Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2004, Síða 2
2 FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST2004
Fyrst og fremst DV
Útgáfufélag:
Frétt ehf.
Útgefandi:
GunnarSmári Egilsson
Ritstjóran
lllugi Jökulsson
Mikael Torfason
Fréttastjórar:
ReynirTraustason
Kristján Guy Burgess
DV: Skaftahlíð 24, Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 515 7599 - Ritstjórn:
550 5020 - Fréttaskot: 550 5090
Ritstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýsing-
an auglysingar@dv.is. - Dreifing:
dreifing@dv.is
Setning og umbrot: Frétt ehf.
Prentvinnsla: ísafoldarprentsmiðja
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagna-
bönkum án endurgjalds.
Hvað veist bú um
1. Með hvaða liði leikur
Patrick Viera?
2. Hvaða stórlið hefur ítrek-
að h'st yfir áhuga sínum á
því að kaupa Viera í sumar?
3. Viera hefur spilað með
þremur liðum í þremur
löndum. Hvaða lið eru það?
4. Hvað hefur Viera leikið
marga landsleiki fyrir
Frakkland?
5. Hvða hefur Viera fengið
mörg gul spjöld í 363 leikj-
um sínum með Arsenal?
Svör neðst á síöunni
Allt það fersk-
asta í hönnun
og arkítektúr
Itarlegur vefur á mannamáli
um hönnun og arkltektúr.Allt frá
sólgleraugum upp I tónlistarhallir.
Vefurinn hefur að geyma upplýs-
ingar um allt það ferskasta f
bransanum, ásamt skemmtilegum
viðtölum við flesta fremstu hönn-
uði og arkftekta heims. Auk þess er
hægtað nálgast upplýsingar um
Vefsíðan
www.designboom.com
samkeppnir sem í gangi eru og
samkeppnisgögn eru oftar en ekki
fáanleg á vefnum. Listi yfir versl-
anir með „designers“-hönnun,
uppiýsingar um hönnunarskóla
um viða veröld, sýnishorn affram-
sækinni hönnun og söguleg ágrip
úr hönnunarsögunni. Aðgengileg-
ur vefur sem gefur góða sýn á allt
það ferskasta sem er að gerast í
hönnun í heiminum i dag.
Öt um trintinn
og trantinn
Málið
I fyrradag mátti lesa hér I Mál-
inu skýringar Guðrúnar Kvaran
á orðalaginu„út um hvippinn
og hvappinn". En hún nefnir llka
á vef Árnastofnunar fleiri I sama
dúr:„En til eru fleiri leiðir tilað
orða merkinguna 'hér og þar, út
um hvippinn og hvappinn'. Sum-
ir tala um að vera út
um trinturog tranta
eða að vera út um
trintinn og trantinn. Algengt
virðist að tala um að vera út um
alla tranta. Oröið trantur merkir
hér'hæð'en karlkynsorðið trint-
ur er skylt orðinu trinta ‘hæðar-
og klettastrýta, klettadrangur'
og virðist aðelns notað íþessu
sambandi. Einnig er notað að
vera út um trissur og tranta og
vera útum tær og trissur. Trissa
er 'hjól meö skoru fyrir taugaö
leika i’. Þá finnast dæmi um að
vera út um skott og skanka og
vera út um torgir og tríssur. Orð-
ið torg, sem langoftast er notað I
hvorugkyni, er þó líka til I kven-
kyni og er myndin torgir þá þol-
fall fleirtölu."
Svörviðspumingum:
1. Arsenal - 2. Real Madrid -
3. AS Cannes (Frakkandi), AC Milan (Ítalíu)
og Arsenal (Englandi) —4. 72-5.94
Einkennileg leynd
U
sssSHsSJSSbSS1 saaftvya r-—,
' ndarlegur er sá úrskurður sem úr-
skurðarnefnd um upplýsingamál
kvað upp nýlega og fól í sér að DV fær
ekki upplýsingar umþað hvaða einstakling-
ar þáðu hæst laun frá ríkinu fyrir nefndaset-
ur á árunum 2000-2002.
