Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.10.1959, Blaðsíða 11

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.10.1959, Blaðsíða 11
TIMARIT VERKFRÆÐilMGAFÉLAGS ÍSLAMDS 5. hefti 19 5 9 44. árg. t GEIR G. ZOEGA fyrrv. vegamálastjóri. Fœddur 28. sept. 1885. Dáinn lf. jan. 1959. Geir G. Zoéga var fædd- ur i Reykjavík 28. sept. 1885, sonur Geirs T. Zoéga latínuskólakennara, síðar rektors Menntaskól- ans í Reykjavik, og konu hans Bryndisar Sigurðar- dóttur. Hann lauk stúd- entsprófi frá Latínuskól- anum í Reykjavík 1903 og hóf siðan nám við Den polytekniske Læreanstalt í Kaupmannahöfn og laulc þaðan prófi í bygginga- verkfræði árið 1911. Þegar að námi loknu gerðist hann aðstoðar- verkfræðingur hjá lands- verkfræðingi, sem þá var Jón Þorláksson, og starf- aði hjá honum við vega- og brúagerð allt til ársins 1917, er Jón lét af em- bætti. Var hann þá skip- aður vegamálastjóri og gegndi því embætti þar til í ársbyrjun 1956, er hann lét af störfum fyrir ald- urs sakir. Hafði hann þá starfað að vegamálum hálfan fimmta tug ára og sem vegamálastjóri í nær fjóra áratugi. Er Geir Zoéga hóf starf sitt við vega- og brúagerð, var viðhorfið allt annað en nú. Akfærir vegir á landinu voru um 300 km og brýr aðeins 11 að tölu. Þegar hann lét af störfum, voru akfærir vegir orðnir um 9000 km og brýr nær 800. Þessar tölur gefa nokkra hugmynd um, hvílíkt stórvirki var unnið í vegamálum undir hans stjórn. Lengst af voru verkfæri nær eingöngu hakar, skóflur, kvislar og hestvagnar, fjárveitingar smáar og dreifðar svo sem enn í dag, en verkefnin óþrjótandi. Fyrst eftir 1940 fóru stór- ar nýtízku vinnuvélar að flytjast til landsins frá Ameriku og hafa nú út- rýmt hinum gömlu hand- verkum. Var Island eitt fyrsta land i Evrópu, sem tók jarðýtur í notkun við vegagerð. Starfslið við verkfræðistörf hafði hann jafnan af skornum skammti og þurfti því sjálfur að sinna fjölda verkefna, sem aðrir hefðu auðveldlega getað leyst. Hann ferðaðist árlega um mikinn hluta landsins, fyrst á hestum, en síðan með nýtízku faraitækjum. Munu fáir núlifandi menn vera eins gerkunnugir landinu og hann var eða hafa jafn öruggt minni um landslag og staðhætti. Geir Zoéga var hár maður vexti og hið mesta glæsimenni. Hann var gáf- aður vel og mikill tungu- málamaður. Talaði hann og skrifaði ensku og þýzku reiprennandi auk Norður- landamálanna. Hann var prúðmenni í framgöngu og kunni manna bezt að stilla skap sitt, lagði jafnan gott til mála, og aldrei heyrði ég hnjóðsyrði af hans vörum um einstaka menn. 1 samkvæmum var hann alltaf hrók- ur alls fagnaðar, var vinmargur og vinfastur. Starfs- maður var hann með afbrigðum og vinnuþrekið óbilandi. Var hann aldrei svo störfum hlaðinn, að hann gæti ekki lagt góðu máli lið, ef til hans var leitað.

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.