Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.10.1959, Side 12

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.10.1959, Side 12
66 TlMARIT VFl 1959 Sem verkfræðingur og stjórnandi hafði Geir Zoega marga ágæta hæfileika. Hann hafði í upphafi notið góðrar verkfræðilegrar menntunar, og þeirri þekkingu sinni hélt hann vel við allt til dauðadags. Hann var að eðlisfari nákvæmur og vandvirkur og var afar fljótur að koma auga á veilur eða vanhugsaða hluti i áætlun eða greinar- gerð. Hugkvæmur var hann i bezta iagi og mjög hag- sýnn, og komu þeir eiginleikar sér vel við lausn marg- vislegra vandamála við vega- og brúagerð, þar sem fjárráð voru jafnan af skornum skammti, en verkefnin óteljandi. Þótt hann sökkti sér oft niður í lausn einstakra vandamála, þá hafði hann jafnan glögga heildarsýn yfir þau verkefni, sem unnið var að og framundan voru. Þessir eiginleikar Geirs Zoéga urðu fljótt þess valdandi að honum voru af Alþingi og ríkisstjórnum falin mörg verkfræðileg trúnaðarstörf, sem ekki snertu vegamálin beint. Árið 1917 var hann skipaður ráðunautur ríkisstjórn- arinnar í vatnamálum og í járnbrautarmálinu 1922. Hann átti mikinn þátt í undirbúningi löggjafar um skipulag kaupstaða og kauptúna og var skipaður formaður skipu- lagsnefndar ríkisins 1921 og gegndi því starfi, þar til hann lét af embætti. Allt frá 1921 til 1944 hafði hann umsjón með mælingum bæja og kauptúna og gerði skipulagsuppdrætti, en þá var stofnað embætti skipu- lagsstjóra ríkisins. Formaður í Flóaáveitunni varð hann 1926. Yfireftirlit með brunavarnarmálum utan Reykjavík- ur var honum falið 1929 og gegndi hann því starfi allt til dauðadags. Árið 1930 tók hann við umsjón með land- mælirigum hér á landi og útgáfu uppdrátta landmæl- ingastofnunarinnar dönsku af Islandi. Gegndi hann því starfi alla tíð, og er hann lét af embætti vegamálastjóra, kom hann á fót vísi að sjálfstæðri íslenzkri landmælinga- stofnun. Auk þessara og fjölmargra annarra opinberra trún- aðarstarfa tók hann lengst af virkan þátt í athafna- lífi höfuðstaðarins bæði í útgei'ð og iðnrekstri. Hann starfaði mikið að félagsmálum og var einn af þrettán stofnendum Verkfræðingafélags Islands 1912 og formað- ur þess 1916—1918. 1 stjói'n V.F.l. átti hann síðar sæti frá 1920—1928 og var aftur formaður 1928—1930. Hann átti einnig sæti í mörgum nefndum á vegum V.F.l. og var kjörinn heiðursfélagi þess 1955. Hann var einn af stofnendum Ferðafélags Islands 1927 og forseti þess alla tíð frá 1937. Hann vann mikið og merkilegt starf í því félagi, því að honum var flestum mönnum betur Ijós auðlegð og fegurð íslenzkrar náttúru. Fyrir hin fjölmörgu störf sín í þágu lands og þjóðar og ýmissa félaga var hann sæmdur fjölda innlendra og erlendra heiðursmerkja og sýndur margháttaður annar sómi. Árið 1947 var hann kjörinn félagi í Akademiet for de tekniske videnskaber í Danmörku og sama ár bréf- félagi I Norsk ingeniörforening. Heiðursfélagi Norræna vegtæknisambandsins var hann kjörinn sumarið 1958 og hafði þá átt sæti í stjórn sambandsins frá stofnun þess 1935. Árið 1916 kvæntist hann Hólmfríði Geirsdóttur Zoéga, hinni ágætustu konu, dóttur Geirs Zoéga útgerðarmanns og kaupmanns í Reykjavík. Frú Hólmfríður var manni sínum stoð og stytta í erfiðu og erilsömu stai'fi. Hún ferðaðist mikið með honum bæði hér heima og erlendis. Heimili þeirra hjóna í Túngötu 20 var viðbrugðið fyrir gestrisni, alúðlegar móttökur og myndarskap. Þeim hjónum varð sex barna auðið, og eru fimm þeirra á lífi. Geir Agnar vélfræðingur, Gunnar viðskipta- fræðingur, Bryndís forstöðukona, Áslaug, gift Gunnlaugi Pálssyni arkitekt, og Ingileif kennari. Geir Zoéga vai' hamingjusamur maður, því að hann hafði yndi af starfi sínu, þó erfitt væri og naut þeirrar gleði og fullnægingar að loknu ævistarfi að geta skilið eftir sig meira sýnilegt verk en nokkur annar núlifandi Islendingur, ^enda mun hans jafnan minnzt sem helzta brautryðjandans í samgöngumálum þjóðarinnar. Sigui-ður Jóhannsson. ÍSTRUFLANIR VIÐ RAFSTÖÐVAR Eftir Hauk S. Tómasson, jarðfræðing. Inngangur. Á liðnum vetri hefur á skrifstofu raforkumálastjóra nokkuð veiið rætt um ístruflanir rafstöðva og hvað rann- saka beri í þessu sambandi vegna komandi virkjana og þeii'ra níivei'andi, sem verulega truflast af ís. Var samþykkt, að á fyrsta stigi slíkra rannsókna skyldi: a) safna allri innlendri og erlendri reynslu um ístrufl- anir, sem til næðist, b) gera yfirlitstöflu um rafstöðvar á Islandi og safna í hana upplýsingum um inntakslón, inntaksristar, vatnsnotkun, rennsli, ístruflanir o. fl. Var von manna, að þessi tafla mundi sýna, hvað helzt hefði áhrif á ístruflanir rafstöðva. Ekki er um auðugan garð að gresja, þar sem eru greinar um þessi mál. Þó náðist í 11 erlendar greinar og nokkrar íslenzkar. Byggist þessi gi'ein aðallega á hinum ei'lendu greinum og er reynt að bera helztu nið- urstöður þeirra saman við íslenzkar aðstæður. Mikið vantar á, að greinarhöfundar séu sammála i niðurstöðum sínum, en þó virðist viss þróun í greinunum í átt til meira samræmis, því yngri sem þær eru. Sameiginlegt öllum ei'lendu greinunum er, að höfundar þeirra þekkja aðeins aðstæður, þar sem töluvei't meginlandsloftslag er og enginn þeirra þekkir til úthafsloftslags, svipuðu því, sem við höfum á Islandi. Aðalheimildir um innlenda reynslu eru ýmsar af skil- greinum Sigui'jóns Rist til raforkumálastjóra, svo og umræður á fundum um ísamál. Ennfremur hefur Ágúst Halblaub, sem var lengi rafstöðvarstjóri við Laxá, skrifað Itarlega skýrslu um reynslu sína af ístruflunum þar.

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.