Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2004, Page 6
6 FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST2004
Fréttir DV
Heimdallur í
sandkassaleik
„Þessi skrif komu mér á
óvart," segir Helga Árna-
dóttir tölvunarfræðingur
sem er í framboði til for-
manns Heimdallar.
Stuðningsmenn Bolla
Thoroddsen halda úti
veffitinu Deiglan.com
þar sem Helga var ný-
lega sökuð um að hafa
átt þátt í kosninga-
svindh síðustu kosninga.
Henni finnst of langt geng-
ið og skrifin ekki félaginu til
góðs; þetta sé sandkassa-
leikur sem hún taki ekki
þáttí.
Ekkertvíní
Bónus
Orri Hlöðversson, bæjar-
stjóri Hveragerðis, vonaði
in fékk hins vegar búðina.
„Ég skil sjónarmið bæjar-
stjórans, hann telur að
verslunarkjarninn fái annan
og skemmtilegri svip ef vín-
búðin verði þar inni,“ sagði
Höskuldur Jónsson, for-
stjóri ÁTVR. „En tilboðið frá
Olíufélagi íslands var lægst
og tilboðið frá Bónus var
hæst.“
Ætlaröu að
fylgjast með
olympíu-
leikunum?
Baröi Jáhanrtsson
tónlistarmaöur
„Aldrei. Afhverju ætti ég að
horfa á ólympiuleikana? Sé
ekki tilganginn með þvi. Ég sé
tilganginn með því aö hreyfa
sig en ég sé ekki tilganginn
með því aö horfa á aðra
hreyfa sig. Það væri eins og að
arka niður I World Class, setj-
ast síðan niður með bjór og
horfa á fólkið svitna á hlaupa-
brettinu. Hljómar frekar
heimskuiega í minum eyrum."
Hann segir / Hún segir
„Já,já, ég ætla meira að segja
að fara. Ég ætla að horfa á
leikana fyrst í sjónvarpinu
hérna heima og svo ætla ég
að fara út og fylgjast með
okkar fólki. Vonandi komast
handboltastrákarnir okkar
lengra en síðast. Ég var á
Ólympiuleikunum í Kóreu og
maður þurfti að klípa sig í lær-
ið til að sannfæra sig um að
maður væri á staðnum. Þetta
erótrúleg upplifun og
skemmtun að fylgjast með
svona stórum leikum."
Ásta B. Gunnlaugsdóttir
rekstrarstjóri og fyrrverandi
knattspyrnukona
Magnús Þór Hafsteinsson, alþingismaður og fiskifræðingur, vill stefna Norðmönn-
um hið bráðasta fyrir Alþjóðadómstól vegna Svalbarðadeilunnar. Segir utanríkis-
ráðherra hafa gleymt hagsmunum við Svalbarða í þeirri iðju sinni að gera íslend-
inga aðila að stríðsglæpum í írak.
Svalbarði gleymdist
vegna íraksstríös
„Yfirgangur Norðmanna á Svalbarðasvæðinu er gersamlega
ðþolandi," segir Magnús Þór Hafsteinsson, alþingismaður
Frjálslynda flokksins, um þá einhliða ákvörðun norskra stjórn-
valda að vísa íslenskum síldveiðiskipum út af Svalbarðasvæð-
inu. Bann Norðmanna tekur gildi á sunnudagskvöld og þá er
viðbúið að norsk herskip sæki að íslenskum fiskiskipum.
Magnús Þór Hafsteinsson Þingmaðurtnn
sem er menntaður fiskifræðingur frá Noregi,
vill draga Norðmenn fyrir dómstóla.
Magnús Þór, sem er menntaður
fiskifræðingur, segir að ekki sé hægt
að koma auga á nein rök þess efrús
að aðrar þjóðir en Norðmenn megi
aðeins veiða 80.000 tonn af sfld á
þessu hafsvæði.
„Þjóðirnar hafa ákveðið síldar-
kvótann og skipt honum á milli sín
og einu gildir hvar þessi sfld er síðan
veidd. Norðmenn hafa heldur engan
yfirráðarétt yfir því sem þeir kalla
fiskverndarsvæðið umhverfis Sval-
barða sem er hvorki meira né minna
en 200 sjómílna hafsvæði allt í kring-
um eyjaklasann. Síðan 1977 hafa
þeir einhliða reynt að drottna yfir
þessu 830 ferkílómetra hafsvæði
sem er stærra en efnahagsiögsaga
íslands (758 ferkílómetrar}. Með
þessu eru þeir að ræna til sín yfir-
ráðarétti á fiskistofnum á þessu
svæði,“ segir hann.
Hann segir að ekki eigi að láta
Norðmenn komast upp með þetta
framferði.
„Það er löngu kominn tími til að
íslensk stjórnvöld spyrni við fótum.
