Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.02.1970, Side 26
14
TÍMARIT VPl 1970
Alþjóðleg fjarhitunarráðstefna
í London.
Dagana 20.—25. apríl s.l. var haldin f jölmenn
ráðstefna í London um fjarhitun, lst Inter-
national District Heating Convention London
1970.
Þrír íslendingar sóttu ráðstefnuna, verkfræð-
ingarnir Jóhannes Zoega og Gunnar Kristinsson
frá Hitaveitu Reykjavíkur og Karl Ómar Jónsson
frá Fjarhitun h.f. Jóhannes og Gunnar lögðu
fram erindi á ráðstefnunni, The Reykjavik
District Heating System.
Fjarhitunarkerfi, sem kynnt eru frá stórum
stöðvum, eiga sér alllanga sögu. Það var þó ekki
fyrr en eftir lok síðari heimsstyrjaldarinnar að
verulegur skriður komst á byggingu slíkra kerfa.
I V-Evrópu hefur á síðari árum risið upp mikill
fjöldi fjarhitunarkerfa, einkum í Danmörku og
Svíþjóð. Að heildarafli eru Sovétríkin þó fremst,
því þar eru nú um 90% af heildarvarmaafli allra
fjarhitunarkerfa í heiminum. 1 Danmörku er nú
hinsvegar búið að leggja fjarhitun í nærri 20%
af öllu íbúðarhúsnæði, en 4% í Svíþjóð, en þar
hefur varmaafl stöðvanna tvöfaldast á hverjum
f jórum árum síðustu tvo áratugina.
Orkuverð fjarhitunarkerfanna er víða nokkuð
yfir því verði, sem fengist með sérkyndingu, en
aukið öryggi, hreinlæti og umfram allt minni
mengun andrúmsloftsins gerir það að verkum
að menn kjósa í vaxandi mæli f jarhitun.
Alþjóðaráðstefna um ísvandamál
haldin í Reykjavík í haust.
Dagana 7.—10 september í haust verður hald-
in í Reykjavík alþjóðleg ráðstefna um ís og áhrif
íss á mannvirki. Þessi ráðstefna verður haldin á
vegum International Association for Hydraulic
Research. Miðstöð þessara alþjóðasamtaka er í
Delft í Hollandi, en tilgangur þeirra er að efla
vökva- og rennslisrannsóknir, fræðilegar jafnt
sem hagnýtar. Samtökin voru stofnuð árið 1935
og hafa til þessa gengizt fyrir 14 alþjóðlegum
ráðstefnum. Til þess að geta unnið skipulegar að
ofangreindu markmiði samtakanna hafa fjórar
tæknilegar undirnefndir verið stofnaðar:
1. Committee on Hydraulic Machinery, Equip-
ment and Cavitation.
2. Committee on Ice Problems.
3. Committe on Maritime Hydrauli cs.
4. Committee on Flow through Porous Media.
Á síðari árum hafa verkfræðingar í fjölmörg-
um löndum orðið að glíma við æ fleiri og mikil-
vægari verkefni þar sem áhrifa íss gætir mjög
mikið. Þetta stafar fyrst og fremst af því að
menn hafa fært bústaði sína, atvinnutæki, sigl-
ingar o. fl. æ nær heimskautunum til að nýta
auðævi og möguleika þessara héraða. Þetta hef-
ur krafizt nýrrar tækni og aukinnar þekkingar.
Tilgangur þessarar ráðstefnu er að ná saman
sérfræðingum frá sem flestum löndum til að ræða
lausn ísvandamála við tæknileg verkefni af ýmsu
tagi. Þetta er fyrsta alþjóðaráðstefnan, sem hald-
in er um þetta efni.
Efni ráðstefnunnar er að sjálfsögðu mjög
mikilvægt fyrir okkur Islendinga. Vafalítið eru
það ísvandamál Búrfellsvirkjunarinnar og þær
ráðstafanir, sem gerðar hafa verið til að mæta
þeim vanda, sem hafa ráðið mestu um val fund-
arstaðarins fyrir þess ráðstefnu. Þó hefur það
væntanlega einnig ráðið miklu að Island er að
ýmsu leyti mjög heppilegur staður fyrir slíkar
ráðstefnur vegna legu landsins.
Fundir ráðstefnunnar verða haldnir í Haga-
skóla. 120 verkfræðingar og aðrir sérfræðingar
hafa tilkynnt þátttöku sína og 65 tæknileg er-
indi hafa verið lögð fram í tilefni ráðstefnunnar.
Jóhann Hafstein, iðnaðarmálaráðherra, mun
setja ráðstefnuna 7. september og lýkur henni
10. sept. Næsta dag verður svo ráðstefnugest-
unum boðið að skoða Búrfellsvirkjunina.
Fjögurra manna nefnd hefur unnið að undirbún-
ingi ráðstefnunnar, en nefndina skipa:
Sigmundur Freysteinsson, formaður,
dr. Gunnar Sigurðsson,
Jónas Elíasson,
Páll Theodórsson.
Til þess að gefa frekari hugmynd um verk-
efni ráðstefnunnar skal birtur hér listi yfir nokk-
ur erindi, sem kynnt verða á ráðstefnunni (þar
á meðal öll íslenzku erindin):
Sigurjón Rist (ísland), — Ice conditions in
Thjorsa river system.
Björn Kristinsson (Island), — Ice monitoring
equipment.
K. Ohashi (Japan), — Flow measurements of
ice covered rivers in Hokkaido.
Sigmundur Freysteinsson (Island), — Heat
exchanges and frazil formation.
G. P. Williams (Kanada), — Heat exchanges
and board ice cover formation.
R. O. Ramseier (Kanada), — Formation of
primary ice layers.
Gunnar Sigurðsson (Island), — Designing the
Burfell project for ice conditions.