Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2004, Síða 19
DV Sport
FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST2004 19
Keflvíkingurinn Þórarinn Kristjánsson, sem skoraði tvö mörk fyrir sitt lið og lagði
upp eitt í 4-2 sigri á Fylki, er leikmaður 13. umferðar Landsbankadeildar karla i
knattspyrnu. Þórarinn fékk hæstu einkunn eða sex hjá blaðamönnum DV og er
aðeins annar leikmaðurinn í sumar til að fá þá einkunn.
Einn af mínum betri
leikjum a ferlinum
Þórarinn Kristjánsson, leikmaður Keflvíkinga, hefur verið valinn
af DV-Sport sem maður 13. umferðar Landsbankadeildar karla í
knattspyrnu. Þórarinn, sem leikið hefur með Keflvíkingum alla
sína hunds- og kattartíð, fór hamförum í 4-2 sigurleiknum gegn
Fylki í Keflavík, en þá skoraði piltur tvö mörk og lagði þar að auki
upp eitt.
í hvert skipti sem hann fékk
knöttinn skapaðist mikil hætta og
vamarmenn Fylkis réðu ekkert við
hann og Þórarinn var í raun óhepp-
inn að bæta ekki fleiri mörkum við.
DV-Sport sló á þráðinn til Þórarins
og byrjaði á því að spyrja hann hvort
síðasti leikur hefði ekki verið einn sá
besti á ferli hans.
Kannski sá besti á ferlinum
„Jú, þetta var einn af mínum betri
leikjum, ef ekki sá besti. Þetta gekk
mjög vel hjá mér og raunar liðinu öllu
og það var gaman að þessu. Það var
ekki leiðinlegt að sigra Fylkismenn
tvisvar með aðeins þriggja daga milli-
bili,“ segir Þórarinn en lið hans sló út
Fylki í 8-liða úrslitiun bikarkeppninn-
ar með 0-1 sigri í Árbæ og svo kom
sigurleikurinn í Keflavík.
Keflvíkingar hófu mótið af miklum
krafti og þóttu leika skínandi knatt-
spymu. Fljótlega fór þó að hafla und-
an fæti og í stað skemmtilegrar sókn-
arknattspymu fóm kýlingar og kraðak
að h'ta dagsins ljós. Undanfamar um-
„Ég held að það sem
okkur skortir fyrst og
fremst sé heppni - allt
annað er tilstaðar."
ferðir hafa hins vegar Keflvíkingar aft-
ur sýnt sitt rétta andflt og er það ekki
síst Þórami að þakka. En hvemig út-
skýrir hann þessar sveiflur hjá liðinu?
„Þó að liðið sé frekar ungt þá emm
við flestir búnir að spila saman lengi
og því með talsverða reynslu. Því á ég
ffekar erfitt með að útskýra þessar
sveiflur hjá okkur í sumar, veit hrein-
lega ekki hvað gerðist en sem betur
fer erum við nú á uppleið og ég trúi
ekki öðm en að við höldum áfram að
spila okkar bolta sem er sóknarknatt-
spyrna - það fer okkur best," segir
Þórarinn ákveðinn.
Laus við meiðsli
í upphafi móts var Þórarinn að
jafna sig af meiðslum og það tók
hann nokkum túna að komast í sitt
besta form. Hann sat talsvert á
bekknum en sú tíð er að baki og nú er
ekkert nema blússandi sigling
framundan.
Er Þórarinn að spila sinn besta
bolta á ferlinum? „Ég er ekki frá því,
maður er í það minnsta að koma
mjög sterkur inn núna, er meiðsla-
laus og vonandi heldur það áfram. Ef
hlutimir ganga áfram svona vel verð-
ur þetta án efa besta keppnistímabil-
ið hjá mér hingað til.“
Keflvíkingar unnu síðast stóran tit-
il árið 1997 en þá hampaði liðið bik-
amum eftir æsilega baráttu við ÍBV.
Þórarinn man þetta vel og vildi
gjaman upplifa slíka tilfinningu aft-
ur:
„Ég hefði ekkert á móti því og
það er alveg kominn tími á að
vinna titil aftur," segir Þórarinn
og það vottar fyrir bikarlöngun í
röddinni: „Það er ágætur mögu-
leiki núna, við erum komnir í
undanúrslit og að sjálfsögðu stefnum
við á að fara alla leið."
Vantar bara heppni
Keflvíkingar hafa hampað íslands-
meistaratitlinum fjórum sinnum,
1964,1969,1971 og 1973. Hvað skort-
ir Keflavíkurliðið nú til þess að kom-
ast alla leið á toppinn aftur? „Það er í
raun og vem ekki margt," segir Þórar-
inn og bætir við: „Við emm með
dúndurlið og það er enginn, og hefur
ekki verið, hörgull á góðum knatt-
spyrnumönnum hér í Keflavík. Ég
held að það sem okkur skorti fyrst og
fremst sé heppni - allt annað er til
staðar."
