Akranes - 01.03.1949, Qupperneq 6

Akranes - 01.03.1949, Qupperneq 6
Fjórir Gamlir visímenn. Frá vinstri: Sæmundur Guðmundsson fyrrum Ijósmyndaii. Oddfreður Odds- son, Jón Jónsson og Ólafur Halldórsson frá Síðumúlaveggjum. BYLTING TÍL BATNAÐAR IV. GREIN Rekstiir og ráðlag Það þarf ekki að koma oft á Elliheimil- ið Grund, eða dvelja þar, lengi, til þess að sannfærast um fyrirmyndarrekstur á þessu stóra fyrirtæki, sem svo myndarlega er vaxið úr grasi af engu, eins og þessi grein sannar svo áþreifanlega. Þarna er allt með myndarbrag utanhúss og innan. Regla, umh}'ggja og þrifnaður skipar þar auðsjáanlega virðulegan sess og árangurs- rikan. Eins og áður er sagt, vill Gísli for- stjóri ekki reka neitt lengi með öfugum árangri. Þetta sannar bezt yfirlit það. sem hér fer á eftir: Tekjurnar hafa skipzt undanfarin 2 ár þannig: 1946 1947 Kaupgreiðslur ......... 27,09% 26,58% Matvæli .............. 40,41— 36,21— Hiti og ljós 3P7— 4.22— Hreinlætisv. og lyf . . . , 1,66— 1,80— Viðhaldskostnaður . . . . 11,56— 10,06— Annar kostnaður 2,91 — 2,64— Opinber gjöld 0,85— i,77— Vaxtareikningur 3,93— 2,30— Varasjóðstillag 2,49— 5-30— Fyrningar 4,62— 7,76— Regstrarhagnaður . . . . 1,31- i,37— 100,0% 100,0% Allar hlutfallstölur, sem forstjórinn sjálfur getur haft nokkur áhrif á, fara sílækkandi. Það er t. d. eftirtakanlegt, að opinber gjöld — á þessu fyrirtæki, sem þó ber ekkert útsvar, — ha'kka, á einu ári eins og hér má sjá um meira en 100%. Það er enn eitt talandi tákn um, að rétt er — og hin mesta þörf — að stinga þar við fæti. Það er athyglivert á ársreikningi lyrir síðasta ár 1947, að heimilið græðir á rekstr- inum í heild sinni yfir 24 þúsund kr.. Auk þess, sem þá er búið að leggja í varasjóð yfir 90 þús. kr., og afskrifa af húseign og áhöldum yfir 137 þús. kr. Það græðir á hverjum lið, sem rekinn er í sambandi við heimilið. Á þvottahúsi, búrekstri og heildarrekstri heimilisins. Ef Gisla væri ekki af ýmsum orsökum varnað frekara olnbogarúms, teldi hann auðvelt að lækka fljótlega verulega mánaðargjöld vist- manna. Stjórn Elliheimilisins. Slíkt starf, sem stjórn Elliheimilisins hefur þannig tekið að sér og unnið frá upphafi, er mikilla þakka vert. Því frem- ur, sem það er unnið sem áhugastarf — kauplaust — en þó af einlægni og eldmóði. Enda þótt mest hvíli það á herðum for- stjórans, byggist það vitanlega líka mikið á stjórn þess og sérstaklega á því, hvernig samstarfið og samvinnan er milli stjórnar og forstöðumanns. Það hygg ég að vera muni með ágætum, enda eru allir menn- irnir, sem hlut eiga að máli, ’ valinkunnir menn, sem um áratugi hafa offrað tíma, fé og starfskröftum í þágu mannúðar og menningarmála á þessu, eða öðru félags- málasviði. 1 sambandi við þetta starf. slær sr. Sigurbjörn Á. Gíslason öll met á þessu landi. Virðist hvorki áhugi hans né starfs- orka vera farin að láta á sjá. Á síðastl. sumri fór hann t. d. til Skotlands, til þess að sitja þar alþjóða Biblíufélagsfund, svo og kristilegt mót í Danmörku og Svíþjóð. f þessari sömu ferð fór sr. Sigurbjörn einnig til Finnlands, en þar hefur liann unnið merkilegt mannúðarstarf. Er það fólgið i þvi, að hann hefur verið milli- göngumaður um að Islendingar gæfu með fátækum heimilislausum börnum. En það er kunnugra en frá þurfi að segja, hve hin finnska þjóð fór hörmulega út úr striðinu við Rússa. kenna, ekki aðeins af Akureyringum, held- ur alþjóð. Þetta sýnir ljóslega hvað hægt er að gera, þar sem af áhuga og einlægni er gengið til starfs. Reynslan mun sanna, að flest börn er hægt að „hertaka" á þenna hátt, ef þau eru látin sjálfráð, eða hvött af foreldrum til slíkrar þátttöku. Að sumu leyti eiga prestarnir nú hægra um vik en áður að sinna kristilegu unglingastarfi. I mörgum tilfellum mun og vera hægt að fá kennara til samstarfs, eins og reynslan sýnir ljóslega á Akureyri. I hinum stærstu bæjum hefur og verið létt á prestunum með því að létta af þeim húsvitjunarkvöð- inni. Ýmsir hafa talið það tjón fyrir kirkju og kristindóm,’þar sem þær hafi verið sér- stítkur tengiliður milli prestsins og heim- ilanna. Þar sem svo stendur á, væri það þvi vel þegið, ef prestarnir vildu gera tilraun til að fylla það skarð, með því að tengjast heimilunum á ný með þáttöku i kristilegu unglingastarfi. Sú reynsla, sem fengist hefur á Akureyri með fyrirmyndar- starfi sr. Péturs Sigurgeirssonar, sýnir vel þörfina og þýðingu þessa mikilvæga starfs. Það sýnir hin mikla sókn barnanna og þakklæti foreldranna til sr. Péturs. AUt i sambandi við þetta starf á Akur- eyri er svo fullkomið og með miklum myndarbrag, svo vel skipulagt, að það tekur af öll tvímæli um, að þarna er unnið af eldlegum áhuga og ríkum skilningi á mikilvægi starfsins. Ég vona, að aukin störf og umsvif hins unga prests vaxi ekki svo mikið frá því sem nú er, að hann geti ekki áfram um langan tíma leitt þetta merkilega byrjenda starf sitt. Vona einn- ig, að sá árangur sem þegar hefur náðst, safni saman góðu fólki honum til aðstoð- ar, svo að ekki þurfi nein lægð að mynd- ast vegna anna prestsins, því alltaf Ijölg- ar fólkinu þar eins og annars staðar. Með ýmsu móli má koma prestunum hér til hjálpar, ef ráðandi menn og hugs- andi í sóknunum, skilja hina miklu þýð- ingu, sem handleiðsla kirkjunnar getur haft á hina ungu þjóðfélagsborgara. 0. B. B. 30 AKRANES

x

Akranes

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.