Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2004, Side 12
12 FÖSTUDAGUR 2. APRÍL 2004
Fréttir DV
Vínveitingar
settar á bið
Borgarstjórn tók á fundi
sínum í gær ekki undir
samþykkt borgarráðs
frá því á þriðjudag um
vínveitingaleyfi í Eg-
ilshöll. Mótmæli bár-
ust frá íþróttahreyf-
ingunni eftir að borg-
arráð samþykkti til-
lögu Þórólfs Árnason-
ar borgarstjóra um vínveit-
ingaleyfi fyrir Sportbitann í
Egilshöll. Borgarstjórn
ákvað í ljósi þess að vísa
málinu aftur til borgarráðs
svo flnna á nýja og viðun-
andi lausn fyrir alla aðila.
Gæta verður að jafnræðis-
sjónarmiðum gagnvart
veitingaaðilum og taka tillit
til viðhorfa innan íþrótta-
hreyfingarinnar um óæski-
lega blöndun áfengra
drykkja og íþróttaiðkunar.
Listrænn
þjófur
Lögreglan á Selfossi
rannsakar nú innbrot
sem átti sér stað í Slipp-
félagið Litaland í bænum
f síðustu viku. Sá sem
braust inn hafði á brott
með sér málningartrön-
ur, liti og fleira sem
tengist listmálun. Að
sögn lögreglu var engu
öðru stolið í þessu inn-
broti en verslunin selur
einkum almennar máln-
ingarvörur. Enn sem
komið er liggur enginn
undir grun en gera má
ráð fyrir að góss þjófsins
þrengi hóp grunaðra.
Lyfin talin
kosninga-
brella
Heilbrigðisyflrvöld í
Suður-Afríku hafa að und-
anförnu
dreift alnæm-
islyfjum til
sjúklinga,
þeim að
kosmaðar-
lausu. Lyfja-
gjöfmni hefur víða verið
fagnað en stjórnarandstæð-
ingar hafa bent á að að-
gerðin sé kosningabrella
enda ekki nema hálfur
mánuður til kosninga.
Landsíminn
„Viö erum meö Færeyska daga
I gangi hjá okkur núna og það
er mikið fjör á þeim að venju,"
segir Kristinn Jónasson bæjar-
stjóri Snæfellsbæjar.„Þannig er
aö margir Færeyingar komu
hingað á árun-
um 1950til
1960 og sumir þeirra ílengdust
eins og gengur og gerist, eink-
um i Ólafsvík. Þetta fólk ákvað
svo að efna til Færeyskra daga
1998 og við höfum haldið
þeim sið síðan. Við eigum von
á mörgum gestum að venju
en dagskráin samanstendur
afýmsum færeyskum
skemmtikröftum og þetta er
svona allt á þjóðlegu nótun-
um. Isumar munum við I bæj-
arstjórninni svo heimsækja
vinabæ okkar I Færeyjum,
Vestmanna, og endurgjöldum
þá væntanlega greiðann."
Andrezej Kunowski hefur um árabil gengið undir nafninu „pólska skrímslið“. Það
þykja orð að sönnu því Kunowski hefur síðustu þrjá áratugi nauðgað og misþyrmt
fjölda stúlkna. Breskir dómstólar bundu í gær enda á hroðalegan glæpaferil þessa
manns með því að dæma hann í ævilangt fangelsi.
Þrjátíu ára ferill
nauðgara endaði
með skelfilegu morði
„Ég vona að hann brenni í helvíti," sagði Zaklina Koneva þegar
dómur var kveðinn upp í London yfir Andrezej Kunowski, 48 ára
Pólverja. Kunowski var fundinn sekur um að hafa nauðgað og
myrt dóttur Koneva, Katerinu, sem var aðeins tólf ára.
Glæpur Kunowskis er
hroðalegur en það sem gerir
söguna enn óhugnanlegri er
að þessi maður hefur leikið
lausum hala síðustu þrjátíu
árin og notað tímann til að
nauðga ungum stúlkum víða
í Evrópu. Hefur Konowski
gengið undir nafninu
„pólska skrfmslið" og er það
síst ofmælt þegar saga hans
er skoðuð.
