Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2004, Qupperneq 32
Fréttaskot Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem birtist, eða
er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt. 550 5090
SKAFTAHLÍÐ24 105 REYKJAVÍK [ STOFNAÐ 7970 ] SÍMI5505000
'W
• Búast má við að það hrikti í
súlunum í Súlnasal Hótels Sögu á
morgun þegar aðalfundur Sam-
taka ferðaþjónustunnar verður
þar haldinn. Meðal ræðumanna
á fundinum verð-
ur Vilhjálmur
Bjamason, við-
skiptafræðingur,
aðjúnkt og for-
maður Félags ís-
lenskra fjárfesta,
sem sett hefur
spurningarmerki
við fjárfestingu í
ferðaþjónustu innanlands og þá
sérstaklega hjá bændum. Hefur
Vilhjálmur líkt ferðamálafrömuð-
um í sveitum landsins sem óá-
byrgum skemmtanaffklum sem
tapi stöðugt fé en beri því einu
við að þetta sé allt svo skemmti-
legt...
• Bandarískir hermann á Kefla-
víkurflugvelli geta nú selt bif-
reiðar sínar á bflasölum í Reykja-
vík og reyndar hvar sem er á
landinu. Er þetta ein af aukaverk-
unum þeim sem hlutust af því
þegar Sölunefnd varnarliðseigna
var lögð niður. Á bflasölum má
þekkja bfla varnarliðsmannanna
á upphleyptum tígli á númera-
plötu. Toll af bflunum þurfa
kaupendur svo að greiða hjá Jó-
hanni Benediktssyni
sýslumanni á
Keflavflcurflugvelli
svo og að létta af
bflunum veðum
hjá bandarískum
bankastofnunum en
bflarnir eru yfirleitt
keyptir á kaup-
leigu eins og
tfðkast hjá Glitni
og Lýsingu...
Hún er alveg í sérklassa!
/
Saga Class Dorrit með
útrunninn miða
'Ao&i
Sá fáheyrði atburður varð á Heat-
hrow-flugvelli í London fyrr í þess-
um mánuði að Dorrit Moussaieff,
forsetafrú íslands, mætti með út-
mnninn flugfarseðil á Saga Class hjá
Icelandair og krafðist þess samt að fá
að fljúga með. Flugfarseðillinn mun
hafa runnið út fyrir ári.
Mistökin uppgötvuðust ekki fyrr
en forsetafrúin var komin um borð í
flugvélina og vom þá gerðar athuga-
semdir við, enda andstætt öllum
reglum að farþegar fljúgi á útrunn-
um miðum. Varð af rekistefna um
borð í vélinni sem endaði með því að
flugáhöfn sá sér þann kost vænstan
að vísa Dorrit ekki frá borði.
Talsmenn Flugleiða og Icelandair
biðjast undan því að tjá sig um mál-
ið en munu samkvæmt heimildum
DV ætla að senda forsetaembættinu
reikning vegna þessarar flugferðar
forsetafrúarinnar.
Dorrit Moussaieff flýgur af skilj-
anlegum ástæðum oft til London,
þar sem hún á ættingja og vini, og
hefur upp á síðkastið beint viðskipt-
um sínum til Iceland Express sem
flýgur á Stansted-flugvöll sem er 80
kflómetra norður af London. Hefur
bifreið frá sendiráði íslands í London
yflrleitt sótt Dorrit á Stansted og ekið
henni til borgarinnar. Samkvæmt
heimildum DV varð misbrestur þar á
fyrir nokkru og mun það ástæða þess
að forsetafrúin kaus að fljúga með
Icelandair sem lendir á Heathrow-
velli nær miðborg Lundúna.
„Sendiráðið hefur veitt þá þjón-
ustu að sækja bæði forseta íslands og
Guðni brotlenti
í ræðustóli
Landbúnaðar-
ráðherra tókst að
móðga þingmann
Sjálfstæðisflokksins
í afmælisveislu fyrr-
verandi þingmanns
Framsóknarflokks-
ins á Hvolsvelli í síð-
ustu viku.
„Guðni Ágústs-
fsólfur Gylfi
Pálmason
Drífa
Hjartardóttir
son hélt mér mikla lofraeðu og
lagði meðal annars út af fall-
hlífarstökki sem er hluti af
töðugjöldum sem haldin eru á
Rangárbökkum árlega,“ segir
afmælisbarnið, Isólfur Gylfi
Pálmason, núverandi sveitar-
stjóri á Flúðum. ísólfur var Guðni
fimmtugur og hélt upp á dag- Ágústsson
inn á Hvoli og mættu alls 550
manns. „Ég var ánægður með veisl-
una og vona að gestir hafi verið það
líka."
