Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2004, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2004, Blaðsíða 19
:! DV Sport FÖSTUDAGUR 2. APRÍL 2004 J 9 Smith fer ef Leeds fellur Alan Smith hefur tjáð forsvarsmönnum Leeds að hann muni yfirgefa félagið ef þeir falla í 1. deild. „Ef við endum í 1. deildinni þá er klárlega kominn tími fyrir mig að söðla um. Ég á um lítið annað að velja ef ég vU eiga möguleika á að spUa fyrir enska landshðið," sagði Smith sem hefur verið mjög hliðhollur félaginu í gegnum aUar þær raunir sem þeir hafa lent í undan- farna mánuði. „Ég veit ekki hvað gerist ef við höldum okkur uppi en ég útiloka alls ekki að spila áfram fyrir félagið. Ég hef alltaf vUjað spUa fyrir Leeds og ég elska félagið." Erf itt að halda í Forssell Stan Lazaridis, leik- maður Birmingham, segir að það sé nauð- synlegt fyrir félagið að halda í Finnann Mikael ForsseU en játar jafnframt að það verði mjögerfitt. Skalengan undra þar sem hann hefur farið á kostum í vetur og skorað 16 mörk í deUdinni. Hann er í láni ffá Chelsea. Meiðsli hjá Arsenal Það er mjög ólíklegt að Ashley Cole og Gfiberto SUva geti leikið með Arsenal gegn Man. Utd í bikarnum á laugardag vegna meiðsla. Báðir eru ffekar Ula haldnir og það er ekki heldur víst að þeir nái að leika gegn Chelsea í MeistaradeUdmni í næstu viku. Góðu fréttirnar eru þó að WUtord er mættur aftur. Radebefer hvergi Suður-Affíkumaðuf- inn Lucas Radebe verður áfram hjá Leeds United næsta vetur sama hvort liðið faUi eður ei. Félagið hefur ákveðið að bjóða honum nýjan samning þótt hann sé orðinn 34 ára gamaU og hafi verið meiddur meira og múma síðustu ár en hann hefur til að mynda aðeirts ieikiö típ leUö - ..^jír Leetfy ívetiir. JÍádebe færeinnig.- ágóðaleik á næsta ári en hann hefur verið hjá félaginu síðan 1994. Það er alls óvíst hvar Ólafur Ingi Skúlason leikur knattspyrnu næstu árin. Samningur hans við Arsenal rennur út í sumar og hafa þeir boðið honum nýjan samning sem Ólafur er ósáttur við. Hann segir að hugurinn leiti heim og ef hann komi heim sé ekkert víst að hann leiki með Fylki. lilboð Arsena o Ólafur Ingi hefur verið í herbúðum ensku bikarmeistaranna frá því hann var 18 ára en hann varð 21 árs í gær. Samningurinn sem Arsenal hefur boðið Ólafi er sá sami og hann er með núna. Það er Ólafur mjög ósáttur við. Hann segist vera tilbúinn að koma heim á nýjan leik og hefur umboðsmaður hans verið í sambandi við nokkur félög hér heima. Ólafur segir það alls ekki öruggt að hann leiki með uppeldisfélagi sínu Fylki, ákveði hann að koma heim. „Þei vilja bara bæta við ári við núverandi samning sem ég var mjög ósáttur með og því gerði ég þeim gagntilboð sem ég bíð nú eftir að þeir svari," sagði Ólafur Ingi í samtali við DV Sport í gær. „Ég vil komast á lán allt tímabilið ef ég skrifa undir hjá þeim í stað þess að leika með varaliðinu. Ég veit ekkert hvað þeim finnst um það. Ég er í það minnsta ekkert ánægður með að vera á sama samningi og ég skrifaði undir þegar ég var 18 ára. Tilboðið olli mér vonbrigðum og mér fannst ekki vera mikil meining með því. Það er samt mjög flott að vera boðinn samningur hjá Arsenal og við erum bara tveir eða þrír í þessum hópi sem eru boðnir nýir samningar. Ég spila reglulega með varaliðinu og hef fengið tækifæri með aðalliðinu þannig að mér finnst ág eiga meira skilið," Fyrirspurnir frá Ítalíu Ólafur er opinn fyrir því að spila annars staðar en í Englandi. Hann segist aftur á móti frekar vilja koma heim en spila áfram á sama samningi hjá Arsenal. „Það hefur lítið gerst í mínum málum. Það hafa