Katerina litla Koneva var
myrt á heimili sínu í
Katerina Koneva
Hún var nýkomin
heim úr skóla þegar
hún varð fyrir árás
Kunowski. Hún lifði
árásina ekki af.
Hammersmith í Vestur-
London í maí árið 1997. Katerina var
nýkomin heim úr skólanum og for-
eldrarnir báðir í vinnu. Konowski
ruddist inn á heimilið og réðist að
Katerinu litlu. Hann brá snæri um
háls hennar og þrengdi að um leið
og hann misbauð stúlkunni kyn-
ferðislega. Katerina lá meðvitundar-
laus á stofugólfinu þegar faðir henn-
ar kom óvænt heim. Kunowski lagði
þegar í stað á flótta og Trajce Koneva
sá í hælana á honum þar sem hann
stökk út um glugga. Katerinu varð
ekki bjargað og lést hún skömmu
síðar.
Ógnaði sex ára með öxi
Mál Kunowskis hefur vakið gríð-
arlega athygli £ Bredandi ekki síst
fyrir þær sakir að hann var eftirlýst-
ur f heimalandi sfnu. Honum tókst
hins vegar að fá landvistar-
leyfi í Bretíandi með því að
framvísa fölsuðum pappfr-
um um að hann væri portú-
galskur. Sakaferillinn heima
í Póllandi er langur en
Kunowski hefur verið sak-
felldur fyrir að nauðga 21
konu á aldrinum 10 til 27
ára, einu sinni fyrir að
nauðga karlmanni, sex sinn-
um fyrir tilraun til nauðgun-
ar og einu sinni fyrir tilraun
til morðs þegar hann ógnaði
. sex ára fórnarlambi með öxi.
Zaklina Koneva tárfelldi þegar
hún horfði á fangaverðina leiða
Kunowski á brott eftir dómsupp-
kvaðninguna. Hún sagði að sér væri
engin huggun í lífstíðardómi - hún
óskaði þess eins að Kunowski myndi
þjást hverja mínútu það sem eftir
væri lífsins. „Ég skil ekki hvernig
þessi maður komst inn í landið. Það
er eitthvað að kerfi sem veitir slfkum
mönnum landvistarleyfi." Ummæli
Koneva eru reyndar mjög í takt við
umræðuna í Bretíandi um innflytj-
endamál. Ráðherra í þeim mála-
flokki sagði af sér embætti í gær;
einmitt vegna ásakana um að alltof
margir útíendingar kæmust inn í
landið á fölsuðum skilríkjum.
Sjálfur sýndi Kunowski engin
svipbrigði þegar dómurinn var
kveðinn upp. „Ég væri að bregðast
Kynferðisbrotamaður og morðingi Yfirmaður rannsóknarlögreglunnar í London segir
Kunowski vera einhvern miskunnarlausasta og afkastamesta kynferðisbrotamann sem hann
hefur komist í tæri við.
skyldu minni ef ég léti ekki múra þig
inni það sem eftir er ævinnar,“ sagði
Peter Beaumont dómari.
Alltaf sleppt úr fangelsi
Lögregla hefur undanfama mán-
uði rannsakað mál Kunowskis og
talið er að fórnarlömbin séu jafnvel
miklu fleiri. „Hann er líklega hættu-
legasti og afkastamesti kynferðis-
brotamaður sem orðið hefúr á vegi
mínum," segir David Littíe, yfirmað-
ur rannsóknarlögreglunnar í
London.
Kunowski, sem ólst upp í litlum
bæ skammt ffá Varsjá í Póllandi, var
fyrst dæmdur fyrir nauðgun árið
1973. Honum tókst tvisvar að flýja úr
fangelsi eftir að hafa í hvort skipti
hlotið 15 ára fangelsisdóm. Árið
1978 nauðgaði Konowski fimmtán
konum á m'u mánaða tímabili. Árás-
ir hans voru afar ofbeldisfullar og
hann hálfkyrkti fómarlömbin í öll
skiptin. Hann var fangelsaður í kjöl-
farið en sleppt árið 1991. Fjórum
ámm síðar var.hann fundinn sekur
um að hafa nauðgað tíu ára stúlku
og tveimur eldri stúlkum. Honum
var fljótlega sleppt úr fangelsi vegna
mjaðmaaðgerðar. Þá flúði hann til
Bretíands og hélt úppteknum hætti
sem endaði með hinu skelfilega
morði á Katerinu Koneva.