í ræðu sinni sagði Guðni frá því
þegar hann var beðinn um að mæta á
töðugjöldin á Rangárbökkum í fall-
hlíf en ekki þorað. Hefði hann mælst
til þess að ísólfur Gylfi færi í sinn stað
„enda minni'skaði ef
eitthvað fer úrskeið-
is.“ Bætti Guðni því
síðan við að Drífa
Hjartardóttir, þing-
maður Sjálfstæðis-
flokksins, hefði
einnig stokkið þarna
út í fallhlíf af sama
tilefni „...og þá sá ég
það stærsta klof sem ég hef
séð,“ sagði Guðni í ræðunni.
Mörgum brá við þessi orð
ráðherrans og gengu nokkrir
sjálfstæðismenn á dyr. Drífa
sat þó sem fastast en stuðn-
ingskona hennar hrópaði til
Guðna utan úr sal: „Þú hefúr
þá aldrei séð klofið á mér!“
Leystist ræða Guðna við þetta
smám saman upp og varð úr minna
en til stóð. Guðni Ágústsson er sem
kunnugt er meðal vinsælustu tæki-
færisræðumanna landsins og á dög-
unum sló hann í gegn á Stokkseyri
þegar hann 'hélt því fram í ræðu að
góðar hægðir væru oft betri en mikl-
ar gáfur.
forsetafrú út á flugvöll þegar þau
koma hingað og sú þjónusta er
óbreytt," segir Sverrir Haukur Gunn-
laugsson, sendiherra íslands í
London. „Þetta er eðlileg þjónusta
og skiptir þá engu hvort farið er til
Stansted eða ekki. Dorrit er forseta-
frú landsins."
„Forsetaembættinu hefur ekki
borist neinn reikningur vegna þess-
arar flugferðar. Dorrit Moussaieff
ferðast ekki á útrunnum flugfarseðl-
um,“ segir Örnólfur Thorsson,
skrifstofustjóri forsetaembættisins.
„Þarna var um að ræða mistök í inn-
ritun. Nýr starfsmaður á innritunar-
borðinu tók ranga miða úr flugfar-
seðlaöskju forsetafrúarinnar sem
sjálf tók eftir því þegar komið var inn
í fríhöfnina og hafði þá samband við
Dorrit á Saga Class Varekki vísað
úr vétinni og fékk að fljóta með þó
flugfarseðiilinn væri ógildur.
stöðvarstjórann. Um borð í vélinni
afhenti Dorrit svo flugfreyju farseðl-
ana og var málinu þar með farsæl-
lega lokið.“
VINSÆLASTA SOLUNAMSKEIÐ SGA
Gæðasala
27. mars
Akureyri
kl. 09.00 til 12.30
mars
í Reykjavík
kl. 09.00 til 12.30
Skráning og upplýsingar eru í síma
534 6868 og á netinu, skraning@sga.is
Athugið takmarkaður sætafjöldi.
Fyrirlesari er Gunnar Andri Þórisson
Gunnar Andri Þórisson er einn fremsti fyrirlesari
Islands ( þjónustu og sölu.
Hann hefur haldið námskeið og fyrirlestfa fyrir
stærri sem smærri fyrirtæki með góðum
árangri allt frá árinu 1997.
HRAÐNAMSKEIÐ
Nokkrar góðar ástæður fyrir því að skrá sig:
Þú vilt ná hámarksárangri á árinu 2004. Þú vilt fá ánægða
viðskiptavini sem tala jákvætt um þitt fyrirtæki og þína
þjónustu. Þú vilt ná fram hámarksárangri hjá starfsfólki. Þú
vilt sjá aukna sölu sem skilar auknum arði hjá fyrirtæki
þínu.
Þú þarft að vera vel undirbúin(n) í vaxandi samkeppni, þá
þarf sjálfstraust og þjónustumeðvitund að vera í lagi eins
og um úrslitaleik væri að ræða.
Þú nýtir þér þekkingu á marga vegu eins og t.d. með því
að greina þarfir viðskiptavinarins, lesa betur í kaupmerkin
hjá viðskiptavininum og bregðast við þeim, Ijúka sölunni
á markvissari hátt, efla liðsheildina hjá fyrirtækinu, bregðast
betur við kvörtunum og gagnrýni frá vjðskiptavinum.
Verð er kr. 12.500,- staðgreitt á mann. Innifalið í verði eru
námskeiðsgögn og kaffi. Sé bókað og greitt fyrir 26. mars
bjóðum við námskeiðið á 2-fyrir-1 tilboði.
Námskeiðið mun skila sér margfalt aftur í
kassann með aukinni sölu vel þjálfaðs sölufólks.
www.sga.is
Sími 534 6868 - Ráðgjöf í síma 908 6868 - sga@sga.is
SGA
SÖLUSKÓLI
GUNNARS ANDRA