Akranes - 01.06.1947, Síða 17

Akranes - 01.06.1947, Síða 17
SERA FRIÐRIK FRIÐRIKSSON: STARFSÁRINIII. Framhald. Það var nú Pétur Jökull, trésmíðameistari. Dóttir hans var gift náfrænda mínum, Júlíusi Guðmundssyni og Guðrúnar dóttur Jóhannesar, föðurbróður míns. Þau bjuggu vestur í Lincolncounty. Sonur Péturs Jökuls hét líka Pétur og var um 18 ára að aldri, stórmyndalegur piltur. Kom ég oft á það heim- ili og vorum við Pétur yngri mjög góðir vinir. — En nú verð ég að setja haft á sjálfan mig, því annars kæmu l'leiri og fleiri, og bók þessi yrði í mörgum bindum. Eg hef áður gjört nokkra grein fyrir frændfólki mínu i söfn- uðinum vesturfrá í Iúncoln-sýslu. Það var mér ákaflega gott og átti ég margar unaðsstundir á heimilmn þeirra systra, Guð- rúnar og Jóhönnu. C. M. Gíslason, maður Jóhönnu, bjó stórbúi þar í söfnuð- inum. Þau hjónin áttu fjölda barna. Þrír elztu drengirnir hétu: Clarence sá elzti, þá eitthvað um lö eða 17 ára, hinn næsti hét Conrad, sérlega myndarlegur, bæði vel vaxinn og fríður sýnum. Svo kom Carl, hann var 12—13 ára, og fannst mér hann ljúfastur þeirra allra. Svo voru þar tvær eða þrjár dætur og seinast komu þrír drengir, kornungir. Eg skírði þann yngsta og var hann skírður Friðrik, og varð hann ótrúlega hændur að mér og vildi alltaf vera í fanginu á mér, þegar ég dvaldi þar. Hann var látinn gefa mér öskjur með góðum gripum í, þar á meðal hálsbindisklemmu úr gulli og hef ég alltaf síðan haft hana í hálsbindi mínu, — og litla nafna rninn í hug mér og hjarta. Fg komst í góða viðkynningu túð prest norska safnaðarins í bænum, séra Hinderlá. — Hann var mér ákaflega góður og var hann líka mjög vel látinn af íslenzka söfnuðinum. Eg var oft í kirkju hjá honum, og það kom oft fyrir, að ég predikaði þar. Norski söfnuðurinn var mér góður og átti ég marga vini þar, sér í lagi meðal hinna ungu. Einu sinni var ég boðinn á ])restafund norskan. Þar voru margir prestar saman komnir. I’>g var þar á meðal þeirra eina þrjá daga og undi mér vel. Allir prestar þar fylgdu sömu stefnu í kirkju- og trúmálum sem kirkjufélagið íslenzka. Voru á móti „hinni hærri“ biblíu- krítík og nýju guðfræðinni. — Þessi norska prestastefna var haldin í smábæ, sem heitir Montevideo, Minn. Þar voru margir Norðmenn búsettir. Þátttaka mín í þessari prestastefnu hafði það í för með sér, að mér var seinna boðið á minningarhátíð í Norsku samein- uðu lúthersku synodunnár. Það var 2.5 ára afmælishátíð henn- ar. Árið 1890 sameinuðust margir norslcir kirkjuflokkar og mynduðu nýtt sameinað norskt kirkjufélag. Sú hátíð átti að haldast i Minneapolis í júnímánuði miðjum. Eg þjónaði nú söfnuðunum mínum allt þangað til ég færi a þessa hátíð, fermdi börn og liafði margar blessunarríkar stundir. Eg var því fús til að lofa söfnuðinum að koma aftur um haustið og þjóna þar næsta vetur, veturinn 1915—16. Um sumarið var svo til ætlast, að ég ferðaðist meðal íslenzku safn- iiðanna í Kanada. ATnrslca lcirkjuhátíðin í Mmneapolis. Eg hef hér á undan sagt frá tilefni þessa mikla hátíðarhalds. I þrjú eða fjögur ár hafði hátíðin verið í undirbúningi. Söng- Iróðir menn frá St. Ólafsskólanum höfðu feðast milli allra safnaða norska kirkjufélagsins og valið út úr söngflokkum safnaðanna hina beztu söngkrafta. Söngskrá hátíðarhaldsins hafði verið útbúin í byrjun undirbúningsins, og var svo æfð í hverjum söfnuði. Allt söngfólkið kom svo saman í Minneapolis þrem vikuin áður en hátíðin skyldi hefjast, og