Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2004, Blaðsíða 30
30 FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST2004
Síðast en ekki síst DV
Steinn Ármann og Helga Braga saman í megrun
Vinirnir og leikararnir Steinn Ár-
mann Magnússon og Helga Braga
ætla nú að fara saman í megrun.
Megrunarkúrinn sem þau ætla að
leggja fyrir sig heitir Vodkakúrinn og
er eftir Kristlaugu Maríu Sigurðar-
dóttur. Bæði teljast þau sæmilega
búttuð og hefur ekki orðið vart ann-
ars en þau séu ljómandi ánægt með
það. „Þeim mun meira af mér - þeim
mun betra," hefur verið haft eftir
Helgu Brögu. Þessi kúr er reyndar
nokkuð sem þau takast á
við undir fána leiklistar-
gyðjunnar. Þessir frábæru leikarar
eru nú að æfa í Borgarleikhúsinu
leikrit undir þessu nafni - Vodkakúr-
Ha?
inn. Steinn og Helga
voru saman í Leiklistar-
skólanum á sínum tíma og
hafa starfað mikið saman,
bæði verið með skemmúdag-
skrá, leikið saman á sviði og hver
man ekki eftir þeim í Stundinni
okkar fyrir margt löngu?
Höfundurinn Kristíaug er
hklega þekktust fyrir að hafa
skrifað leikritið Ávaxtakörfuna
og handrit að myndinni Didda
og dauði kötturinn. Leikstjóri
er Gunnar Gunnsteinsson. Sök-
um blíðviðris hafa æfingar að
mestu farið fram á svölum
Borgarleikhússins.
• Lou Reed er væntanlegur til
landsins eins og allir rokkáhuga-
menn vita og er nú
verið að ganga frá því
að við hann verði tek-
ið viðtal af lykilmönn-
um hvers fjölmiöils
um sig. Þannig hefur
Sigurjón Kjartansson í
Tvíhöfða lýst yfir nokkrum áhyggj-
um af því en Reed mun vera með
erfiðari mönnum og vill engan fífla-
jr gang. Einn fjölmiðlamaður hefur
þegar tekið viðtal við Lou Reed og
sá er nú ekki þekktur fyrir grínið og
glensið. Biggi í Maus, blaðamaður
Fréttablaðsins, tók við hann viðtal
og máttu lesendur blaðsins stauta
ILLLSMIKKI
TREYSTA MÉR
V ....HIKK! >
SJONNI. VAKNABU!
ÖVSENDI BÍL EFTIR
ÞÉR, PÚ ÞARFT AB
. TAKA VI&TAL -
HERNA, Em GLEYMA
BLAÐAMANNA-
V HATTINUM! >
JÁ.SAA.HANN N
SI6URJÓN ER Á LEIÐINNITTL
YKKAR t TAXA ÞIB ÞEKKI&
V HANN Á HA TTINUM.
Síðast en ekki síst
sig í gegnum langan texta frá brjósti
Bigga þar sem hann lýsir því yfir
hver kyns raun það hafi verið að
ræða við þessa goð-
sögn. Grein Bigga
hefst á orðunum:
„Á öllum mínum
fimm árum sem
blaðamaður hefur
mér aldrei liðið
jafnillaað talavið
nokkurn mann í síma og Lou
Reed“...
• Jamie Oliver meistarakokkur kom
víða við í íslandsheimsókn sinni.
Fór í fiskbúðir, laxveiði og lét sjá sig
víða þar sem kræsinga mátti vænta.
Þannig kom Stefáni Jóni Hafstein
borgarfulltrúa nokkuð spánskt fyrir
sjónir að kokkurinn snjalli vildi
koma í garðinn hjá honum að
Freyjugötu. Skýringin lá svo í rifs-
berjaklösunum sem nú breiða sig
mót sólu. Freyjugöturifsberin eru
kornin á heimsminjaskrá kokksins!
Það mun hafa verið Leifur Kol-
beinsson Primaveramaður sem
þekkti til aðstæðna og mætti með
Oliver...
• Söngkonan Pink fór mikinn þeg-
ar hún sótti íslend-
inga heim og kom
víða við. Eins og
segir annars staðar í
blaðinu mega ís-
lendingar vænta
þess að sjá meira af
þessari hressu
stelpu. Sérstök tíð-
indi fyrir áhugamenn um popptón-
list mega heita að þau Pink og
Frosti Logason, gítarleikari og heil-
inn á bak við Mínus, sátu í um
klukkustund á eintali úti í horni
veitingastaðarins Felix. Höfðu þau
greinilega um margt að ræða...
Flott hjá Jóel Briem, verslunarstjóra
I Spútnik, og fleirum að rífa Klappar-
stiginn upp úr lægö og gera hann að
einni aöalgötunni í Reykjavík I dag.
