Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2004, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2004, Síða 2
2 FÖSTUDAGUR 2. APRlL 2004 Fréttír DV Útgáfufélag: Frétt ehf. Útgefandi: GunnarSmári Egilsson Ritstjórar: lllugi Jökulsson MikaelTorfason Fréttastjórar: ReynirTraustason Kristinn Hrafnsson Kristján Guy Burgess DV: Skaftahlíð 24, Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 515 7599 - Ritstjórn: 550 5020 - Fréttaskot: 550 5090 Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsing- ar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Setning og umbrot: Frétt ehf. Prentvinnsla: ísafoldarp'rentsmiðja DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagna- bönkum án endurgjalds. Hvað veist þú um Thors- ættina 1. Hvað hét upphafsmaður ættarinnar og frá hvaða landi kom hann? 2. Hvað hét útgerðarfélag ættarinnar? 3. Hvar var kúabú ættföður- ins? 4. Hvaða fræga einkennis- merki hugðist ættfaðirinn nota fyrir útgerðarfélag sitt en gaf það öðrum? 5. Hvað hét eiginkona ætt- föðurins? Svör neðst á síðunni Fleiri Svíar til Kosovo Sænska Aftonbladet styður þá ákvörðun sænsku ríkisstjórnarinn- ar að senda 500 her- menn ___ »0111» tíl Kosovo. Það væri ómóralskt að styrkja ekki lið Svía í héraðinu þar sem róstur hafa blossað upp að nýju undanfarið. Leiðarahöf- undur lýkur lofsorði á frammistöðu Svía og Frakka sem fóru á veg- um Sameinuðu þjóð- anna til Kongó í fyrra. Fimmtán sænskir her- menn særðust þegar þeir lentu í miðju steinkasts og skotbardaga á dögun- um og telur blaðið að herinn sé vel í stakk búinn til að axla aukna ábyrgð í Kosovo þrátt fýir þessi áföll. Hippiló Málið Á flökti okkar um orða- bækurýmiss konarrák- umst við í gær á fallegt orð sem við hijótum að vekja athygli á. Það er orðið„hippiló" sem birtist í Orð- sifjabókÁsgeirs Blöndals og þótt við höfum aldrei heyrt það fyrr mun það vera nútímaíslenska yfír „stelputáta". Orðið er sagt líklega samsett úr„hyppa" sem þýðir„óþæg og síóró- leg sauðkind" (og vísar til „hyppinn"sem þýðir upp- stökkur) og svo„ló"sem er einföld smækkunarend- ing. Við mælum með þessu orði. Lína langsokkur er t.d. greinilega dæmigerð hippiló. I.Thor Jensen, Danmörku - 2. Kveldúlfur - 3. Korpúlfsstöðum - 4. Þórshamar (haka- kross) Eimskipafélagsins - 5. Margrét Þor- björg (Kristjánsdóttir). Við erum ekki á verði "W Tið verðum að skilja eðli hryðjuverka til l/ aðgetavariztþeim.Brýnteraðátta W sig á, að þau eru ekki bundin við átakasvæði. Þeim getur lostið niður hvar sem er. Við megum heldur ekki gleyma hættunni af að vera aðilar að krossferð trú- arofstækis Bandaríkjanna gegn áhangend- um íslams. Flestir skilja, að hryðjuverk geta blómstrað án aðildar óvinarlkja. Bandaríkin voru illa undir 11. september búin, af því að rflds- stjórnin var með ríkið írak á heilanum, en ekki hreyflnguna A1 Kaída. Eftir hryðjuverk- ið héldu Bushítar áfiram að leita að rótum þess í herráði Saddam Hussein. Einnig ber að forðast að skilja A1 Kaída á sama hátt og oklcur hættir til að skilja það, sem við köllum Mafíu. í báðum tilvikum sjá menn fyrir sér miðstýrð samtök um skipu- lagða glæpi. Réttara er að líta á fyrirbærin sem svipaða hugmynda- og aðferðafræði laustengdra glæpaflokka. Ekki er til nein ein mafía, heldur margar mafíur, sem sumar hafa með sér meira eða minna tfmabundið samkomulag um skipt- ingu svæða og verkefna, en eiga ekki sjaldn- ar í erjum