Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2004, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 2. APRÍL 2004
Fréttir TfV
Fráleit kaup Helgi Birgisson hrl. skiptastjóri í þrotabúi hjónanna Þorsteins V. Þórðarsonar og
á Símanum KristínarTryggvadóttur hefur kært þau til auðgunarbrotadeildar lögreglunnar
„Við sjálfstæðismenn
höfhum því algerlega að
Orkuveitan ljái
máls á því - á einn
eða annan hátt - að
fjárfesta í Símanum
eins ogAIfreð Þor-
steinsson hefur
sagst vera að íhuga
í framhaldi af við-
ræðum sem hann hefur átt
við áhugasama fjárfesta,"
segir Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson, oddviti sjálf-
stæðismanna í borgar-
stjórn. Vilhjálmur segir
hugsanlega þátttöku Orku-
veitunnar í kaupum fjár-
festa á Símanum af ríkinu
hafa verið rædda í borgar-
stjórn í gær. „Þetta er frá-
leitt enda tel ég að það sé
ekki nokkur stuðningur við
þetta innan R-listans. Al-
freð segir að ekki sé búið að
taka neina ákvörðun sem
þýðir þá að málið er í skoð-
un. Þetta mál þarf hins veg-
ar enga skoðun. Þegar
svona erindi berast er hægt
að segja strax að það komi
ekki til greina," segir Vil-
hjálmur.
Reyndu að stinga
fjórum milljnnum krnnn
undnn brotabúinu
Auðgunarbrotadeild lögreglunnar í Reykjavík hefur nú til með-
ferðar kæru á hendur hjónunum Þorsteini V. Þórðarsyni og
Kristínu Tryggvadóttur fyrir að hafa reynt að stinga fjórum millj-
ónum króna undan þrotabúi Þorsteins.
Það er skiptastjóri þrotabúsins,
Helgi Birgisson hrl., sem lagði fram
kæruna í árslok 2002. Sökum anna
og mikils málafjölda hefur auðgun-
ardeildin ekki komist til að rann-
saka þessa kæru en það verður
væntanlega gert á næstunni.
Töluvert hefur verið fjallað um
þetta mál í DV undanfarna tvo daga
í kjölfar viðtals við hjónin Þorstein
og Kristínu sem sögðu farir sínar
ekki sléttar af samskiptum sínum
við Helga Birgisson og töldu hann
hafa tekið of háa þóknun fýrir
vinnu sína. Á móti bendir Helgi á að
þóknun sín nái yfir 5 ára
vinnu hans við skipt-
in. Á skiptafundi
þann 30. mars
sl. var þar að
auki bókað eft-
ir lögmanni ^^4
þeirrahjóna að
þau teldu sig
ekki hafa fjár
hagslega
hagsmuni af
því að reka
ágreiningsmál
um þóknun
skiptastjórans.
Meðal annarra sem hlut eiga að
máli hér er Gunnar Jónsson hrl.
sem Þorsteinn hefur kært til úr-
skurðarnefndar Lögmannafélags-
ins en Gunnar dró upp samning
sem gerður var milli Þorsteins og
kröfuhafa um að ekki yrði geng-
ið á helmingshlut eiginkonu
hans vð uppgjör þrotabús-
ins. Gunnar hefur sagt í DV
að hann hafi ekki þungar
áhyggjur af þessari kæru.
að nafnverði 5 milljónir kr. á fast-
eign sína Fannafold 21.
Með dómi Hæstaréttar í desem-
ber 1998 var Þorsteinn dæmdur til
að greiða LSÁ 55 milljónir kr. auk
vaxta og málskostnaðar vegna
þeirrar háttsemi sem hann var sak-
felldur fyrir 1996. í framhaldi af því
höfðaði LSÁ mál fyrir héraðsdómi
og gerði kröfu um gjaldþrotaskipti á
hendur Þorsteini. Krafa sjóðs-
ins nam þá rúmum 74
milljónum kr.
Sem fyrr segir var
auðgunarbrotadeild
lögreglunnar send
kæra á hendur þeim
hjónum í árslok
2002 fyrir skfiasvik.
Taldi skiptastjóri að
fyrrgreint
skuldabréf hefði verið gefið út til
málamynda í þeim tilgangi að
skjóta undan eign þeirra Fannafold
21 við gjaldþrotið. í september í
fyrra staðfesti svo Hæstaréttur dóm
héraðsdóms um að skuldabréfið
hefði verið gefið út til málamynda
og í þeim tilgangi gert að koma einu
eign þrotabúsins undan til bróður
Kristínar.
I janúar í ár er svo málið enn og
aftur komið til kasta Hæstaréttar
þar sem dómurinn staðfestir dóm í
héraði um að hafna beri kröfu
Kristínar um að fá hlutdeild þrota-
búsins í söluverði Fannafoldar 21.
Málinu lýkur svo með fyrrgreindum
skiptafundi þann 30. mars sl. Nið-
urstaðan er sú að upp í rúmlega 77
milljón kr. kröfur í búið fengust
greiddar um 2,5
milljónir kr. eða
rúmlega 3%.
Saga malsins
I grófum dráttum er saga
málsins í réttarkerfinu sú að í
apríl 1996 var Þorsteinn V.
