Akranes - 01.03.1949, Side 23
ÁFENGISVERZLUN RÍKISINS
hefur einkasölu á:
★ BÖKUN ARDROPUM,
★ ILMVÖTNUM,
★ HÁRVÖTNUM OG
★ ANDLITS V ÖTNUM.
Ennfremur hefur hún einkarétt til fram-
leiðslu á þessum vörum hér á landi. —
Verzlanir, rakarastofur og snyrtistofur
snúi sér þvi til vor, þegar þær þurfa á þess-
um vörum að halda. —
ÁFENGISVERZLUN RÍKISINS
H.F. EIMSKIPAFÉLAO ISLANDS
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Hlutafélagsins Eimskipafélag Islands, verður haldinn í fundar-
salnum í húsi félagsins í Reykjavik, laugardaginn 4. júní og hefst kl. 1 y2 e. h.
DAGSKRÁ:
1. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og framkvæmdum á liðnu starfsári, og
frá starfstilhöguninni á yfirstandandi ári, og ástæðum fyrir henni, og leggur fram
til úrskurðar endurskoðaða rekstursreikninga til 31. desember 1948 og efnahags-
reikning með athugasemdum endurskoðenda, svörum stjórnarinnar og tillögmn til
úrskurðar frá endurskoðendum.
2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skiptingu ársarðsins.
3. Kosning fjögra manna í stjórn féiagsins, í stað þeirra, sem úr ganga sam-
kvæmt félagslögum.
4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess er frá fer, og eins varaendurskoðanda.
5. Tillögur til breytinga á reglugjörð Eftirlaunasjóðs H.f. Einmskipafélags ísl.
6. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp kunna að verða borin.
Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og umboðsmönnum
hluthafa á skrifstofu félagsins í Reykjavík, dagana 1. og 2. júní næstk. Menn geta
fengið eyðublöð fyrir umboð til þess að sækja fundinn á aðalskrifstofu félagsins
í Reykjavík.
Reykjavík, 9. febrúar 1949.
STJÓRNIN.
'
AKRANES
47