innbyrðis um þessa skiptingu. Þar af leiðandi hefur ekki verið hægt að sigra mafíur með því að fella mafíukónga. A1 Kaída er ekki heldur félagsskapur, sem lýtin: einum húsbónda, Osama bin Laden, og herforingja hans, Ajman Al-Sjavari. Hópur þeirra telur aðeins nokkur hundruð manns. Hins vegar hafa tugþúsundir ungra manna gengið í skóla, sem meira eða minna byggj- ast á hugmyndum ff á Osama bin Laden. Þessar þúsundir skólagenginna hryðju- verkamanna leika lausum hala víða um heim og þjálfa nýja fylgismenn. Krossferðin gegn múslimum hefur magnað hatur þeirra á vestrinu, einkum Bandaríkjunum, og leitt til flóðs ungra manna í námskeið í hryðju- verkum, sem talin eru eina vopnið gegn hernaðarmætti. Róm féll ekki fyrir öðru heimsveldi, heldur fyrir meira eða minna ótengdum hópum barbara, villimanna, sem höfðu meira út- hald en heimsveldið. f nútímanum hafa slík- ir hópar barizt áratugum saman, Kína- kommar, Víetnamar, Sandínistar, Afganar, Palestínumenn, Tsjetsjenar. Sumir þeirra hafa náð árangri. Aðferðaffæði hryðjuverkamanna er orðin háþróuð og byggist á sambandsleysi milli hópa, svo að þræðimir milli þeirra verði ekki raktir. Hóparnir eru tifandi tíma- sprengjur hver í söiu horni. Osama bin Laden veit ekki sjálfur, hvar höggið ríður næst á Vesturlöndum. Hann deyr, en að- ferðin liflr. Við þessar aðstæður er út í hött að treysta á heimsóknir bandarískra flugsveita og lamb- húshettulið ráðherra dómsmála. Hvort tveggja jafngildir því, að við erum alls ekki á verði. Jónas Kristjánsson 'O Q. CL O) c (V <v 'O Apríl-gabb hjá Ríkislögreglustjora ÞAÐ V0RU FLEIRI en fiölmiðlarnir sem freistuðu þess að láta fólk hlaupa apríl í gær. Einu vel heppn- uðu apríl-gabbi fréttum við af sem átti sér stað á Skúlagötu 21 í Reykja- vík en það er nýtt hús sem að utan er kyrfilega merkt Ríkislögreglustjóra en reyndar eru Haraldur Johannes- sen og félagar alls ekki þeir einu sem nýta húsið. Þar er til dæmis stofnun brunamálastjóra til húsa, ennfremur félagsmálastofnun, ein auglýsinga- stofa og ef til vill einhver fyrirtæki önnur. Og aUnokkur fjöldi fólks vinnur í húsinu. ÞEGAR FÓLK K0M tU vinnu í gær- morgun beið bréf frá húsfélaginu þar sem kynntar voru nýjar húsreglur sem alliryrðu að hlíta. Vegna þess að við lifðum í viðsjárverðum heimi og þar sem Ríkislögreglustjóri hefði bækistöðvar í húsinu og æda mætti að hann og hans embætti gætu orðið skotmörk einhvers óþjóðaiýðs yrði að stórauka eftirlit í húsinu. Myndavélar sem festar hafa verið upp á göngum eru þegar allnokkrar í húsinu, einkum á efstu hæðinni þar sem Haraldur og menn hans halda sig og hefur eftirlitið innanhúss nú þegar orðið ýmsum tU nokkurs ama. En nú tUkynnti húsfélagið að til að auka öryggið enn frekar við þær hættulegu aðstæður sem ríktu í ver- öldinni yrðu allir starfsmenn í hús- inu nú að fara þegar í stað og láta taka af sér fmgraför svo bera mætti þau saman við fingraför allra ann- arra sem kæmu í húsið. Og ekki nóg með það, heldur ættu aUir líka að fara í augnskönnun, en það mun vera nýjasta nýtt í eftirUts- bransanum og felst í því að ley- sigeislar skanna á fólki augun svo óumdeUanlega sé hægt að bera kennsl á fólk - því engir tveir menn hafa alveg eins augu eins og aUir hljóta að vita. HEIMILDIR 0KKAR HERMA að starfs- menn í húsinu hafi í unnvörpum látið blekkjast af þessu aprU-gabbi og fregnirnar hafi vakið heilmikla úlfúð innanhúss. Sumir munu að