Senda sínu fólki hvatningarbréf
Atlantsolía er með ódýrasta dropann
Hryðjuverk verða ekkiliðin
Múslimskir leiðtogar í London hafa
sent út ákall til sinna manna um að
aðstoða í baráttunni gegn hryðjuverk-
um. Ákallið kemur í kjölfar þess að átta
menn vom handteknir í London,
gmnaðir um að hafa haft meiriháttar
sprengjutilræði í bígerð. Áttmenning-
arnir em allir með breskt ríkisfang en
eiga það sameiginlegt að vera af paki-
stönskum uppmna. Haft var eftir inn-
anrfkisráðherra Spánar að einn mann-
anna tengdist hryðjuverkunum í Mad-
rid en að öðm leyti er talið að hópur-
inn sé ekki beintengdur við hryðju-
verkasamtökin Al-Kaída.
Moskur í London sem og annars
staðar á Bretlandi hafa verið hvattar til
að veita liðsinni í leitinni að hryðju-
verkamönnum. Igbal Sacranie, sem er
háttsettur innan breska múslimaráðs-
ins, segir að í bréfinu sé bent á mikil-
vægi þess að fólk sé á varðbergi sem
aldrei fyrr. „Við líðum ekki hryðjuverk
Ákall Öllum moskum hefur verið sent bréf
frá mústimaráðinu breska þar sem hvatt er til
samstöðu i baráttunni gegn hryðjuverkum.
og ef við komumst að einhverju þá er
það skylda okkar að gera lögreglu við-
vart,“ segir Sacraine meðal annars í
bréfinu.
Tony Blair, forsætisráðherra Breta,
kvaðst í gær fagna bréfasendingunni.
„Hryðjuverkaógnin snertir hvert ein-
asta heimili og gerir ekki greinarmun á
múslimum og öðmm.“
Samræmd bensín-
verðhækkun
„Þetta er gömul saga og
ný, þessi þrjú félög em nú
sem oftar samstíga í hækk-
irnum," segir Runólfur
Ólafsson, ifamvæmda-
stjóri Félags íslenskra
bifreiðaeigenda um
hækkun ESSO, Olís og
Skeljungs á verði á eldsneyti í gær.
„Það virðist vera meiri samkeppni,
félögin hafa verið að draga niður
álagninguna, þrátt fyrir gengisþróun
dollars og hækkun á heimsmarkaðs-
verði,“ segir Runólfur. „Það sýnir sig
að það er möguleiki á að bjóða vör-
una með mismunandi álagningu,
það sjáum við hjá Atíantsolíu. Neyt-
endur á höfuðborgarsvæðinu geta
með því að snúa sér til þeirra sem
bjóða ódýmstu vöruna sparað í
rekstri bifreiða sinna og haft
áhrif á markaðinn."
Olíufélögin þrjú hækkuðu
h'trann af bensíni, dísilolíu,
gasolíu, flotaoh'u og skipaol-
íu um 3 kr. Nú kostar h'trinn
af 95 oktana bensíni 103,70 á
þjónustustöðvum og h'trinn af
díseloh'u 46,10. kr. í sjálfsafgreiðslu á
höfuðborgarsvæðinu þar sem aflsátt-
urinn er 5 kr. kostar bensírtíítrinn nú
98,70 kr. og lítri af olíu 41,10. Á stöð
Atlantsolíu kostar lítrinn af bensíni
92,50 krónur og dísilolíu 35 krónur.
Á stöðvum Bensínorku á höfuðborg-
arsvæðinu og Akureyri kostar lítrinn
af bensíni 97,40 kr. og dfsillítrinn
39,80 kr.