Van Morrisson í stífri megrun
Vill haírakex og hveitifrítt spagetti
Ef einhver hefði haldið því ffam
fyrir tveimur árum að væntanleg
væru til landsins á nánast sama
tíma: Marianne Faithful, Lou Reed,
James Brovm og Van Morrisson, er
líklegt að sá hinn sami hefði talist
galinn. Og eru þarna aðeins nefndir
nokkrir þeirra heimsþekktu tónlist-
armanna sem eru væntanlegir...
þegar hefur fjöldi slfkra heiðrað fs-
land með nærveru sinni. Hérna gefst
kærkomið tækifæri að rýna eilítið í
lifnaðarháttu rokk- og poppstjarna
sem teljast á heimsmælikvarða.
í vikunni birti DV ‘rider’ James
Brown og kennir þar ýmissa grasa.
Rider er hugtak sem ætti að vera les-
endum DV tamt en þetta enska orð
nær yfir lista þann sem umboðs-
menn alþjóðlegra stjarna senda á
undan þeim þar sem tíundað er það
helsta sem þarf að vera til staðar á
tónleikastað. Ljóst er að hinn rúm-
lega sjötugi kóngur sálartónlistar-
innar hugsar vel um heilsuna. Það
gerir einnig Van Morrisson en DV
komst í ‘rider’ hans. Van er væntan-
legur tíl landsins og verður með tón-
leika 2. október. Þessi rauðhærði
írski snillingur hefur ávallt verið
kubbslegur mjög. Sé tekin tillit til
krafna hans má draga þá ályktun að
hann sé í stífri megrun.
Van Morrisson hefur löngum
þótt tónleikahöldurum óþægur ljár í
þúfu en ekki verður betur séð en
kröfur hans séu hóflegar. Kannski á
eftír að koma ítarlegra skjal þegar
nær dregur en listinn einkennist af
ákaflega heilsusamlegu líferni. Með-
al þess sem Van vill hafa til reiðu te,
kaffi og ölkelduvatn við öll tækifæri.
Veislumáltíð fyrir 30 manns skal
vera tilbúin tveimur tímum fyrir
tónleikana. Þar á að vera fjölbreytt
og férsk grænmetísfæða en einnig
skulu vera kjöt- og fiskréttir. Einnig
skai vera til staðar úrval grænmetís-
rétta, auk ostabakka og ávaxtakörfu.
Hvert kvöld dvalar Vans skulu til-
teknir réttir vera í boði og tekið er
skýrt fram að engan rjóma og engan
ost má nota í sósur fyrir Van. Og í
Spaghetti Bolognese-réttinum skal
spaghetti vera hveitifrítt. Allt brauð
og pasta skal vera hveitífrítt og líf-
rænt.
í búningsherberginu skal svo
meðal annars vera ávaxtakarfa en
tekið er skýrt fram að þar eigi EKKI
að vera kíví eða bananar. Vekur það
athygli því Brown vildi banana við
öll tækifæri. Þá vill hann kalóríu-
snautt súkkulaði, te, mikið úrval
ávaxtadrykkja og ölkelduvatns, diet-
kók, þurrkaðar fíkjur, hafrakex, fitu-
skerta jógúrt, léttmjólk (fitusnauða)
í teið svo eitthvað sé nefnt af lista
sem gætí þess vegna verið frá
Heilsuhúsinu. Þeir dagar virðast
liðnir að rokkstjörnurnar séu með
Jack Daniels í buxnastrengnum. Ætíi
Keith Richards viti af þessu?
Lárétt: 1 þekkt, 4 þrjóskur,
7 vírus, 8 leðja, 10 atlaga,
12 skagi, 13 hóti, 14 anga,
15 eyktamark, 16 nöldur,
18 nálægð,21 ber,22
hopar, 23 kornljár.
Lóðrétt: 1 geðvond, 2 ald-
ur, 3 galdrar, 4 oft, 5 skjól,
6 hækkun, 9 ráfa, 11 kvísl-
in, 16 bjargbrún, 17
drunu, 19 fífl, 20 afreks-
verk.
Lausn á krossgátu
Q? P0Z'|ue6l'áu6
Zl 'jpu 91 'uetu|e 11 'ejöis 6'su 9'jea s'siuuisejcj y'je6uiuja6 E'wæ z 'IW l :;}3JQpi
■Q6js zz 'Jág zz 'u|>(eu iz 'pupu g t '66eu
9 l 'uou s i 'eui|! y l ''iuöp £ i 'sau zl 'spjy 0L 'J|a| 8 'ejpA l 'J3ac| y '6æjj t mpJei