Akranes - 01.06.1947, Síða 8

Akranes - 01.06.1947, Síða 8
Ólafur B. Björnsson: Þœttir úr sögu Akraness V. 12. HVERSU AKRANES BYGGÐIST 2. kafli. — Fjölgun býla og bæja til 1840. 27. Bakki (framhald). Einar Ingjaldsson var ákaflega harð- gerður og duglegur maður. Hann var af- bragðs íormaður, hygginn og útsjónar- samur á sjó, og góður að segja fyrir verk- um. Hann var sókndjarfur en þó hygginn og athugull á sjó. Einar var víst af sumum talinn kaldur, stórorður og opinskár. Lét ýmislegt „flakka“ og skeytti ekki um hvort betur líkaði eða ver. Þó var ekki hægt að segja annað en að Einar væri prúður maður og raungóður. Hann var undir niðri svo góðgjarn og drenglund- aður, að fáir munu hafa reiðst honum ber- sögli hans og stóryrði. Einar mun hafa verið formaður á opn- um skipum og síðar mótorbátum yfir 60 ár. Hann var formaður á fyrsta mótor- bátnum, sem hingað kom til Akraness. Þótti það ekki lítill viðburður. Einar var framúrskarandi eiginmaður og heimilisfaðir. Hann var mikill dugn- aðar- og mannkostamaður. Einar andaðist 31. júlí 1940. Var hann nokkru áður gerð- ur að heiðursborgara á Akranesi, og sá fyrsti og eini, sem hlotnazt hafði sá heiður. Eins og áður er sagt, voru tvær síðari konur Einars systur. Bróðir þeirra var Sigurður i Hvammi í Hvítársíðu, og Árni Helgason, fyrrum organisti í Grindavík, sem enn er á lífi, og Guðjón í Laxnesi í Mosfellssveit, faðir Halldórs Kiljan Lax- ness, skálds. Halldóra á Bakka er hin mesta mynd- arkona. Hefur hún að vonum þurft að hafa mikil umsvif á hinu mannmarga heimili. Oft þurfti hún að verulegu leyti Einar lngjáldsson. að annast búskapinn, vegna sjómennsku bónda sins, ekki sízt þær mörgu vertíðir, sem hann stundaði sjó í viðlegu á Hólm- anum eða í Sandgerði. Heimilið hefur ver- ið henni kært og þar eru hennar miklu störf. Eftir býlinu Bakka, heitir nú Njarðar- gatan Bakkatún, og er Bakki nr. 22 við þá götu. Á Bakka var byggt með fyrstu timbur- húsum hér á Skaga. Það var 15 álna langt, 1 o álna breitt, með skífuþaki, og með kvisti á suðurhlið. Það var byggt 1872, af Jóhannesi snikkara, þeim sem hér hefur verið nefndur. Þetta gamla hús reif Einar Ingjaldsson 1922 og byggði þá það, sem enn stendur á Bakka. 28. Brekkubœr. Þetta býli hefur aldrei verið eign ábú- andans. Það er hjáleiga frá prestseturs- jörðinni Görðum. Ekki mun byggð hafa verið í Brekkubæ fyrr en um 1800. I upp- hafi var bærinn um nokkur ár kallaður Fagrabrekka. (Á þeim tíma hefur þótt fallegt i Brekkubæ.) Þessi hjáleiga frá Görðum liggur næst Skaganum, (niður að Krókalóni innan verðu) og tún jarðar- innar lá að mörkum Skagalóðar. Árið 1826 býr þetta fólk í Brekkubæ: Jón Benediktsson, húsm., 61. árs, og Sig- ríður Einarsdóttir bústýra hans, 6g ára. Þar býr Jón enn 1834, en er þá talinn ekkjmaður. Jóns þessa gat Hallgrímur