Frá þessum úrskurði hefur verið sagt í
blaðinu en grundvöllurinn að neitun nefnd-
arinnar á beiðni DV er fimmta grein upplýs-
ingalaga, þar sem segir: „Óheimilt er að
veita ahnenningi aðgang að gögnum um
einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga,
sem sanngjamt er og eðlilegt að leynt fari,
nema sá samþykki sem í hlut á.“
Hér er um að ræða 328 manns. Hafi
nefndin vújað fara orðrétt eftir lagagrein-
inni hefur henni því borið að hafa samband
við hvem og einn allra þessara einstaklinga
til að spyrja þá hvort þeir samþykktu að DV
fengi upplýsingar um nefndagreiðslur til
þeirra. Það gerði nefiidin ekki. Ugglaust
mætti halda því fram að með því að kanna
ekki hvort þeir gæfu samþykki sitt hafi
nefndin gengið í bága við anda lagagreinar-
innar.
Og DV hefur auðvitað enga möguieika
að sýna fram á að að minnsta kosti einhverj-
ir þessara einstaklinga hefðu ekkert á móti
því að nefndalaun þeirra væm op-
inbemð, þar sem blaðið fær nátt-
úrlega ekki upplýsingar um hverjir
þeir em.
Þá er einkennilegt að nefndin
byggir túlkun sfiia á lagagreininni
á tveimur úrskurðum fyrri nefnd-
ar frá 1997 og 1998. Þeir úrskurð-
ir snemst þó reyndar um allt ann-
ars konar mál en hér er um að
ræða. Úrskurðimirvirðast
reyndar tíndir til fyrst og fremst
til að reyna að styðja einkenni-
lega niðurstöðu nefndarinnar
um að birta ekki nöfii nefiida-
kónganna, sem væri þó mjög í
anda aukfimar og betri upplýs-
ingar um stjómsýslumálefiú.
Meðan rfldð sjálft birtir opin-
berlega skatta og opinber gjöld
allra einstaklinga í landinu,
sem svo sannariega varða
einka- og fjárhagsleg málefni
þeirra, og það án þess að leita á
nokkum hátt eftir samþykki,
þá er leyndin sem hvflir yfir nefnda-
kóngunum þeim mun einkennilegri.
Illugi Jökulsson
rœss’SSvst: SWSSÆsr •“■■■■
•ssfeS?
sssésk-*""™ sgitfitewss I
35sSsS ai
ufli oeMonga
ítt*1*f* •* T
1 -K *****
nrlUr
**»*<<*,
Meydómui* Britney Spears
og jorðgöng gegnum öll Ijöll
ÞAÐ ER AUGLJÓST af vefritunum
sem við gluggum í daglega hve
mönnum er létt yfir því að þurfa ekki
lengur að helga alla sína orku og all-
an sinn tíma fjölmiðlamálinu og alls
konar útkjálkum þess. í dag förum
við rúnt um nokkrar af uppáhalds-
vefsíðunum okkar og gáum að því
hvað fólk finnur sér að skrifa um, nú
þegar því stagli öllu er lokið.
Á MÚRNUM fjallar Katrín Jakobs-
dóttir um meydóm Brimey Spears
en stúlkan sú auglýsti rækilega
framan af ferli sínum hve hrein mey
hún væri en eitthvað hefur sá mey-
dómur rofnað að undanförnu.
Katrín dregur af hátterni stúikunnar
nokkra póstmóderníska lærdóma en
einkum þann að þrátt fyrir allt hafi
viðhorf karla til kvenna breyst sorg-
lega lítið hin síðari árin:
„Konureiga að líta út eins oghór-
ur en vera hreinar meyjar," skrifar
Katrín. „Þær eiga að vera til taks fyr-
irrétta manninn en ekki neinn ann-
an.
