Akranes - 01.10.1944, Blaðsíða 9
AKRANES
129
r
Gjafir og greiðslur til hlaðsins
Tryggvi Benónýsson f. III. árgang 25 krónur.
Helga Þórðardóttir f. III. árgang 25 krónur.
Ásmundur Jónsson Borgarn. f. III. árg. 50 kr.
Arngr. Fr. Bjarnason f. II. og III. árg. 50 kr.
Jóhann Skaptason sýslum. f. I—III. árg. 60 kr.
Edvard Frederiksen f. II. og III. árg. 50 kr.
Steingrímur Árnason f. III. árgang 50 krónur.
Einar Sigurðss. skipstj. f. II. og III. árg 50 kr.
Kristinn Brynjólfsson f. III. árgang 50 kr.
Frá gömlum Akurnesing (konu í Rvk) 100 kr.
Eiríki Kristjánssyni f. II. og III. árg. 50 kr.
Barða Barðasyni f. I.-—III. árgang 100 krónur.
Fyrir alla þessa rausn og velvilja þakkar
blaðið innilega.
Leiðrétting.
í síðasta blaði eru nokkrar vísur eftir Símon
Dalaskáld. Ríkarður Jónsson myndskeri hefur
bent á, að fyrsta vísan muni ekki vera rétt. —
Mun hún eiga að vera svona:
Lætur skunda Kristján knör,
keimbings fram á heiði,
heppinn undra álmabör
úr Sólmundarhöfðavör.
Blaðið þakkar Ríkarði fyrir þessa leiðrétt-
ingu, sem vafalaust mun vera rétt.
Áheit á Bjarnalaug.
Frá Guðmundi Benediktssyni 100 krónur. —
Kærar þakkir. — Ól. B. Björnsson.
Bánardaegur
Ari Jörundsson, hinn ötuli og árvakri ágætis-
drengur andaðist hinn 23. október af afleiðing-
um bílslyss. Á Ara var nokkuð minnst hér í
jólablaði 1942, og ef til vill betur síðar.
Við hið sviplega
fráfall og jarðarför mannsins míns, Ara Jör-
undssonar, virtust allir, bæði imér kunnugir og
ókunnugir, vera mínir beztu bræður og systur.
Samúðin og hjálpfýsin var takmarkalaus. Öllu
þessu góða fólki þakka ég hjartanlega. En alveg
sérstaklega þakka ég mínum ágætu nágrönn-
um á Sólmundarhöfða alla þeirra vinsemd fyrr
og síðar. Mér auðsýndur kærleikur veit ég
streymir frá góðu fólki, og, eins og hver sáir,
svo uppsker hann. — Kristjana Hallsteinsdóttir.
Aímæli
Frú Guðný Stefánsdóttir Hvítanesi varð 75
ára 7. nóv. s. 1.
Hannes Guðnason Lykkju varð 75 ára 12. nóv.
síðastl.
Frú Kristín Runólfsdóttir Björk verður 50
ára 14 nóv. n. k.
Guðim. J. Guðmundsson skósmiður verður
70 ára 15. nóv. n. k.
Frú Elísabet Jónsdóttir Sigurhæð verður 50
ára 18. nóv. n. k.
Akraneskaupstaður i>yggir tvö
60 tonna skip
Hinn 23. október samþykkti bæjarstjórnin að
semja við Dráttarbrautina á Akranesi um bygg-
ingu tveggja 60 tonna skipa. Verður þegar haf-
ist handa með efni, sem hér er nú til og telja
má líklegt að fáist.
Annan bátinn kaupir s.f. Sigurfari, en öðrum
er enn óráðstafað.
Alúðar-þakkir
færi ég Akurnesingum fyrir alla þá vinsemd
og rausn, er þeir sýndu imér við burtför mína
héðan.
Blessun og hamingja fylgi öllum störfum Ak-
urnesinga bæði á sjó og landi.
Akranesi, 5. okt. 1944.
Svafa Þórleifsdóttir.
Þakkir.
Fyrir skömmu barst gagnfræðaskólanum
hnattlíkan að gjöf frá Bókaverzlun Andrésar
Níelssonar.
Eg þakka fyrir gjöfina, og þær hlýju óskir,
sem fylgdu með gjöfinni, til okkar kennara og
nemenda skólans. Jafnframt vil ég þakka And-
rési Níelssyni fyrir lipurð hans og hjálp-
semi við að útvega gagnfræðaskólanum kenslu-
bækur og annað, er skólinn hefur þurft.
Skólastjóri.
Þakkarávarp
Hugheilar þakkir til allra, sem auðsýndu mér
vinsemd á fimmtugsafmæli rnínu 22. 10.
Vilhjálmur Benediktsson Efstabæ.
Sr. Halldór Kolbeins
prestur að Mælifelli í Skagafirði var hér
nokkra daga I oklóbermánuði. Messaði og flutti
þrjú erindi í kirkjunni um andleg mál. Hann
hefur ferðast á vegum kirkjuráðs í þessum er-
indum til nokkurra staða. Þ. á. m. Eyrarbakka
og Stokkseyrar, um Borgarfjörð og til Akur-
eyrar. Sr. Halldór Kolbeins er heitur og áhuga-
samur prestur og góður ræðumaður. Erindi
þessi voru allvel sótt, og líkuðu vel.
