Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.02.1970, Page 28
16
TlMARIT VFl 1970
ingin og ferðatíminn miklu máli, en ísótópamæl-
ingin gefur nákvæma vitneskju um hvorttveggja.
Enda þótt mælingar sem þessar séu mjög dýrar,
eru þær notaðar í vaxandi mæli við rannsóknir
af þessu tagi.
Eins og drepið er á hér að framan skipta lífs-
skilyrði fyrir gerla og veirur í sjónum miklu
máli. Því er nauðsynlegt að kanna þessi atriði
ítarlega jafnhliða straummælingunum með
geislavirka bróminu. Ennfremur er fylgzt með
sjávarstraumum í langan tíma á nokkrum ná-
lægum stöðmn til þess að unnt sé að glöggva sig
á hvernig hin almennu straumskilyrði voru þeg-
ar ísótópakönnunin var gerð.
Gert er ráð fyrir að þessar mælingar taki um
hálfan annan mánuð, en niðurstöður þeirra munu
vart berast fyrr en á næsta ári.
Þessi rannsókn er ágætt dæmi um hinar vax-
andi kröfur, sem gerðar eru nú á dögum til und-
irbúnings ýmissa tæknilegra framkvæmda.
Alþjóðleg jöklafræðingaráðsfefna
haldin á íslandi.
Alþjóðleg jöklafræðingaráðstefna var haldin
að Skógum dagana 20.—24. júní á vegum Glacio-
logical Society og Jöklarannsóknafélags Is-
lands. Ráðstefnuna sóttu 19 erlendir fræðimenn
og átta Islendingar. Eftirtaldir menn sóttu ráð-
stefnuna af Islands hálfu: Frá Orkustofnun
Guðmundur Guðmundsson, Guttormur Sigur-
bjarnarson og Sigurjón Rist. Frá raunvísinda-
stofnun Háskólans Sigurður Þórarinsson, Bragi
Árnason, Páll Theodórsson og Þorvaldur Búason.
Frá Rannsóknarstofun Byggingariðnaðarins
kom Sverrir Scheving Thorsteinsson. Auk fyrir-
lestra var farið með mótsgesti í stuttarferðir til
nærliggjandi jökla. Á mótinu voru fluttir margir
mjög fróðlegir fyrirlestrar, en fyrir hina íslenzku
sérfræðinga munu hin persónulegu kynni og við-
ræður þó hafa skipt mestu máli.
Sigurður Þórarinsson sá um allt skipulag móts-
ins hér á landi og leysti hann það verkefni með
miklum glæsileik.
Byggingar, sem lokið var við árið 1968.
Úr skýrslu byggingafulltrúans í Reykjavík.
A. Ibúðarhús: Ferm. Rúmm.
1. Einbýlis- og- tvibýlishús
úr steinsteypu .............. 30.695.3 130.258.
2. önnur íbúðarhús úr steinsteypu 19.721.4 201.741.
3. Einbýlishús úr timbri ........... 2.323.5 7.793.
4. Breytingar og stækkanir á
eldri húsum úr steinsteypu .... 274.8 2.803.
5. Stækkun úr timbri ........... 10.3 143.
Alls 53.025.3 342.738.
B. Félagsheimili, skólar, sjúkrahús o. fl. Ferm. Rúmm.
úr steinsteypu 5.159.6 80.285.
C. Verzlunar- og skrifstofuhús Ferm. Rúmm.
1. úr steinsteypu 2. Aukningar á eldri húsum, 3.969.8 55.962.
úr steini 30.3 3.866.
Alls 4.000.1 59.828.
D. Iðnaðarhús Ferm. Rúmm.
1. úr steinsteypu 6.925.8 51.141.
2. úr stáli 1.107.3 5.227.
Alls 8.033.3 56.368.
E. Birgða- og vörugeymslur. Ferm. Rúmm.
1. úr steinsteypu 7.788.8 59.396.
2. úr stáli 1.380.4 6.261.
Alls 9.169.2 65.657.
F. Bílskúrar, geymslur, o. fl. Ferm. Rúmm.
1. úr steinsteypu 6.708.7 22.078.
2. úr timbri 403.2 971.
Alls 7.111.9 23.049.
4. Breytingar og stækkanir á
eldri húsum úr steinsteypu .... 274.8 2.803.
5. Stækkun úr timbri .......... 10.3 143.
Skipting íbúða eftir flokkum.
A 1. A 2. A 3. A 4. Alls
1 herbergi og eldhús 13 13
2 — 1 162 2 165
3 — 7 202 1 210
4 — 19 198 23 240
5 — 105 32 137
6 — 71 71
7 — 26 26
8 — 7 7
9 — — — 2 2
Alls 238 607 23 3 871
Meðalstærð íbúðar í flokki A 1 er 547 rúmm., í flokki
A 2 er hún 332 rúmm. og í A 3 er hún 339 rúmm. Meðal-
stærð nýbyggðra íbúða á árinu er þvi ca. 391 rúmm., eða
41 rúmm. stærri en árið 1967.
Alls hefur verið lokið við að byggja á árinu 86.499.4
ferm., eða 627.925. rúmm, er skiptast þannig:
úr steinsteypu .... 607.530. rúmm.
úr timbri.............. 8.907. —
úr járnl ............. 11.488. —
Samtals ............. 627.925. rúmm
1 smíðum nú um áramótin eru 1087 íbúðir og eru þar
af 785 fokheldar eða meira. Á árinu var hafin smíði á
366 nýjum íbúöum.
Lokið var við 65 íbúðum meira árið 1968 en 1967, en
hafin smíði á 881 færri íbúðum, en hinsvegar var
heildarmagn af fullgerðum rúmmetrum 109.159 meira
en árið.