hennar hálfu," segir í
stjörnuspá hennar.
Ragnheiður Gyða Jónsdóttir
v\
Vatnsberinn (20.jan.-i8. tebrj
H
Þú birtist hér dugmikil/l, markviss
og vinnufús eins og vatnsberanum einum
er lagið. Þérvirðist líða iiia meðal þeirra sem
eru óagaðir og frjálslegir en þú ættir að
minna sjálfið á nauðsyn þess að slaka betur
á og losa um höft þín sem birtast hérna.
Fiskarnir/19. feftr.-20. marsj
Þér gengur án efa allt í haginn
næstu mánuði því þú virðist kunna lagið á
nánast öllu og ert vissulega ábyrg/ur fyrir
eigin láni meðvitað. Gleymdu ekki að næra
sálu þína í stað þess að helga þig félags-
skap sem er þér eigi að skapi.
Hrúturinn (21.mars-19.apriy
Skynfæri þín eru háþróuð og þú
þráir að upplifa tilveruna af alhug þessa dag-
ana og ættir að leyfa þér að njóta en á sama
tíma ert þú minnt/ur á að girnast ekki valdið
því ráðríki og eigingirni eyðileggur einungis
fyrir fólki fætt undir stjörnu hrútsins þegar
mannleg samskipti eru annars vegar.
T
ö
Nautið (20. apríl-20. maí)
D
Félagar þínir og fjölskylda treysta
þér því þú ert fær um að vernda fólkið sem
þú elskar og leiðbeinir því af sama krafti og
ímyndunarafli og ungt barn. Gerðu þérekki
of miklar grillur út af smámunum þegar
umtöluðu verkefni lýkur.
Tvíburarnir (21.mai-21.jm
Gott hjartalag einkennir fólk eins
og þig. Þér líkar vel að hafa peninga á milli
handanna en ættir ekki að gieyma að beina
athygli þinni að hjartanu. Staldraðu við og
sjá að bókhald alheimsins er villulaust þeg-
ar mannleg góðverk eru annars vegar.
Kldibbm (22.júnl-22.júlí)
Ef þú átt það til að nota mikla
vinnu sem flóttaleið eða sárabætur þegar
líðan þin er ekki íjafnvægi ættir þú að efla
þig í aðra átt i þeim málum. Reyndu að
brjóta af þér tilfinningalegar hömlur og
treystu betur á undirmeðvitund þína.
Ljóniðpj .júli-22.ágúst)
Leyfðu þér að fara eftir hugboð-
um þínum þessa dagana. Þú stefnir án efa
hátt og ert fær um að lagfæra áhugaleysi
þitt með því að gerast þátttakandi fremur
en áhorfandi. Settu þér raunsæ markmið til
skamms tíma og ekki síður langframa.
nj
Meyja n (23. ágást-22. sept.)
Ekki hika við að hiúa að við-
kvæmni þinni sem er sannarlega til staðar
en hér er á ferðinni jákvæður eiginleiki í fari
meyju. Horfðu inn á við og sjáðu að það
sem liggur á bakvið kröfur þínar er óttinn
við að hleypa öðrum inn, óttinn við að gefa
tilfinningunum lausan tauminn.
o Vogin (23.sept.-23.okt.)
Hvatvísi einkennir stjörnu vogar
um þessar mundir en hér ert þú minnt/ur á
að leyfa þeim sem þú elskar að hlúa að þér
og meðtaka gefna ást.
HL
Sporðdrekinn (24.okt.-21.nóv.)
Ekki láta óþolinmæði þína varpa
draumum þínum fyrir róða. Stöðugleiki er
einkunnarorð þitt um þessar mundir.
/
Bogmaðurinn/22.ndi'.-2!.fe.j
Hérna gengur þú langt í því að
uppfylla þarfir þínar en á sama tíma ert þú
fær um að annast þjáða af alhug og ættir
ekki að hika við að veita náunganum hjálp-
arhönd þína. Gættu þess að hrinda ekki
þeim sem þú unnir frá þér ómeðvitað
næstu misseri. Gæfan blasir við fólki eins
og þér.
Steingeitin (22.des.-19.janj
Ef þú nýtur þess að slúðra er þér
ráðlagt að snúa við blaðinu i þeim efnum.
Stjarna steingeitar þarf af einhverjum
ástæðum að átta sig á valdi ástarinnar og
getu sinni til að elska um þessar mundir.
Þér tekst án efa vel upp í starfi og leik en
þegar þú hlustar gaumgæfilega á eigin til-
finningar tekst þér að finna það sem þú
leitar að.
z
SPÁMAÐUR.IS