Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2004, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2004, Qupperneq 16
76 FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST2004 Sport DV Farnir fyrir tímabilið: Komnir fyrir tímabilið: Chelsea 2002-2003 2001-2002 2000-2001 6. sætl 1999-2000 S.sæti 1998-1999 3. sæti Spá DV: 2. sæti 2003-2004 Deildin (2. sæti) - Bikarkeppnin (5. umferð) Deildarbikar (5. umferð) Liklegt byrjunartið Chelsea Eiður Smári Guðjohnsen Didier Drogba • • Arjen Robben Geremi Frank Lampard Claude Makalele John Terry William Gallas Wayne Bridge Carlo Cudicini Paulo Ferreira Stóra spurningin í vetur & Mourinho ekkeit nema kiafturtnn Jose Mourinho kemur til Englands með mikla pressu á herðum sér. Hann gerði frábæra hluti með Porto á síðustu tveimur árum en nú er hann við stjórnvölinn hjá ríkasta félagi heims og hætt er við þvf að kröfurnar verði aðrar og meiri. Mourinho hefur meira sjálfs- traust en gengur og gerist hjá okkur hinum meðaljónunum og það hefur skinið í gegn í öllum viðtölum við hann. Hann er óhræddur við að taka slaginn við Alex Ferguson, knattspyrnustjóra Manchester United, og svarar honum fullum hálsi ef þurfa þykir. Hann er hins vegar óreyndur í heimi ensku úrvalsdeildarinnar þar sem Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, og þá kannski sérstaklega Alex Ferguson eru á heimavelli. Þá gæti skipt sköpum fyrir Mourinho að vera jafngóður þjálfari og hann telur sjálfan sig vera. Arjen Robben frá PSV, Peter Cech frá Rennes, Paulo Ferreira frá Porto, Mateja Kezman frá PSV, Didier Drogba frá Marseille, Tiago Mendes frá Benfica og Ricardo Carvalho frá Porto. Mikael Forssell (lán), Juan Sebastian Veron (lán), Winston Bogarde, Joel Kitamirike, Mario Melchiot, Emmanuel Petit, Jimmy Floyd Hasselbaink, Marcel Desailly, Jesper Grankjær, Carlton Cole (lán), Mario Stanic, Hernan Crespo (lán), Neil Sullivan, Boudewijn Zenden. John Terry Lykilmennirnir Frank Lampard Lampard hefur skipað sér á bekk með bestu miðjumönnum ensku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili en frammistaða hans með Chelsea gerði hann að lykilmanni liðsins og færði honum sæti í byrjunarliði enska landsliðsins. Hann er gífurlega duglegur, með góða sendingar og mjög gott auga fyrir mörk- um. Lampard hefur vaxið mjög sem leikmaður síðan hann kom frá West Ham og heldur væntanlega áfram vexti sín- um á komandi tímabili. Mourinho verður í lykil- hlutverki hjá Chelsea í vetur. Hann náði frá- bærum árangri með Porto með sinni hugmynda- fræði en spurning hvort hann getur yfirfært hana til leikmanna Chelsea. Ef það tekst þá eru þeir í góðum málum og það sem af er undirbúnings- tímabilinu virðast hlutirnir vera í fínu lagi. skólanum. Hann er ekki gamall en hefur þegar tekið við fyrirliða- stöðunni hjá félaginu. Eiður Smári hefur lýst honum sem frábærum varnarmanni og flestir telja hann fram- tíðarmann í enska landsliðinu. Terry er mikill leiðtogi, baráttujaxl og ómissandi í alþjóð- legt lið Chelsea sem sannur enskur leik- maður, harðjaxl s— gefst aldrei upp Jose Mourinho Eiður Smári Guðjohnsen þarf enn eitt árið að berjast af hörku fyrir sæti sínu í stjörnum prýddu Chelsea-liðinu. Tveir framherjar komu til liðsins í sumar en aðrir tveir hurfu á braut. Eiúur í byrjunarliðinu? Spurningin sem brennur á vörum íslenskra knattspyrnu- áhugamanna er sú hvort Eiður Smári Guðjohnsen verði í byrjunarliði Chelsea á sunnudaginn þegar liðið tekur á mdti Manchester United á Stamford Bridge í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Það er við ramman reip að draga hjá Eiði Smára því samkeppnin er ekki af verri endanum. Eiður Smári þekkir reyndar þessa stöðu vel því að í fyrra komu tveir fokdýrir framherjar, Argentínumaðurinn Hernan Crespo og Rúmeninn Adrian Mutu, til liðsins og var fastlega búist við því að þeir skipuðu framlínu Chelsea síðasta vetur. Þeir byrjuðu báðir ágædega en áður en langt var liðið á veturinn höfðu gömlu félagarnir Eiður Smári og Hollendingurinn Jimmy Floyd Hasselbaink mokað þeim út úr liðinu. Nú er Hasselbaink farinn til Middlesbrough eftir að samningur hans hjá Chelsea var ekki endurnýjaður og Crespo hefur verið lánaður til AC Milan út komandi tímabil. í þeirra stað eru komnir tveir aðrir framherjar, Metja Kezman frá PSV Eindhoven og Didier Drogba frá franska liðinu Marseille. Kezman var keyptur fyrir 5,5 milljónir punda en hann skoraði eins og brjálæöingur hjá PSV og endaði með betra markahlutfall hjá liðinu heldur en sjálfur Ruud van Nistelrooy. Kezman hefur byrjað vel með Chelsea og skoraði í æfingaleikjum liðsins en á tímabili leit út fýrir að hann myndi missa af fyrstu þremur leikjum tímabilsins vegna rauðs spjalds sem hann fékk í vináttuleik gegn Roma. Aganefnd enska knattspyrnusambandsins hefur hins vegar dregið spjaldið til baka og því er Kezman klár í slaginn. Drogba er dýrasti leikmaður Chelsea frá upphafi og því er afar líklegt að hann njóti eilítið meiri forréttinda en aðrir framherjar liðsins til að byrja með. Drogba sló í gegn með Marseille á síðasta tímabili og hefur staðið sig vel í þeim leikjum sem hann hefur spilað með Chelsea. Síðasti keppinautur Eiðs Smára um sæti í liðinu er síðan Rúmeninn Adrian Mutu. Hann var á leiðinni til Juventus í lán fýrir skömmu en Roman Abramovich, eigandi Chel- sea, stoppaði það af. Hann þykir ekki vera líklegur kostur í byrjunarliðið gegn Manchester United enda hefur framtíð hans hjá félaginu verið í uppnámi frá því að Portúgalinn Jose Mourinho tók við liðinu í sumar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.