Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.10.1959, Page 20

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.10.1959, Page 20
70 TlMARIT VFl 1959 Margir höfundar ræða ráð gegn ístruflunum og eru allir sammála um, að eina örugga ráðið sé að hafa inn- takslón stórt og djúpt á inntak. Ef litið er á yfirlits- töfluna sést, að náin fylgni er milli ístruflana og end- ingartima inntakslóns.* Rafstöðvarnar frá Glerá og nið- ur úr truflast allar oft, enda er inntakslón svo lítið, að það nægir ekki einu sinni til góðrar dægurmiðlunar. Þessar rafstöðvar hafa heldur engin miðlunarlón. Aðrar virkjanir með stuttan endingartíma inntakslóns hafa allar miðlunarlón ofar í ánni. Geta þær þá orðið ístruflanalausar þótt inntakslón sé mjög lítið, 'eins og við írafoss. Þar er líka ekkert fall á milli rafstöðva og fjarlægðin einungis nokkur hundruð metrar. Sé hins vegar langt á milli miðlunarlóns og rafstöðvar, eins og við Fjarðarsel, truflast rafstöðin nokkuð, þó ekki eins oft og rafstöðvar með samsvarandi inntakslón án miðl- unarlóns. Þegar endingartími inntakslóns er farinn að skipta dögum og dýpi niður á inntak metrum, verður aldrei ístruflun. Svo er við Þverárvirkjun, Skeiðsfoss- virkjun, Fossá Engidal, Mjólkárvirkjun og Fossá Reið- hjalla. Niðurstaða þessara stofustúdía í ísafræðum virð- ist sem sagt vera, að efsta virkjun í á þurfi að hafa stórt inntakslón með endingartíma nokkra daga. Hinar neðri virkjanir mega hafa lítil inntakslón, ef þær taka við hver af annarri. RITSKRÁ. 1. Achermann, K. Betriebliche Vorkomnisse und Er- fahrung beim Eisgang vom Februar 1956 auf Aare und Rhein; Wasser und Energiewirtschaft, n. 3, 1959. * Nothæft rými inntakslóns er miðað við upphaflegt rými, en við Glerá og Gönguskarðsá hefur mikill aur borizt í lónin svo raunverulegt nothæft rými er þar tölu- vert minna nú orðið. 2. Bier, P. J. Ice Preventation at Hydraulic Structures; Water Power, v. 6, n. 4 og 5, 1954. 3. Cousineau, J. E. Ice Problem in Hydro-electric Dev- elopment; The Engineering Journal, Montreal, v. 42, n. 3, 1959. 4. Gisiger, P. E. Safeguarding Hydro Plants Against the Ice Menace; Civ. Eng. (N.Y.), v. 17, n. 1, 1947. 5. Ágúst Guðmundsson. Um gæzlu og viðhald vatns- aflsstöðva; Ársskýrsla S.l.R. 1952. 6. Steingrímur Jónsson. Um ístruflanir í Elliðaánum; Ársskýrsla S.l.R. 1944. 7. Steingrímur Jónsson. Um þurrðir í Hvítá; náttúru- fræðingurinn 1943. 8. Kanavins, E. Undervann-isproblemer i vassdragene, Tekn. Ukeblad, n. 44, 1951. 9. — Kunstig issperring i elvelöp; Tekn. Ukeblad, n. 45, 1951. 10. Guðmundur Kjartansson. Isalagning á ám og vötn- um; Náttúrufræðingurinn 1934. 11. — Þurrðin i Hvitá. Náttúrufræðingurinn 1943. 12. Laszloffy, H. W. Régime des glaces des riviéres; La Houille Blanche, v. 3, n. 6, 1948. 13. Melin, R. Undersökning vid S.M.H.I. över vatten- dragens isföi'hállanden. Stockholm 1947. 14. Nybrandt, G. Bidrag till teorin för isbildning i álvar; Stockholm 1945. 15. Schaefer, V. J. Formation of Frazil and Anchor Ice in Cold Water; Am. Geophysical Union — Trans. v. 31, n. 6, 1952. Samtíningur Hraunflóðavamir. Að því er Engineering News-Record greinir, fara nú fram tilraunir í þá átt, hvort ekki megi takast að beita venjulegum áveituaðgerðum gegn hraunflóðum. Eins og kunnugt er, stendur yfir gos í eldfjallinu Kilauea á Hawaii. 1 því skyni að reyna að bjarga þorpinu Kapoho, var í flýti ýtt upp jarðstíflu. Þetta bar þó ekki tilætlaðan árangur, hraunflóðið braut stífluna og flæddi yfir hana. Að áliti eldfjallafræðingsins G. A. Macdonald mis- tókst þessi tilraun vegna þess, að þarna var reynt að stífla flóðið í stað þess að veita því. Hann heldur því fram, að það sé óraunhæft að ætla sér að stífla hraun- flóðin vegna þess, að ekki verður sagt til um það fyrir- fram, hversu mikið flóðið verður. Hann telur að frekar beri að fara með hraunflóðin sem rennandi ár og veita þeim framhjá borgum og mannvirkjum, sem verja á. Verkfræðingar eru nú að athuga uppástungur eld- fjallafræðingsins með það fyrir augum að gera stíflu umhverfis borgina Hilo, íbúar eru þar 25.000. Á stíflan að verja borgina fyrir hraunflóðum úr fjallinu Mauna Loa, með því að veita þeim framhjá borginni. Hilo stendur undir rótum f jallsins, og á síðustu hundrað árum hafa hraunflóð ógnað borginni þrívegis. Ekki er að vænta, að slíkar aðgerðir sem þessar muni koma að notum hér heima í væntanlegum eldgosum, þó að bezt sé að fullyrða sem minnst um það. En þó þótti rétt að geta um frétt þessa til fróðleiks, enda má það vera hverjum athugulum manni ljóst, að þessi uppástunga er ekki út í bláinn. Má víða sjá það, hvernig náttúran sjálf hefir veitt hraunflóðunum með fyrirstöðum. S. T. Stál skorðið með vatni. Með þunnri vatnsbunu er hægt að skera stál á hag- nýtan hátt. Vatnshraðinn i bununni þarf að vera meiri en hraði hljóðsins. Áhald, sem reynt var í þessu skyni, notaði 1200 1. á klukkustund, en þrýstingur var hafður 2000 at. 2 mm þykkar stálplötur voru skornar á þennan hátt. Hingað til hafa verið notuð áhöld úr harðara efni en það, sem skera átti, til slíks verks. Þau áhöld hafa sljóvgazt fljótt, en vatnsbunan heldur biti sínu óbreyttu, og hana má einnig nota á timbur og stál. (Upplýsinga- stofa Sovíetlýðveldanna). S. T.

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.