Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2004, Side 23
DV Fókus
FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST2004 23
Hún var stútfull Laugardalshöllin á
miðvikudagskvöldið þegar rapparinn
50 Cent hélt þar tónleika með félögum
sínum í G-Unit. Mikill troðningur var í
Höllinni og hitinn eftir því. Gestir voru
i yngri kantinum og sáust meira að
segja nokkur smábörn á öxlum mæðra
sinna. Kvenþjóðin var afar hrifin af er-
lendu gestunum og allt ætlaði vitlaust
að verða þegar 50 Cent fór úr að ofan.
Tónleikar
„Þetta er í fyrsta sinn sem ég kem
hingað og ég verð að segja þið eigið
frábært gras hérna," sagði Curtis
Jackson, öðru nafni 50 Cent, við vel
pakkaða Laugardalshöll á miðviku-
dagskvöldið. Og glotti. í framhaldi af
þessari yfirlýsingu fékk hann svo sal-
inn til að taka vel undir og margend-
urtaka slagorðið „Smoke weed, get
drunk and fuck!"
Það var h'n stemning á tónleikun-
um, heitasti dagur sögunnar í
Reykjavík og
fólk greini-
lega komið
til þess að
fkemmta sér. Upphitunardagskráin
reyndi samt svolítið á þolinmæðina.
Hljómurinn í Hölhnni var vondur og
þó að bæði XXX Rottweiler (með
Bæjarins bestu sér til fulltingis) og
Quarashi hah skilað sínu skamm-
laust þá náði hvorug hljómsveitin að
halda uppi einhverju stuði að ráði
nema hjá þeim sem voru rétt fyrir
framan sviðið. Nýja sveitin hans
Erps, Hæsta hendin tók eitt lag,
Botninn upp, sem er greinilega
hittari.
Lélegt sánd stoppaði hins vegar
ekki 50 Cent. Um leið og hann birtist
á sviðinu trylltist salurinn og það var
greinilegt að áhrorfendur voru með
50 alveg á hreinu. Tónlistarlega voru
þetta einfaldar og hráar útgáfur af
lögum 50 Cent og G-Unit, en kraft-
urinn í röppurunum þremur 50
Cent, Young Buck og Lloyd Banks
var alveg nógur til þess að halda
partíinu gangandi. 50 Cent er eitt
stærsta nafnið í bandarískri tónlist í
dag og tónleikar með honum teljast
því stórtónleikar, en þetta voru ör-
ugglega minnstu og einföldustu
stórtónleikar sem sögur fara af. Ekk-
ert sjó, engir risaskjáir og bara fjórir
menn á sviðinu, rapparamir þrír í G-
Unit og plötusnúður sem var með
einhverjar stafrænar græjur, en ekki
plötuspilara. Og samt var þetta alveg
að virka. 50 Cent spilaði í rúman
klukkutíma og tók öU sín þekktustu
lög og fékk góðar móttökur.
Það er í raun afrek að rappari sem
heitir ekki Eminem fyUi HöUina. 50
Cent tónleikarnir tókust nokkuð vel
og vonandi verður framhald á.
Trausti Júliusson
i Laugordalshöll þot
S,‘SS5-*
Demi með fullkomnunarár
Demi Moore ætlar að eyða hárri
fjárhæð tU að láta lýtalækna lappa
upp á hnén á sér. Leikkonan fór í
aUsherjarstrekkingu fyrir þremur
árum og er orðin spennt að geta
spókað sig um í stuttum kjól.
„Demi viU fullkominn líkama og
hnén hafa farið í taugarnar á henni í
langan tíma. Henni þykir þau of
slöpp," sagði vinur hennar og viður-
kenndi að áráttan um fullkomnum
væri tilkomin vegna aldursmunarins
á miUi hennar og kærastans, Ashton
Kutcher en Demi er 15 árum eldri en
hann. „Hún er viðkvæm fýrir aldrin-
um þótt Ashton hafi margoft sagt
henni að honum sé sama hvernig
hún líti út því hann elski hana."
Vinir hennar segjast hafa reynt að
það
Demi og Ashton Þrátt fynr
að Ashton hafi sagt Demi aö
honum sé sama hvernig hún
líti út hefur hún miklar áhyggj
ur vegna aldursmunarins.
tala hana ofan af aðgerð
inni enda mun hún
skilja eftir stór ör á
hnjánum. „Að hafa
áhyggjur af útliti
hnjánna er bara fá-
ránlegt en hún má
vera ánægð með
að þau eru
eina sem lýta-
læknar eiga
eftir að taka í
gegn."
Demi og
Ashton eru
talin vera að
skipuleggja
brúðkaup í
leyni.
Leikkonan Demi Moore er hrædd um að Ashton Kutcher
snúi sér að yngri og fallegri konum