Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2004, Blaðsíða 25
ÐV Fókus
MIÐVIKUDAGUR 28. APRlL 2004 2S
■s.
togi Davíi) Oddsson
Davíð tekur Öryrkja
bandalagið í fóstur
Herra Davíð Oddsson
las upp úr Davíðskveri fyr-
ir börnin í Davíðsborg á
dögunum. Talsmaður
leiðtogans segir að börn-
um sé hollt að lesið sé fyr-
ir þau, þótt ekki sé nema
nokkrar línur, úr ritum
meistarans áður en þau
eru lögð til hvílu.
„Davíð er besti vinur
barnanna," sagði Kristrún
Pálsdóttir leikskólakenn-
ari við blaðamenn eftir að
lestrinum lauk. Að sögn
svifu börnin á skýi eftir að
hafa legið við fótskör
meistarans. Foreldrar
þeirra segja að nú borði
þau allan matinn sinn og
fari alltaf að sofa á réttum
tíma.
Hinn ástsæli leiðtogi þjóð-
arinnar Davíð Oddsson hefur
tekið öryrkjabandalagið í fóst-
ur. Ákvað leiðtoginn þetta í
gær, stuttu eftir kvöldverð á
sumarsetri sínu á Þingvöllum.
Formaður Öryrkjabandalags-
ins hefur þegar lýst þakklæti
sínu og vottað ákvörðun leið-
togans virðingu.
í ávarpi sem leiðtoginn hélt
á Þingvöllum í gærkvöldi, sagði
hann meðal annars:
„Þeir sem erfiði og þunga
eru hlaðnir skulu verða mín
böm. í hugskoti mínu em
margar vistarvemr og þar eiga
þeir líka að eiga athvarf sem
vart geta sig hrært. í framtíð-
inni verður öllum öryrkjum séð
fyrir hádegisverði á fimmtu-
dögum og mun ég þá sjálfur
snæða með þeim. Megi sú mál-
tíð veita hinum smæstu bræðr-
um okkar og systrum styrk. Ör-
yrkjar em mitt mál," sagði hinn
ástsæli leiðtogi á grasbalanum
við þjóðargrafreitinn á Þing-
völlum þar sem hann hélt tölu
sína. Ekki voru aðrir viðstaddir
og talaði leiðtoginn beint til
himins. Undir lék öxará.
Leifitogi vor Davfö Oddsson I
kvöld mun hinn ástkæri leiðtogi
vor, herra Davið Oddsson,
ávarpa þjóð sina. Eru Islending-
ar beðnir um að slökkva á öllum
viðtækjum, hvort sem það eru
sjónvörp eða útvörp, og halla
sér aftur og loka augunum. Þið
munið heyra, þið munuð sjá.
Davíð Oddsson Öryrkjareru mitt
mál - Ipfar hádegisverði á fímmtu-
dögum.
Öryrkjar rísa á fætur Á siðasta aðalfundi Öryrkjabandalags Islands risu öryrkjar
á fætur og hylltu leiðtogann.
Undirrót allra lasta
ágirndin kölluð er.
Frómleika frá sér kasta
fjárplógsmenn ágjarnir,
sem freklega elska féð,
auði með okri safna,
andlegri blessun hafna,
en setja sál í veð.
DavíO Oddsson
Klauf ör eins og Hrói höttur
Okkar ástkæri leiðtogi
David Oddsson heiðraði
mót Bogfimisambands
íslands með nærveru
sinni á dögunum. Hann
i þvertók fyrir að taka
þátt i keppninni, enda
| auðsýnt að slíkt væri
g ósanngjarnt gagnvart
v venjuleg-
1 um ^
mönnum, sem ekki hafa
sömu hæfileika í bogfimi
og leiðtoginn. Það kom
lika á daginn þegar Davíð
fékk að taka i boga sigur-
vegarans, Péturs Gunnars-
sonar, þá klaufhann sig-
urör hans í tvennt. Áhorf-
endur voru agndofa og
risu á fætur og klöppuðu
samfleytt i 45 minútur.
Snorri Sturluson 2
samtímans i ■ ■ ~
Nú hafa visindamenn loksins komist að þvi
sem flestir íslendingar hafa vitað árum
saman: Herra Davið Oddsson er kominn i
beinan karllegg afSnorra Sturlusyni. Það
sem kom visindamönnum við Háskóla ís-
lands á sporið voru sú áhrifsem Davið hef-
ur haft á islenskar bókmenntir með sögum
sínum - sem þeir segja heimsbókmenntir af
besta tagi og iraun miklu merkilegri en
griska goðafræðin eða Biblia þjóðkirkjunn-
ar sem lógð var niður fyrr á árinu. Vísinda-
mennirnir vilja einnig taka það skýrt fram
að leiðtogi þeirra og faðir, Davíð Oddsson,
skyggir svo um munar á forfoður sinn,
Snorra Sturluson, sem var ekki raunveru-
legtskáld heldur skráði bara hiður sam-
tima sinn, sem var miklu ómerkilegri en
samtimi herra Daviðs Oddssonar.
„I nágrannalöndum okkar horfir fólk til ís-
lands öfundaraugum. Að eiga jafnstórt
skáld sem leiðtoga," sagði Mörður Árna-
son, formaður visindanefndarinnar en með
honum i nefndinni eru dr. Hannes Hólm-
steinn Gissurarson og dr.Jakob F. Ásgeirs-
son. Þeir eru báðir staddir i opinberri sendi-
för til Kina en nýverið gerði ísland samning
við þetta lýðræðisriki um að gefa út rit
meistarans iþremur milljónum eintaka.
*
K
r