Akranes - 01.06.1947, Blaðsíða 23
r-
Auglýsing nr. 16,1947
frá Skömmtunarstjóra.
Samkv. 3. gr. reglugerðar um vöruskömmtun, tak-
mörkun á sölu, dreifingu og afhendingu vara, frá 23.
sept. 1947, hefur Viðskiptanefndin ákveðið þær takmark-
anir á sölu á frostlegi á bifreiðar, að seljendum þessarar
vöru skuli vera óheimilt að afgreiða hana, nema hið
keypta magn sé um leið og kaupin fara fram skráð í
benzínbók viðkomandi bifreiðar. Mesta magn, sem ein-
stök bifreið má fá, er sem hér segir:
Fólksflutningabifreiðar fjögra farþega eða minni,
sendiferðabifreiðar hálft tonn og aðrar minni bifreiðar,
hvort heldur eru fólks- eða vöruflutningabifreiðar, 1
gallon.
Takmarkanir þessar á sölu á frostlegi gilda frá og með
deginum í dag og þar til annað verður ákveðið.
Jafnframt er lagt fyrir lögreglustjóra, að þeir, þegar
þeir afhenda nýja benzínbók í skiptum fyrir eldri benzín-
bók, riti í nýju benzínbókina samhljóða athugasemd um
sölu á frostlegi og var í eldri benzínbókinni.
Reykjavík, 9. sept. 1947. '
Skömmtunarstjórinn.
7
Auglýsing nr. 14,1947
frá Skömmtunarstjóra.
Samkv. heimild í 3. gr. reglugerðar frá 23. sept. 1947,
um sölu og afhendingu benzíns og takmörkun á akstri
bifreiða, hefur viðskiptanefndin samþykkt að heimila
lögreglustjórum að afhenda nú þegar benzínbækur fyrir
næstkomandi nóvembermánuð til vörubifreiða þeirra,
sem fengið hafa benzínbók fyTÍr október. Afhending
benzínbóka fyrir nóvember er þó því aðeins heimil, að
umráðamaður bifreiðarinnar færi fyrir það sannanir
með vinnunótum, að notað hafi verið 9/10 eða meir af
októberskammti. Á sama hátt má afhenda vörubifreið-
um benzínbók fyrir næstkomandi desembermánuð, er
nóvemberskammtur er eyddur að 9/10 eða meir, enda
sé það sannað með vinnunótum.
Reykjavík, 8. okt. 1947.
Skömmtunarstjórinn.
Auglýslng nr. 12,1947
frá Skömmtunarstjóra.
Samkv. heimild i 3. gr. reglugerðar frá 23. sept. 1947,
um vöruskömmtun, takmörkun á sölu, dreifingu og af-
hendingu vara, hefur Viðskiptanefndin ákveðið eftir-
farandi:
1. Heimilt er að úthluta vegna stofnunar nýs heim-
ilis (ekki stækkunar eða breytinga) aukaskammt
af vefnaðarvöru og búsáhöldum samtals 1500 kr.
Úthlutunarstjórarnir hafa á hendi þessa úthlutun
og ber þeim að fullvissa sig mn það í hverju ein-
stöku tilfelli, að raunverulega sé um stofnun nýs
heimilis að ræða.
2. Heimilt er að úthluta aukaskammti af vefnðarvör-
mn handa barnshafandi konum fyrir allt að 300
kr. handa hverri, gegn vottorði læknis eða ljósmóð-
ur. Úthlutunarstjórarnir hafa einnig á hendi út-
hlutun þessara aukaskammta.
Reykjavik, 6. okt. 1947.
Skömmtunarstjórinn.
Auglýsing nr. 15,1947
frá Skömmtunarstjóra.
Ákveðið hefur verið, að þannig skuli að farið
með B-reiti af núgildandi skömmtunarseðli í
verzlunum, hvort sem um stærri eða smærri
kaup er að ræða, að sleppt sé verðmæti, sem
ekki nær einni krónu, en 2 kr. reiturinn afhend-
ist allur, þegar þannig stendur á, að verðmætið
fer yfir eina krónu.
Reykjavík, 8. okt. 1947.
Skömmtunarstjórinn.
akranes
83