hafa sameigin- legar æfingar. Þetta var blandaður kór og voru 2000 manns í kórnum. Kvöldið áður en hin eiginlega hátíð átti að byrja, var hald- inn samsöngur í hinni stóru höll riddaraliðs hersins, þar sem eru hafðar reiðæfingar. Hafði sú höll verið leigð til hátíðar- innar. Fyrir innra stafni hússins voru reistir söngpallar sem náðu hátt upp, þannig, að hver röðin stóð fyrir ofan aðra. Námu höfuð þeirra er í röðunum stóðu við brjóst þeirra er stóðu í næstu röð fyrir ofan. Niður á gólfið fyrir framan rað- irnar var hljóðfæraflokkur. Mér var sagt að um 170 hljóð- færi væru notuð. Þar fyrir l'raman reis upp íeiknahár pallur fyrir söngstjórann. Það var sæti í salnum fyrir 7000 áhreyr- endur. Klukkan 7 um kvöldið var hvert sæti skipað, og í blöð- unum næsta dag var sagt að jafnmargir hefðu orðið frá að hverfa. Sætið kostaði 3 dollara. Samsöngurinn Iiófst með því, að hljóðfærasveitin spilaði præludium mikið. Á söngskránni voru aðeins gömul lúthersk sálmalög. Þar var: „Gæzkuríki græðari minn,“ „Á Guð alleina,“ „Vaknið, Zions verðir kalla!“ o. fl. Oll voru lögin útsett með afar fögrum raddsetningum og áhrifamiklum. JMest hreif mig þó sálmurinu: „Vakna, Zions verðir kalla.“ Það var eins og ég sæi verðina hlaupa upp á múra Jerusalem við lúðraþyt og vakningarhróp, heyrði gnýinn af fótatökum þúsundanna er verðirnir kölluðu og lýðurinn þaut af stað til að heilsa komandi konungi sínum. Öll versin í hverjum sálmi voru sungin, og sálmarnir voru á söngskránni prentaðir bæði á norsku og ensku. Síðar stóð sálmurinn: „Vor Guð er borg á bjargi traust,“ og voru áheyrendur beðnir að syngja sálminn með standandi. Hljóðfærasveitin lék undir þeim sálmi. Það var í staðinn fyrir orgel. — Ég hef aldrei heyrt slíkan kraft í neinum söng. Það var hrifning. Ég reyndi til að hætta að syngja með til að hlusta, en undir eins varð ég að taka undir aftur og syngja með af öllum krafti. — Mér fannst þetta vera eins og ómótstæðilegt áhlaup á Satan og allt hans veldi. Daginn eftir fóru fram samkomur í Reiðhöllinni og aðstoð- aði hin mikla söngsveit samkomunnar. Allt fór fram með hinni mestu prýði .Annan dag hátíðarinnar var haldin guðsþjón- usta í stærstu kirkju bæjarins. Þar söng aðeins nokknr hluti kórsins, því það var ekki rúm fvrir hann allan. Formaður kirkjul'élagsins stýrði guðsþjónustunni. Þar voru vígðir 33 prestar og stóðu tveir vígsluvottar bak við hvern vígsluþega. I kringum altarið stóðu þannig 99 prestar í skrúða, og sá hundraðasti sá er vígsluna framkvæmdi. Margir af hinum nývígðu áttu að fara sem kristniboðar út í heiðingjalönd. Öll hátíðin var hin veglegasta, sem hugsast gat. Var mér sagt, að hátíðina hefðu sótt 10.000 Norðmenn fyrir utan þá er í Minneapolis og St. Paul voru búsettir. Meðan ég dvaldi í borginni, heimsótti ég marga vini og kunningja íslenzka. Mér var líka boðið að koma á prestastefnu með dönskum prestum, er liéldu þar fund rétt eftir Norðmanna hátíðina. Það var prýðilegur fundur og uppbyggilegur. Flestir voru prestarnir af sömu stefnu sem heimatrúboðið danska. Sumarið 1915. Eftir dvölina í Minneapolis hélt ég norður til Winnipeg og var mér þar vel fagnað af ungum og gömlum vinum. Ég ferð- ast síðan til Islendingabyggðanna og hélt samkomur víða. Eg var vikutíma lijá séra Guttormi Guttormssyni í Churchbridge. Ilann var mjög áhugasamur prestur og lærður vel. Ég ferð- akranes 77

x

Akranes

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.