Vantar bara A-liðið
Aðspurður segir Þórarinn að
stefnan sé auðvitað sett á að komast
lengra - í atvinnumennsku og A-
landsliðið.
„Það vilja auðvitað allir fótbolta-
menn komast út og geta haft þetta að
lifibrauði og ég er þar engin undan-
tekning og hef stefnt að því lengi. Síð-
an er ákveðinn draumur að fá að
spreyta sig í A-landsliðinu en ég lék
með öllum yngri landsliðunum og
það vantar bara A-Iiðið," sagði Þórar-
inn Kristjánsson, maður 13. umferðar
Landsbankadeildar karla í knatt-
spymu. sms@dv.is
Þórarinn
Kristjánsson
Laus við meiðsli
og í besta formi
lifsins. Segir Keflavík
stefna á toppinn og
vanta bara heppni.
Marel og
Kári duttu
út
< .
Asgeir
Sigurvinsson og
Logi Ólafsson,
þjálfarar íslenska
landsliðsins í
knattspyrnu, hafa valið
tuttugu manna hóp tyrir leikinn
gegn ítölum á Laugardalsvelli á
miðvikdaginn í næstu viku.
Ásgeir og Logi völdu 22ggja
manna hóp á mánudaginn
vegna óvissu um Jóhannes Karl
Guðjónsson, sem var ekki
kominn með leikheimild með
Leicester og Helga Sigurðsson
sem hefur átt við meiðsli að
stríða. Nú er Jóhannes Karl hins
vegar orðinn löglegur með
Leicester og spilaði síðustu 25
mínúturnar gegn Derby á mið-
vikudaginn og Helgi ættí að öllu
eðlilegu að vera klár í slaginn
miðað við það sem læknar
hans í Danmörku tjáðu
Ásgeiri og Loga í gær. Þeir
tveir sem fara úr hópnum
eru Kári Ámason og Marei
Baldvinsson. Kári var val-
inn í fyrsta sinn í hópinn á
mánudaginn og sagði
Ásgeir í samtali við DV í gær
að það væri ekki neikvætt
fyrir Kára að vera tekinn út
strax. „Ég held að þetta eigi
eftir að virka sem hvatning á
hann. Hann á ekki langt í land
með að komast í hópinn og
við munum fylgjast vel með
honum," sagðiÁsgeir, Marel
hefur verið lengi í hópnum
án þess að sýna nokkuð og
Ásgeir sagði að það væri kominn
tími til að fá einhvern annan
framherja inn. „Marel hefur ekki
skoraö nóg en Logi sá hann spila
með Lokeren um síðustu helgi
og hann stóð sig vel þar," sagði
Ásgeir.
Svekkturen
stoltur
Kári Árnason sagði í samtali
við DV í gær að hann væri auð-
vitað svekktur yfir því að vera
dottinn út úr hópnum eftir að
hafa verið valinn en væri jafn-
framt stoltur af því að hafa verið
valinn í upphaflega hópinn. „Ég
náði aldrei að fá tilfinninguna
fyrir því að vera landsliðsmaður
en ég hef ekki sagt mitt síðasta
orð í þessu liði," sagði Kári.
Llð 13. umferðar í Landsbankadeild karla
Fjórir nýliðar, Keflvfldngurinn
Ingvi Rafn Guðmundsson, FH-
ingurinn Guðmundur Sævarsson,
Framarinn Viðar Guðjónsson og
Keflvfldngurinn Þórarinn Kristjáns-
son, sem var jafnffamt valinn
leikmaður umferðarinnar, eru í
liði 13. umferðar í Landsbanka-
deild karla í fótbolta sem blaða-
menn DV hafa valið.
Vfldngurinn Grétar Sigurðs-
son er í liðinu í sjötta sinn, í
fimmta sinn í síðustu sex
umferðum, en Grindvíking-
urinn Sinisa Kekic, sem hefur
verið valinn í lið umferðarinnar
sjö sinnum, er sá eini sem
hefur verið valinn oftar.
Keflvfldngar, sem unnu
Fylkismenn, 4-2, á sunnu-
daginn, eiga flesta fulltrúa í
liðinu en auk Ingva Rafns og
Þórarins er Haraldur Guð-
mundsson í liði umferðar-
Stefán Þór Þórðarson (2)
ÍA
Sigurvin Ólafsson (2)
KR
Þórarinn Kristjánsson
Keflavík
EllertJón Björnsson (2)
lA
Vi9ar Guðjónsson Ingvi Rafn Guðmundssoft
Keflavík
Fram
Tommy Nielsen (2)
FH
Grétar Sigurðsson (6)
Víkingi
Haraldur Guðmundsson (3)
Keflavík
IMBMrfnB
Guðmundur Sævarsson
FH
Birkir Kristinsson (2)
ÍBV
—i