í sambandi við kaffi. Um þetta farast Hall- grimi svo orð: „Þá var ótítt um kaffe, þá kunnu menn að nefna það en naumast að Ilalldóra Helgadóttir. laga, nema einstöku menn. Jón Benedikts- son í Brekkubæ og Sigríður kona Ásbjarn- ar, — hvers áður er nefndur, — var helzt getið að því að þau kynnu manna bezt að laga kaffe, enda höfðu þau atvinnu af því fyrst framan af að skenkja kaffe fyrir marga sjómenn o. s. frv.“ Árið 1840 er í Brekkubæ Oddur Þórðar- son, húsbóndi, 76 ára, og Guðrún Ofeigs- dóttir bústýra, 65 ára. Þau eru þar enn 1843. Árið 1844 er kominn þangað Guðmundur Ólafsson, húsbóndi, 37 ára og Kristín Jóns- dóttir kona hans, 31. árs. Þeirra börn eru þá: Pétur, 8 ára, og Gróa, 6 ára. Þar er þá og Guðrún Sighvatsdóttir, 44 ára, og Sighvatur Grímsson, hennar sonur, 4. ára. (Fræðimaðurinn alkunni.) Næsta ár á eftir, 1845, býr þar Ásbjörn Pétursson, 46 ára, og Málmfríður Ásmundsdóttir kona hans, 48 ára. Þeirra dóttir var Mál- fríður, móðir Ásbjarnar snikkara í Völ- undi og þeirra systkina. Hjá þeim eru þá þessi börn þeirra: Ásmundur, 15 ára, og Guðrún, 9 ára. Árið 1850 eru þau þar enn og þessi börn: Ásbjörn, 22. ára, Málmfríð- ur, 18 ára, og Guðrún, 13 ára. Árið 1873 býr þar ekkjan Maria Jónsdóttir, 52. ára, með dóttur sína, Guðríði Bjarnadóttur, þá 12 ára. I janúar 1873 býr þar Ólafur Guð- mundsson, bóndi, go ára, og Guðríður Guðnadóttir, kona hans, 48 ára. Hjá þeim eru þá þessi börn þeirra: Björn, 16 ára, og Sesselja, sem lengi bjó í Innsta-Vogi, móðir Málfríðar Björnsdóttur á Strönd á Rangárvöllum, Guðmundar nú á Arkar- læk og þeirra systkina. Sonur Ólafs þessa og GuÖríðar í Brekkubæ, var og Guðmund- ur, síðar í Mýrarhúsum, — faðir Björns Ólafssonar, fyrrv. fjármálaráðherra. Árið 1876 er kominn að Brekkubæ Eyjólfur Sigurðsson, (ættaður ofan úr Andakíl). Hann mun fyrst hafa verið vinnumaður hjá Árna í Heimaskaga, og formaður fyrir hann á fjögra manni fari. Hann kvæntist 8. nóv. 1877, Sigríði Sveins- dóttur frá Innsta-Vogi. Sveinn faðir Sig- ríðar bjó fyrst á Ósi, eftir Narfa Ólafsson tengdaföður sinn, en kona hans og móðir Sigriðar i Brekkubæ var Sigriður Narfa- dóttir. (Þetta er og faðir Guðmundar Narfasonar, sem hér lifir enn). Frá Narfa þessum og konu lians, Agnesi Guðmunds- dóttur, má ýmislegt merkilegt segja, og gefst vonandi tækifæri til þess síðar. Börn Sveins i Innsta-Vogi voru 12. en aðeins þessi komust til fullorðinsára: Sigríður í Brekkubæ, Narfi á Me.1, Árni í Garðbæ, Helgi á Litlabakka, Ingveldur á Suður- völlum og Ólafur, sem alinn var upp hjá Bjarna Ólafssyni i Akrakoti. Hann drukn- aði i Alcrakotsvörinni, ungur að aldri, 6. júní 1874. Var hann að sögn mjög efni- legur maður. Sigríður kona Eyjólfs í Brekkubæ var A K R A N E S 68

x

Akranes

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.