Gullhrúðkaup
Hinn 20. október s. I. áttu þau heiðurshjónin
í Melshúsum, Kristín Árnadóttir og Sigurður
Jónsson gullbrúðkaup.
Sigurður er hér borinn og barnfæddur, en
■ Kristín í Hafnarfirði. Þau eru bæði fyrirmynd-
ar hjón að háttprýði, dugnaði, þrifnaði og reglu-
semi. Blaðið óskar þe:m til heilla og hamingju
með það, sem eftir kann að vera ævinnar.
Frú Hulda Jónsdóttir,
Suðurgötu 21, annast afgreiðslu blaðsins hér
í bænum. Tekur hún og við áskriftum nýrra
kaupenda, og annast innheimtu blaðsins innan-
bæjar. Þess er vænst, að þeir sem enn ekki
hafa greitt blaðið, láti ekki innheimtumanninn
fara margar ferðir.
Það væri vel þegið af þeim, sem gætu kom-
ið því við, að greiða blaðið til Huldu sem fyrst.
Iðni og atorka
og háar hugsjónir, — sem menn viija offra
einhverju fyrir — gerir lífið að sigursælum leik.
Öfund, leti og ómennska gera það að harm-
leik, og umhverfið allt að kvalastað.
Æska þessa bæjar — og vonandi allur al-
menningur — hefur nú hafið nýtt átak skiln-
ings, menningar og þroska. Hún hefur án þess
að viðhafa nokkrar vangaveltur byrjað bygg-
ingu stórhýsis — íþróttahúss — örfáa metra frá
Bjarnalaug.
Til hamingju ungu menn og meyjar. Áfram í
sama ,dúr‘. „Starfið er margt, en eitt er bræðra-
bandið. Það er að elska, byggja og treysta á
landið".
Bærinn okkar á að vera fyrirmynd en ekki
eftirbátur annarra um manndóm og þroska
æskunnar.
Frá Bjarnalaug
í haust er laugin dálítið misheit eftir veðri.
Hefur mikill vindur mest áhrif í því sambandi.
Hún er oft yfir 20 stig. Fyrir nokkrum dögum
var hún 24 gr. heit. Laugin er mikið notuð, þeg-
ar hún er vel heit. Virðist sem bærinn fylgist
nákvæmlega með því, sérstaklega börnin.
í vetur verða ekki kennslunámskeiS tyrir
unglinga, en ef fullorðnir hefðu liug á að stunda
slík námskeið fram að hátíðum, mundi það
verða auðsótt mál.
Þeir, sem vildu sinna því, snúi sér til laugar-
varðar, Helga Júlíussonar.
Góðar fréttir.
í gagnfræðaskólanum er nýstofnað bindindis-
félag, stofnendur voru 63. Félagið mun bráð-
lega ganga í Samband bindindisfélaga í skól-
um. Hér er um að ræða tvíþætt bindindi, þ. e.
á vín og tóbak. Þetta er svo stórt spor til
menningar og þroska, að allir Akurnesingar
mega fagna. Það ber að þakka og umfram allt
styðja skólann og styrkja ungmennin í þessum
þeirra fagra ásetningi. Hann getur markað
veruleg spor til gæfu þeirra og gengis á lífs-
leiðinni.
Akranes verður með góðu eða illu að útrýma
vín- — og helzt líka — tóbaksósómanum úr
lífi bæjarbúa. Það er jafnaðarlegast illur ávani
eða ósómi, sem oft endar í algeru siðleysi og
spillingu, sem valdið getur þjóðarsmán.
Nemendur skólans eiga þakkir skilið fyrir
þetta framtak þeirra og skilning á mikilvægi
þessa máls. Slíkar þakkir eiga og kennarar skól-
ans. Það er óskandi, að þeim takist í samein-
ingu að gera þetta ágæta áform að verulegum
ávinning fyrir þá sjálfa, skólann og Akranes
um langa framtíð.
Húsmæðraskólasjóður Akraness
Eftirtaldar minningargjafir um frú Helgu
Guðbrandsdóttur bárust sjóðnum við andlát
hennar:
Frá Kvenfélagi Akurnesinga kr. 1200.00
Frá Valdísi Böðvarsdóttur kr. 1000.00
Samtals kr. 2200.00
Kvittast hér með fyrir gjafir þessar með
þakklæti.
Framvegis veitir frú Ingunn Sveinsdóttir
minningargjöfum móttöku. Verða slíkar gjafir
færðar inn í sérstaka, þar til gerða bók, er
síðar verður geymd í Húrmæðraskóla Akraness.
Svafa Þórleifsdóttir.
Fyrirspurn
Eg er lengi búinn að glíma við það að út-
rýma værunni úr höfðinu á ír ér, en gengur
það mjög illa. Hvað ætli gæti helzt hjálpað í
þessu efni?
Sá, sem ekki er „vœru“-kœr.
Svar
Rakarastofa Sigurðar Ólafssonar í Eimskip i
Reykjavík hefur afbragðsgóðan hárþvottalút,
og miklum mun betri en almennt gerist. Það
er fengin nokkur reynsla fyrir því að þessi
þvottur heldur værunni líklega alveg í skefj-
um, ef höfuðið er þvegið úr honum með hæfi-
legu millibili.
Brunabótagjuldum
er veitt móttaka hvern virkan dag að Vest-
urgötu 61, kl. 4—7 síðdegis. Vinsamlegast, mun-
ið að greiða iðgjöldin scm fyrst. Umboðsmaður: