Akranes - 01.06.1947, Page 6

Akranes - 01.06.1947, Page 6
væri þræll kallaður, þá máttu fáir taka hann til jafnaðarmanns við sig, þótt frjás- ir hétu, og kunni hann vel að þjóna sin- um yfirmönnum. Atli í Fljóti á Ströndum, þræll og bú- stjóri Geirmundar heljarskinns tók um vetur við 14 skipbrotsmönnum og bað þá engu launa vistina, sagði Geirmund eigi vanta mat og þegar Geirmundur spurði hann, hví hann hefði verið svo djarfur að taka slíka menn upp á kost hans, svaraði Alti: „Því at þat man uppi meðan Island er byggt, hversu mikils háttar sá maður mundi vera, at einn þræll þorði að gera slíkt utan hans orlofs.“ Þá svaraði Geir- mundur: „Fyrir þetta þitt tiltæki skaltu þiggja frelsi ok bú þetta, er þú hefur varð- veitt,“ og varð Atli síðan mikilmenni. Þegar Glúmur barðist við þráinn á Espihóli og hann hopaði undan og féll, iögðust þrælar hans tveir ofan á hann og voru stangaðir spjótum til bana, en Glúm- ur hélt lífi. Minna má og á það í þessu sambandi, að menn fólu oft þrælum börn sín til fósturs og er það ef til vill einna áþreifanlegastur vottur um mannkosti þeirra og traust það og álit, er þeir nutu oft og einatt og fela menn eigi börn sín visvitandi í hendur illmennum eða ó- mennum á uppvaxtarárunum. Þessir þrælar, er svo vel voru mannaðir, nutu oft hylli húsbænda sinna um fram aðra húskarla af frjálsum uppruna, og komust jafnvel oft og einatt í sérstaka virðingar- stöðu. Voru settir fyrir útibú, gerðir verk- stjórar á heimabúinu og áttu yfir höfuð góða daga. Það er auðséð á þessu og mörgu öðru, að Islendingar vildu meta þræla sina að verðleikum, vildu reynast þeim vel er til þess unnu og höfðu mannkosti til. Allur sá fjöldi leysingja er þá frelsi sitt af þess- um ástæðum ber glöggt vitni um það og einnig hitt, að þeir vildu sem fyrst losna við þrælahald og gott er til þess að vita, að fyrstir allra þjóða urðu þeir til að af- nema það. Orsakir til þess, að svo varð, telja menn verið hafa margar: Þeim hafi þótt þræla- hald illa borga sig, þeir hafi haft nægt landrými og viljað að hérað sitt byggðist sem fyrst og því gefið það eða leigt leys- ingjunum. En ég hygg meginorsökina ver- ið hafa þá, að þeir hafi illa unað öllu þrœlahaMi, viljað helzt búa eingöngu við frjálsa menn. Og svo er talið að kristnitak- an hafi haft hér alldrjúg áhrif, er fram á þann tima kom. Ekki hlýðir að ganga framhjá glæsi- legustu dæmunum um ættgöfgi og mann- kosti innfluttra þræla á þessum tíma: Erpur, þræll Unnar djúpuðgu var jarls- son. Melkorka, er varð ambátt Höskulds Dalakollssonar og móðir Ólafs pá, var dóttir Mýrkjartans Irakonungs. Um Þor- kel Geitison í Krossavík segir, að hann ætti þræl einn útlendan og' var hann „hvorki ljótr né illr viðreignar sem aðrir þrælar, heldr var hann gæfr ok góðr viðrskiptis.“ Ástríður Vigfúsdóttir á Borgarhóli, móðir Viga-Glúms átti þræla nokkra, „en þessir þrælar voru miklu hollastir Astríði fyrir umsjá ok verknað; hún þóttist varla mega búi sínu halda, ef þeir færi frá,“ enda var umhyggja hennar fyrir þeim eftir því. Oft varð náið og jafnvel innilegt samband milli frjálsgjafa og leysingja og afkom- enda beggja, sem sjá má af gullfögru dæmi úr Njálu. Sigtryggur hafði verið leysingi Ásgerðar móður Njáls og drukn- aði hann í Markarfljóti og var Þórður sonur hans, er kallaður var leysingjason „því með Njáli síðan“ og fóslraÖi hann alla sonu Njáls. Skín út úr lýsingum sög- unnar lotning og elska Njálssona til fóstra síns, þokki Njáls til Þórðar og kunnug- leiki Gunnars á Hlíðarenda á því. Er Njálssynir fréttu víg leysingjasonarins, fóstra síns þótti þeim illt að mega ekki hefna, því að sætzt hafði verið á vigið áður en þeir fréttu. — Nokkru síðar vó þó Skarphéðinn Sigmund og er Kári spurði hann fyrir hvað hann hefði gert það, sagði Skarphéðinn: „Hann hafði drepit Þórð leysingjason, fóstra vorn.