komið einhverjar fyrirspurnir frá neðri deildarliðum á Englandi sem og frá Ítalíu en ekkert meira en það. Ef ekkert breytist vil ég frekar koma heim,“ sagði Ólafur Ingi sem mun ekkert endilega leika með Fylki eins og margir hafa eflaust átt von á. KR sýnir áhuga „Ég fer ekkert endilega í Fylki. Heldur bara með því liði sem sækist mest eftir því að fá mig. Ef eitthvað lið sýnir mikinn áhuga og vill fá mig meira en Fylkir og þarf á mér að halda þá skoða ég það mjög alvarlega," sagði Ólafur og bætti við að aokkur félög hér heima væru húin að setja sig í samband við umboðsmann hans. Samkvæmt heimildum DV Sports er KR eitt þeirra liða sem rennir hýru auga til Ólafs Inga og við „Ég mun frekar koma heim en að taka ein- hverju skítatilboði frá liði í 2. deild á Englandi. Ég sé enga ástæðu til þess að djöfla sér út í einhverjum kraftabolta hérna í2. deildinni" spurðum Ólaf að því hvort hann vildi spiía með íslands- meisturunum. „Ef ég teldi að þeir kæmu með rétta tilboðið fyrir mig og teldu sig þurfa á mínum kröftum að halda og sýndu það í máli og verki þá myndi ég vel íhuga það.“ Hugurinn leitar heim „Það styttist í að maður verði að taka ákvörðun og ég mun nota þennan mánuð til þess að skoða mín mál. Ég get ekki neitað því að hugurinn leitar heim. Ég ætla ekkert að fara að hanga hérna úti óánægður bara til þess að vera í atvinnumennsku. Svo eru aðstæður líka orðnar mjög góðar heima og mun skemmtflegra en áður var. Ég mun frekar koma heim en að taka einhverju skítatilboði ffá liði í 2. deild á Englandi. Ég sé enga ástæðu til þess að djöfla sér út í einhverjum kraftabolta hérna í 2. deildinni á meðan maður getur verið heima hjá íjölskyldunni, farið í skóla og spilað fótbolta,“ sagði Ólafur Ingi Skúlason. henry@dv.is vonbrigöum Heiðmar Felixson í erfiðri stöðu þessa á Spáni þessa dagana Stralslunder nennti ekki að bíða Samningur Heiðmars við Bida- soa rennur út í sumar en sökum slæmrar fjárhagsstöðu getur félagið ekki boðið honum nýjan samning strax. Þýska úrvalsdeildarfélagið Stralslunder bauð Heiðmari samning á dögunum sem Heiðmar dró að svara og í miliitíðinni sömdu þeir við annan leikmann. „Þetta var nú ekkert sérstaklega spennandi dæmi þannig að ég er ekkert sár yfir því að það hafi ekki gengið upp,“ sagði Heiðmar í samtali við DV Sport J gær. * „Ástæðan’fyfir þvf að ég dró, að svara þeim er sú að ég váj fuflreyna hvort ég fái ekkí samning við BidaSoa. Hér Uöur mér og mirmi fjölskyldu mjög vel. Þeir vilja gera við mig samning en geta ekki gert það strax etjda eru þeir að leita að nýjum styrktar- aðilum,“ sagði Heiðmar. Þrátt fyrir það er hann búinn að senda þeim drög að nýjum samningi sem hann vonast til að fá svar við fljótlega. „Maður bara að frumkvæði og sýna að maður vilji vera áfram. Þeir bjartsýnir á að ná lgndingu í sínum málum fijótlega og vonandi klárum við málið í kjölfarið.” henry@dv.is verður taka Framtíðin óráðin Heiðmar fer ekki til Stralslunder. Hann vill vera áfram á Spáni og biður eftir að Bidasoa greiöi úrslnum málum. Defoe Ijósið í myrkrinu Ungstirnið lermain Defoe var ljósið í myrkrinu hjá Englending- um gegn Svíum. Það er jafn vel talið að ffammistaða hans í leiknum hafi fleytt honum til Portúgals. „Hann stóð sig virkilega vel og ég var hrifixm af því sem ég sá,“ sagði Sven-Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englands: „iiann sýndi að hann getur gert góða hiiiti í alþjóða- bolta og að hann er mjögíekn- ískur. Hann er hraður og veit hvar markið er. Ég er rnjög hrifinn af honum." I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.