Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.02.1970, Side 14
2
TÍMARIT VFl 1970
Umræður í Verkfræðingafélagi íslands um
MARKMIÐ OG LEIDIR
# Félag okkar er úrelt
• l\lúverandi fundarform er ekki fullnægjandi
# Stórátaks er þörf í eftirmenntun
• Tímaritið gerir lítið gagn í núverandi formi
Fullyrðingum sem þessum var varpað
fram á ráðstefnu, sem Verkfræðingafélag
íslands gekkst fyrir 22. apríl og 29. apríl.
Fyrri daginn var þátttakendum ráðstefn-
unnar skipt í átta umrœðuhópa og voru
6—9 þátttakendur í hverjum hóp. Verkefni
fyrri ráðstefnudagsins var einungis að safna
saman athugasemdum frá þátttakendum
um þau atriði, sem betur mœttu fara í fé-
lagsstarfsemi verkfrœðinga og í störfum
þeirra.
Ekki var ætlazt til að menn rökstyddu þá
athugasemdir sínar, heldur skyldu menn gefa
hugmyndafluginu lausan tauminn, og varpa fram
sem flestum hugmyndum.
Allar hugmyndirnar voru skráðar af riturum
hvers hóps um sig. Vikuna á milli fund-
anna notaði undirbúningsnefndin til að flokka
hugmyndirnar og var síðan skrá yfir þær
lögð fram síðari ráðstefnudaginn, 29. apríl,
on þá var ráðstefnan haldin á Hótel Sögu. Var
nú ærið að vinna, því listinn yfir hugmyndirnar
fyllti tólf fjölritaðar síður, en hann er birtur hér
á eftir. Fyrri hluti þess tíma, sem til umráða var,
var notaður til að fara yfir listann í umræðu-
hópunum, sem skipað hafði verið í fyrir fyrri
fundinn. Að sjálfsögðu var hér um svo umfangs-
mikið verkefni að ræða, að hver hópur gat ekki
farið yfir nema brot af hinum mikla lista. Því
var það ráð tekið í öllum hópunum að fara eink-
um yfir þá málaflokka, sem áhugi var helzt á í
hverjum hóp. Að lokinni tveggja tíma um-
ræðu um hugmyndirnar í hópunum, var valinn
einn maður úr hverjum hóp til að draga saman
TILEFNI OG TILGANGUK
ráðstefnunnar voru í fundarboði orðuð svo:
„Örar þjóðfélagsbreytingar um þessar
mundir knýja á rnn það, að staða verkfræð-
ingastéttarinnar sé endurskoðuð. Á þetta
jöfnum höndum við um starfsskilyrði og
hagsmuni verkfræðinga, verkfræðifyrir-
tækja og áhrif verkfræðingastéttarinnar í
þjóðfélaginu almennt. Draga verður í efa,
að VFÍ í núverandi mynd sé það félagslega
afl, sem vera þarf til að mæta nýjum að-
stæðum, og er því ástæða til að kalla sam-
an verkfræðinga til að safna hugmyndum
þeirra og skapa vettvang til umræðna um
nýskipan félagsmála stéttarinnar.“
Eins og kemur fram í meðfylgjandi grein
hefur þetta nú verið gert. Það verður nú
hlutskipti félagsstjómar að fylgja eftir og
framkvæma þær hugmyndir, sem að vel at-
huguðu máli reynast raunhæfar og fram-
kvæmanlegar.
Hugmyndaflugsformið á ráðstefnunni
reyndist með ágætum. Er hæpið, að með
öðrum hætti sé unnt að virkja tugi félags-
manna með þeim árangri, sem fékkst: 510
hugmyndir frá 53 félagsmönnum á 2% klt.
Þessrnn línum fylgja þær óskir til félags-
stjómarinnar, að henni reynist veganestið
kjamgott og drjúgt.
Sveinn Bjömsson,
form. ráðstefnunefndar.