vísu hafa tekið þessu eins og hverju öðru hundsbiti og þegar í stað gefið sig ffam á efstu hæðinni, hjá RUds- lögreglustjóra, fil að láta taka af sér fingraförin og augnskanna sig, en aðrir vUdu rotta sig saman og mót- mæla þessari ff eklegu innrás í einka- líffólks. Nóg væri nú eftirlitið samt, þó þetta bætúst ekki yið. ÞAÐ KU REYNDAR VERA vera hið UM SÍÐIR K0MST UPP að bréfið ffá húsfélaginu var ekkert annað en apr- U-gabb en þá munu________________ flestir hafa láfið ElkM.. ‘M B blekkjast um lengri eða skemmri tíma. Ekki höfum við ör- uggar heimUdir fyr- ir því hver eða hverjir hafi verið _____ upphafsmenn að I þessu vel heppnaða aprU-gabbi en böndin eru óneitan- lega sögð berast að auglýsingastof- unni f húsinu þar sem Einar Karl Haraldsson fyrrverandi ritstjóri er meðal starfsmanna. Þá er sagt að Björn Karlsson brunamálastjóri hafi verið með í gabbinu og hafi hann gengið reffileg- ur um ganga og hvatt fólk eindregið tU að drífa nú í því að láta taka af sér fingraför. En það herma heimildir líka að Haraldi á efstu hæðinni hafi ekki ver- ið mjög skemmt. hafi verið með l gabbinu og hafi hann gengið reffilegur um ganga og hvatt fólk eindregið til að drífa núí því að láta taka af sér fingrafj^ ^ Útvarpsmenn eyðileggja apríl-göbb ■STWIUU WUnetL ■ Kemar«d*g og d* mir i hfðókeppm i Austurtne Skjár einn meá sarnning: Keppt í Idol ■íftl Skjár einn hefur trycet «ér r\" >1 Sirnon Cnwdl Kcmur tll landsini; I FURÐU 0KKAR VAKTI í gær hvernig út- varpsmenn virtustleggja sig alla fram um að eyðUeggja daginn bæði fýrir almenn- ingi og ekki síður öðrum fjölmiðlum, eða jafnvel sínum eigin. í gær var eins og aU- ir vita nú fýrsó aprfl, þegar siður er að gabba fólk ,og þar sem það er jú sjálfur tUgangur dagsins þykir okkur sem fóUc eigi ekki aðeins að reyna sjálft að gabba einhverja, heldur líka láta af- skiptalaust þegar það verður vitni að tUraunum annarra tíl að gabba fólk. Aprfl-göbb af ýmsu tagi mátti finna í öUum dagblöðunum í gærmorgun, ís- land í bítið á Stöð 2 var með sitt eigið gabb snemma morguns og þegar kom fram á daginn komu stóru fréttastofum- ar á útvarpsstöðvunum til skjalanna. Og loks um kvöldið tróðu fréttastofur sjónvarpsstöðvanna upp með sitt gabb. EN STRAX f M0RGUNSÁRIÐ byrjuðu út- varpsmenn að benda landsmönnum leynt og ljóst á það hvaða dagur væri og eiginlega hálfpartinn að vara fólk við apr- fl-göbbum í fjölmiðlunum. Við gátum ekki séð tflganginn með þessu, annan en þann að eyðUeggja saklausa skemmtun fýrir öðrum, bæði þeim sem ætluðu að reyna að láta aðra hlaupa apríl og þeim sem hugsanlega hefðu látið blekkjast. Okkur finnst að fjölmiðlarnir ættu að sjá sóma sinn í því að vekja ekki sjálfir þvílíka athygli á þessum degi. Og skiljum ekki hvað útvarpsmönn- unum gekk tU, nema þeir hafi talið sig þurfa að sanna fyrir hugsanlegum hlustendum sínum hvað þeir sjálfir væru snjallir að hafa ekki látið blekkjast. ; Bruce Spring- 1 steen á Islandi HIJVN kunni handu- rfrdci ldnli»tarma Fyrst og fremst mikla eftirlit í þessu húsi Rfldslög- reglustjóra sem kveikti hugmyndina að aprfl-gabbinu og kunnugir herma að rótin að því hafi verið óánægja með það effirlit. Megi meira að segja - ef menn vflja - skoða aprfl-gabbið sem eins konar mótmæli gegn tU- hneigingu Haraldar og félaga hans tU að fjölga sífeUt myndavélum í húsinu og auka annað eftirlit.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.