Menn hafa dregið lappirnar í þessu
efni alltof lengi og það er nú að
koma okkur í koll. Utanríkisráð-
herra, sem nú er forsætisráðherra,
virðist hafa talið það mikilvægara að
brölta um í Afríku og Miðaustur-
löndum, og gera okkur aðila að
stríðsglæpum í frak, en að tryggja
hagsmuni okkar í Norðurhöfum
sem hefur um margra ára skeið ver-
ið eitt af okkar brýnustu utanríkis-
málum," segir hann.
Magnús Þór segir að stefna eigi t
Halldór Ásgrfmsson Sagður hafa
gleymt Svaibarða vegna þess hve upp-
tekinn hann var við að tryggja aðild Is-
lands að Iraksstríðinu. Það er á hans
valdi að draga Norðmenn fyrir dóm.
Norðmönnum fyrir Alþjóðadóm-
stóhnn í Haag og fá endanlega á
hreint að hafsvæðið umhverfis Sval-
barða sé alþjóðlegt hafsvæði og að
veiðum þar á að stjórna samkvæmt
úthafsveiðisáttmála Sameinuðu
þjóðanna.
„Gríðarlegir hagsmunir
eru í veði. Á Svalbarða-
svæðinu eru mikil-
vægir fiskistofnar svo
sem rækja, sfld,
grálúða og þorsk-
ur og við eigum
skýlausan rétt á
þessu svæði,“
segir Magnús
Þór.
„Með þessu eru þeir
að ræna tílsm yfír-
ráðaréttí á fískistofn-
umáþessu
svæði.m
Smugudeila Norska strandgæslan er
að gera sig klára til að sækja að íslensk
um slldveiðiskipum á alþjóðlegu veiði-
svæði við Svalbarða. Myndin er frá því
þegar Smugudeilan stóð sem hæst.
Ólöf Breiðfjörð fór á puttanum til Gullfoss
Einstæð móðir er horfin
Björgunarsveitir leituðu í gær að
Ólöfri Aldísi Breiðfjörö Guðjóns-
dóttur, 30 ára einstæðri móður. Ólöf
hvarf af heimili sínu fyrir fimm dög-
um. Hún á tveggja ára barn og býr í
Garðabænum.
„Við erum öll mjög leið yfir
þessu,“ segir nágrannakona Ólöfu
sem býr á hæðinni fýrir ofan hana.
Hún segir Ólöfu mjög rólega og
þægilega konu
og aldrei nein
óregla í kring-
um hana. „Það
eru allir slegnir
yfir þessu. Ég
vona bara að
hún finnist
sem fyrst."
Ólöf A. Breiðfjörð Lögreglan biðural-
menning um upplýsingar.
Lögreglan í Hafnarfirði fer með
rannsókn málsins. Þær upplýsingar
fengust ffá lögreglunni að Ólöf hafi
farið á puttanum frá Rauðhólum og
endað á Giúlfossi. Nú þegar hafa
flestir þeir sem gáfu henni far gefið
sig fram en enn vantar nokkra bita í
púsluspilið.
Einn af þeim stöðum sem Ólöf
kom við á er Þrastalundur. Kona
sem afgreiddi þar á föstudaginn seg-
ist ekki muna eftir henni. Hún bætir
reyndar við að mikið hafi verið að
gera og margir komið við. Starfsfólk-
ið hafi samt spjailað saman en eng-
inn getað komið henni fyrir sig.
Lögreglan í Hafnarfirði biður alla
sem hafa upplýsingar um málið að
gefa sig fram. Sérstaklega ef einhver
hafi gefið henni far frá Gullfossi og í
bæinn. Ólöf er um 175 sentímetrar á
hærð, dökkhærð og með hár rétt
niður á axlir.
Tveir palestínskir vegfarendur létust
Sprengjan falin í bakpoka
Sprengja sprakk nokkur hundruð
metra frá vegatálma í norðurhluta
Jerúsalem í gær. Tveir Palestínu-
menn létust í sprengingunni og tutt-
ugu særðust,
þar af 6 ísra-
elskir
landamæra-
verðir. ísraelsk-
ir embættis-
menn sögðu
fréttamönnum
að klukkutíma
fyrir sprenging-
una hefðu
borist upplýs-
ingar um
palestínskur
sprengjumaður
væriáleið tiljer-
úsalem. ísraelska lögreglan og her-
inn fór í viðbragðsstöðu og settu
upp aukavegatálma nærri Kalandia
Jerúsalem Lögreglumenn
rannsaka verksummerki.
þar sem þúsundir Palestínumanna
fara um daglega. Embættismennirn-
ir sögðu að sprengjan hefði sprung-
ið þegar lögreglu-
maður nálgaðist
grunsamlegan bfl.
Sprengjan var fal-
in í bakpoka sem
var skilinn eftir í
vegarkanti og
telja þeir að hún
hafi verið
sprengd með
fjarstýringu þeg-
ar lögreglumað-
urinn nálgaðist.
Skæruliðar í al-
Aqsa-samtökun-
um, sem eru
klofningsbrot úr
Fatah-hreyfingu Yassers Arafat, hafa
lýst ábyrgð á sprengjutilræðinu á
hendur sér.