Þórðarson dæmdur af
Á: Hæstarétti í 12 mán- A
aða fangelsi fyrir jgm
umboðssvik og ■[
fjárdrátt úr sjóðum
f Lífeyrissjóðs
r. starfsmanna
J Áburðarverk-
smiðjunnar ifc'
(LSÁ). Ári seinna SBBglm
eða í júlí 1997
þinglýstu hann og Mm
kona hans hand- h
hafaskulda- JpBS
t m bréfi s_________________
Helgi Birgisson
hrl. Hefur kært
Þorstein tii auðg-
unarbrotadeildar
lögreqlunnar.
Gunnar Jónsson
hrl. Hefurekki
þungar áhyggjur
af k.vru n hendur
Krydda ekki heilbrigt kynlíf
Viagra dregur úr frjósemi
Ungir karlmenn sem taka Viagra
til að hressa upp á bólfarirnar geta
átt á hættu að verulega
dragi úr getu þeirra til að
stofna fjölskyldu. Þetta er
ISíwtSWi. meðal þess sem vísinda-
menn við Queen-háskól-
ann í Belfast hafa komist
að. Að þeirra sögn ættu
ungir og hressir menn að
hugsa sig tvisvar um
Háöur en þeir taka inn
stinningarlyf - enda að
nauðsynjalausu þegar heilbrigðir
karlar eiga í hlut.
Rannsóknin sýnir að Viagra getur
beinlínis hafa skaðleg áhrif á sæðið.
Þrátt fyrir að sannað sé að lyfið hafi
örvandi áhrif á sæðisfrumurnar og
þær verði virkari er það ekki endi-
lega ákjósanlegt. Tímasetningar eru
mikilvægar í þessu samhengi: þá er
átt við að hjálmurinn sem er stað-
settur framan á höfði sæðis-
frumunnar örvist of snemma og sé
ekki virkur þegar hann á að „brjót-
ast“ inn í eggið og frjóvga það.
Simpsons í
verkfall
16. serían um Simpsons-
ijölskylduna, sem nú er í
vinnslu, gæti verið hætt
kominn vegna launakrafna
leikaranna. Sex af helstu
leikurum seríunnar heimta
nú næstum því þrisvar
sinnum hærra kaup og
neita að mæta til vinnu
nema kröfum þeirra verði
framfylgt. Ef Fox-sjón-
varpsstöðin lætur undan
mun kaup þeirra hækka úr
tæpum 200 milljónum upp
í um það bil 500 milljónir
króna á ári. Verða þeir þar
með á hærri launum en
jafnvel hæst launuðustu
sjónvarpsleikararnir í
Bandaríkjunum í dag.
Skelfing greip um sig
Dró upp hníf
á skólalóð
Boðar nýtt
póstkerfi
Netfyrirtækið Google
vinnur að undirbúningi
tölvupóstþjónustu sem
verður ókeypis. Nýi tölvu-
pósturinn, sem
kallast G-mail, s-* - ,a I ar
ersvarfyrir- VJtA
tækisins við
tölvupóstþjónustu sam-
keppnisaðilanna Yahoo og
Microsoft. Pósturinn hjá
Google er sagður ýmsum
kostum búinn, svo sem
miklu meira geymslurými
en tíðkast hjá öðrum. Hver
notandi á að geta geymt
um 500 þúsund tölvubréf á
sínu svæði. Tölvupóstkerfið
er enn í þróun en verður að
finna á slóðinni
www.gmail.com á Netinu
innan tíðar.
„Það liggur mikiö á en við erum að nálgast hálfleikinn í undirbúningi fyrir keppnina, " segir
Sveinn Rúnar Sigurðsson, höfundur framiags isiendinga til Eurovison sem fram fer i maí.
„Hiutverk lagahöfundar er að sjá um allan rekstur á dæminu; gefa út geisladisk, skipuleggja
og þar fram eftir götunum. Hópurinn ætlar að koma saman um helgina og hlusta á
hin lögin f keppninni. Þetta er gríðarleg vinna og mér sýnist að maður gæti endað á heilsu-
hælinu í Hveragerði þegar þetta er búið."
Ellefu ára drengur dró upp hníf á
skólalóð Ölduselsskóla í Breiðholti í
gær, yngri nemendum til skelfingar:
„Við náðum ekki drengnum því
hann fór heim en við lítum málið að
sjálfsögðu alvarlegum augum og
tökum á því á morgun," segir Daníel
Gunnarsson, skólastjóri í Öldusels-
skóla. „Þarna var um vasahníf að
ræða sem drengurinn opnaði og á
það litu börnin sem hótun og urðu
hrædd," segir skólastjórinn.
Daníel Gunnarsson lítur ekki svo
á að grípa verði til sérstakra ráðstaf-
ana vegna þessa atburðar eða ann-
arra sem upp hafa komið. Langt í frá
sé að líkja megi ástandinu við það
sem þekkist víða í skólum í Banda-
ríkjunum: „Þar er búið að girða
Úr Ölduselsskóla Drengurmeð hniffór
heim eftir að hafa skelftyngri börn á skóla-
lóðinni.
skólalóðir af og verðir standa í hlið-
um. Sem betur fer er ástandið hjá
okkur ekki neitt í líkingu við það.“
Skólastarf í Ölduselsskóla hélt
áfram eins og ekkert hefði í skorist
eftir atburðinn en í skólanum eru
um 600 nemendur.