Nú kynnu sumir halda að ég sé
að eipa en svo erhreint ekki. Líklega
munu allir karlmenn sem þetta lesa
segja „nei, hættu nú, ég er að
minnsta kosti ekki svona" ó en ég
bið þá að skyggnast innra með sér
og velta því fyrir sérhvort það sé a1-
veg sannleikanum samkvæmt. “
VEF-ÞJÓÐVILJINN sleppir sér hins
vegar ekki út í neina léttúð heldur
skrifar um stefnu forsetaframbjóð-
enda í Bandaríkjunum í mennta-
málum og um stækkun Evrópusam-
bandsins. Þá skammar Vef-Þjóðvilj-
inn bæði Bylgjuna og RÚV (réttilega
að okkar áliti) fyrir að hafa í fréttum
af 40 ára afmæli uppreisnarinnar í
Varsjá ekki látið þess í neinu getið
hvernig Sovétmenn kyntu undir
uppreisn Pólverja gegn Þjóðverjum
en komu þeim síðan ekki til aðstoð-
ar.
Þá getur Vef-Þjóðviljinn ekki stillt
sig um að hnýta í sinn höfuöfjanda
þessa dagana, Ólaf Ragnar Gríms-
son forseta, og þá ósvinnu að hann
skyldi hafa haldið því fram að „þjóð-
in hefðikosið sig“.
Katrín dregur afhátterni Britney Spears
nokkra póstmóderníska lærdóma en einkum
þann að þrátt fyrir allt hafi viðhorfkarla til
kvenna breyst sorglega lítið hin síðari árin.
Fyrst og fremst
Vef-Þjóðviljinn veit betur:
„Ogþarf þá varla að minna á að
þjóðin hefur aldreikosið ÚlafRagn-
ar Grímsson til eins eða neins.
Meira að segja ísumar, eftirátta ára
forsetaferil og engan raunverulegan
mótframbjóðanda, þá naut Ólafur
Ragnar Grímsson aðeins stuðnings
42,45 % kosningabærra manna."
DEIGLAN ER HELDUR EKKI meö
neina léttúð; heldur skrifar um kon-
ur í stjórnum sparisjóða, tilhögun
skattheimtu og skammar Frétta-
blaðið fyrir kjánalega dulbúnar
áfengisauglýsingar.
Á vef ungra framsóknarmanna
stendur enn aðeins þessi setning:
„Maddaman erþvímiður óaðgengi-
legvegna bilunar íhugbúnaði
Maddaman biðst velvirðingar á
uppákomunni" en umrædd „uppá-
koma“ átti sér stað eins og menn
muna þegar skrifari á síðunni þótti
ganga of langt í gagnrýni á sjálf-
stæðismenn í fjölmiðlamálinu.
Á ÖÐRUM FRAMSÓKNARVEF,
Hriflu.is, skrifar Guðjón Ólafur
Jónsson varaþingmaður um vega-
kerfið á Ítalíu og fleira sem hann
hefur komist að í sumarleyfisferð
sinni þar í landi. Skemmst er frá því
að segja að honum þykir vegakerfið
„allgott“. Og segir:
„Hér eru miklar hraðbrautir með
vegatollum og göng í gegnum öil
fjöll."
Og ekki að furða þótt hjarta
framsóknarmannsins gleðjist yfir
þvílíkri framkvæmdasemi í þessu
heimalandi Impregilo.
Þá horfist Guðjón Ólafur í augu
við nýtt líf hins forstokkaða íslenska
áhugamanns um pólitík sem öðlast
nýja sýn í sumarleyfinu:
„Fiesta daga reynir maður hins
vegar að rembast við að gera ekki
neitt. Slekkur jafnvel á símanum og
skilur hann viljandi eftir í íbúðinni,
töltir niður á strönd með konu,
barn ogvindsæng, leigir sér sólbekk
og sólhlífog nýtur þess að láta tím-
ann líða. Það getur hins vegar verið
erfitt að gera ekki neitt þegar hver
einasta stund er nýtt til hins ítrasta
heima við í vinnu, pólitík eða fé-
lagsstörf. Það er hins vegar gott
þegar færi til þess gefst og auðvitað
kærkomið. Ég er jafnvel að hugsa
um að taka mér meira frí þegar
heim erkomið."
ÞETTA ER RÉTTUR ANDI! Koma heim
úr fríi og taka sér strax meira frí.
Megi fleíri íslenskir stjórnmála-
menn hugsa slíkt hið sama.