“ Vafalaust hafa leysingjar ekki færri verið ágætismenn en annað fólk og margra þeirra er að ágætum getið. Unnur kvað Vífil, leysingja sinn mundu þykja göfugan þar sem hann væri, enda mægðist hann við beztu ætt og var af honum gáfugmenni komið. Steinröðr Melpatriksson, leysingi Ingólf var kall- aður skilríkur. Margir leysingjar voru og svo hagsýnir, að þeim safnaðist auður. Þorgeir á Þorgeirsfjalli var leysingi og auðugur að fé og Skúmur leysingi Flún- röðar Véfríðarsonar, hafði og aflað sér fjár og var auðugur. Orðið þræll var til forna orðið ókvæðis- orð, rétt eins og það er enn í dag og mun eflaust verða. Var afkomendum ófrjálsra manna brigzlað um ætterni þeirra: Rögn- valdur Mærajarl Eysteinsson átti Finar við ambátt og brýndi hann son sinn á því. „Lítils er mér ván af þér þvít móðurætt þín er öll þrælborin,“ sagði jarl. Glúmur Öfeigsson kallaði í reiði Þjóstólf fóstra Hallgerðar þræl. „Þat skalt þú eiga til at segja, at ek eigi þræll,“ anzaði Þjóst- ólfur og vó Glúm. Þegar Ólafur pá, sem glæsilegastur var allra Islendinga, bað Þorgerðar Egilsdóttur, kvað hún Egil ásanna það, að hann ynni henni mest barna sinna, „ef þú vilt gifta mik am- báttarsyni.“ Svo var óbeit frjálsra manna á þrælum rík, að hún náði út yfir gröf og dauða. Frn.mhald. - B Æ K U R --- Ljóðmæli eftir Grím Thomsen. B. A. Lillie. London 1946. hað lætur að líkum, að ljóðmæli slíks skáldjöfurs sem Gríms Thomsens hafi oft komið út áður, enda þetta 6. útgáfa Ijóða- safna eftir hann en 2. heildarútgáfa ljóðmæl- anna. Heildarútg. Snæbjarnar Jónssonar 1934, í tveim bindum, bar áreiðanlega af öllum fyrri útgáfum um allt, en þó sérstaklega um ytri frágang. Hann var gerður af mikilli rausn eftir því sem á Islandi tíðkast, og ekkert til sparað. Á mælikvarða síðustu ára hefur Snæbjörn Jónsson ekki verið stórvirkur bókaútgef- andi, og mun nú með öllu hafa lagt niður útgáfustarf. En útgáfa hans var til fyrir- myndar um tvennt, sem mikilverðast er á öllum tímum, en það er val og frágangur. Að gefa út valdar bækur og vanda til þeirra um allt eftir því sem frekast er unnt, en forðast þó smekklausan íhurð, eru boðorð, sem ekki eru um of haldin nú á síðustu ár- um. Þar hefur stundum brostið á, að mjög væri hugsað um gagnsemi bókarinnar eða smekkvísi í útgáfu liennar. Þeir eru helzt til margir, sem hugsa um það eitt, hvað gefa muni beztan arð, en miður um gagnsemina. En ekki kemur það til mála, að þjóðin eigi mikla og glæsilega framtíð fyrir höndum ef ekkert er til þess gert að hefta útgáfu úr- kastsrita, en styðja hins vegar það menn- ingar-starf og þjóðnytja, er þeir útgefendur vinna, sem standast þá prófraun, að þeir gefi aðeins út góð rit og vandi til útgáf- unnar. Hér var lítillega vikið að útgáfu Snæbjarn- ar á ljóðum Gríms Thomsens. En nú hefur dóttir hans, frú Betty A. Lillie, stigið í fót- spor föður síns, og þó gengið góðu feti fram- ar. Hún hefur gefið út ljóð Gríms á ný, og með þeim hætti, að stórum ber af hinni fögru útgáfu frá 1934, enda hafa með henni fjallað um þessa útgáfu brezkir kunnáttu- menn í bókagerð. En í bókagerð er Islend- ingum ennþá leiðinlega áfátt Um kunnáttu. Hefur og (þótt ótrúlegt megi virðast) alls ekkcrt um það mál verið ritað á íslenzku. Engin kennslubók í hókagerð til á móður- máli okkar og ekki svo mikið sem ritgerð i tímariti. Niðurröðun kvæðanna í þessari heildar- útgáfu er önnur en í hinni fyrri, og miklu heppilegri. Var og sjálfsagt að raða nú með öðrum hætti, því að nú er prentað í einu bindi. Bæði efnisskrá og registur er svo fullkomið, sem frekast verður á kosið — efnisskráin framan við en registrið aftan við, eins og vera ber. Nú eru tölusett erind- in í drápum Pindars, eins og handrit höf- undarins sýnir að hann vildi vera láta, enda má slík tölusetning nauðsynleg heita í löng- um drápum, rétt eins og í rímum. Prófarka- lestur mun frú Betty hafa annast sjálf, en faðir liennar ráðið niðurskipun ljóðanna, og ritað hefur hann örstultan formála fyrir bókinni. Framan við er áður óprentuð mynd af Grími, alveg sérstaklega góð að þeirra A K R A N E S 66

x

Akranes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.