Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2004, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2004, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST2004 Fyrst og fremst 0V Útgáfufélag: Frétt ehf. Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson Ritstjórar: lllugi Jökulsson MikaelTorfason Fréttastjórar ReynirTraustason Kristján Guy Burgess DV: Skaftahlíð 24, Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 515 7599 - Ritstjórn: 550 5020 - Fréttaskot 550 5090 Ritstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýsing- ar; auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Setning og umbrot: Frétt ehf. Prentvinnsla: (safoldarprentsmiðja DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins I stafrænu formi og í gagna- bönkum án endurgjalds. Hvaðveistþú um lleitesúela* 1 f hvaða heimsálfu er landið? 2 Hvað heitir höfuðborgin? 3 Hvað heitir forsetinn? 4 Hver er helsta tekjulind landsins? 5 Hvað þýðir nafn lands- ins? Svör neðst á síðunni Ýktkúl! Bandarískur áhugamað- ur um kvikmyndir, Harry nokkur Knowles, stjórnar þessari vefsíðu um þá miklu list, kvikmyndalist- ina. Hann segir fréttir úr www.aintitcoolnews.com Vefsíðan þeim heimi, dæmir kvik- myndir af ótrúlegegri þekk- ingu og innsæi og tengir aðra áhugamenn saman á spjallrás. Á vefhum er einnig hægt að skoða kynn- ingarstúfa kvikmynda og velja úr þéttskipuðu greina- safni Knowles um kvik- myndir. Svo mikið mark er tekið á umsögnum Knowles vestra að Quentin Tarantino bauð honum, fyrstum allra gagnrýnenda, á forsýningu myndarinnar „Kill Bill: Vol2“. Skottulæknir Oröabók Menningarsjóðs segiroröið vissulega merkja gerviiækni, lélegan lækni og hlaupalækni en líka ólærðan lækni. Forlið- urinn virðistþvi merkja eitt- hvað flýtiskennt og skammvinnt. Ekki er talið ólíklegt að hann sé leiddur af kvenkynsnafnorðinu skotta í merking- unni sem dregin er af sögninni að skotta, flækjast um eða hlaupa fram og aftur. Læknir, læknari, lækning og læknan eru forn og ger- mönsk orð, leidd afsögn- inni að lækna; græða, bæta heilsu manna. Málið 1. Suður-Ameríku. 2. Caracas. 3. Hugo Chavez. 4. Olíuvinnsla. 5. Litlu-Feneyjar. Pólitík enn! Nú þegar allir héldu að friður gæfist frá stjórnmálum eftir hamagang fjölmiðlamálsins og við gætum not- ið veðurblíðunnar kannski langt fram f september án þess að þurfa að leiða um of hugann að íslenskri pólitík, þá rumskar pólitíkin á ný við að allt er á öðrum end- anum í Framsóknarflokknum. Ekki eru það málefhi af neinu tagi sem eru að vefjast fyrir þeim framsdknarmönn- um, heldur einvörðungu það hver á að vflcja sæti þegar ráðhemun flokksins fækk- ar um einn þann 15. sept- ember þegar Halldór Ás- grímsson fær forsætisráðu- neytið í sinn hlut frá Davíð Oddssyni. Hvort það á að vera Siv Friðleifsdóttir, Ámi Magnússon eða einhver annar. Og víglfnur eru dregnar: konur flykkjast til liðs við Siv, nema Dagný Jónsdóttir, enÁmi Magnússon er talinn vera maður vikunnar á fram- sóknarvefnum Hrifla.is vegna þess að hann sé „vinnusamur ráðherra" eins og það er orðað. Og hefði líklega fáum öðr- um en hörðustu stuðningsmönnum Áma látið sér til hugar koma að hann hafi á einhvem hátt verið „maður síðustu viku“. Augljóst er að mikið gengur á f flokkn- um vegna þess arna. Reyndar mundu sumir eflaust ekki vilja kannast við að hér sldpti mái- efiú ekki máli, því hér sé um að ræða það mikilsverða mál hvort konur eigi aðgang að forystusveit Framsóknar- flokksins. Þannig tala að minnsta kosti stuðningsmenn og -konur Sivjar Friðleifsdótt- ur. Athygliverð er sú grein Elsu B. Friðflimsdóttur sem vitnað er til í dálknum Fyrst og fremst hér að neðan. Þar fjallar hún almennt um þær hæfhiskröflu’ sem gera ætti til ráðherra og þótt grein hennar sé aug- ljóslega hluti af intrígunum í flokknum og beri að túlka hana sem slflca, þá er merkilegt hve fáa hún finnur í þing- mannaliði Framsóknarflokksins sem upp- fyila öll þau skilyrði sem hún telur eðlilegt að setja um stjómendur. Sem sé aðeins fjórir af tólf. Og einn þingmaður er talinn alveg augljósiega óhæfúr. Sá er þó núna ráðherra og krón- prins formannsins. Með þessum fullyrð- ingum heggur Elsa augljósiega nærri for- manninum sjálfúm. Langt er um liðið síðan Halldór Ás- grímsson hefur mátt þola mótbyr innan eigin flokks. En þar virðist nú allt í upp- lausn og ólgu út af ráðherramálinu og gæti orðið enn einn skugginn sem Ilaíldór þarf að dragnast með þegar hann nær loks þvf markmiði sínu að verða forsætis- ráðherra. í viðbót við til dæmis óuppgert íraks- strfðið, óuppgert fjöhniðlamál og vaxandi óánægju sjálfstæðismanna með hið nýja fyrirkomulag. Svo pólitfldn er þá hreint ekki dauð úr ölliun æðum. Þótt við kysum helst að svo væri rneðan við getum enn sleikt sólina. niugl Jökulsson Olga í Framsókn „Athyglivert er að einn og sami ráð- herrann uppfyllir ekkert þessarra skilyrða um hæfni. Hann verðurþví seint talinn meðal þeirra hæfustu skrifar Elsa B. Friðfinnsdóttir um Árna Magnússon. Fyrst og fremst HIN UNGA ÞINGK0NA DAGNÝ JÓNS- DÓTTIR hefur hingað til ekki vakið mikla athygli fyrir mikinn hita í mál- flutningi og sumir myndu ef til vill orða það svo að hún hafi ekki vakið mikla athygli fýrir málflutning yfir- leitt. En í fýrradag var henni nóg boðið eftir að í sumum blöðum höfðu birst auglýsingar frá 40 fram- sóknarkonum þar sem þær hvöttu til að ekki yrði skertur hlutur kvenna í ráðherraliði flokksins í þeim „ráð- herrakapli" sem fyrir dyrum stend- ur. Auglýsingin var augljóslega Siv Friðleifsdóttur til stuðnings en Dag- nýju var ekki skemmt og birti á vef sínum reiðilegan pistil undir fyrir- sögninni „Ekki allar konur reiðar". „NÚ HEF ÉG SETIÐ ÞEGJANDI," skrif- aði Dagný, „undir umræðu um stöðu kvenna innan Framsóknar- flokksins í margar vikur og mánuði. Ég vildi ekki tjá mig um málið vegna þess að umræðan hefur mjög verið tengd ráðherravalinu sem framund- an er og vil ég segja sem minnst um það, enda ekki talið viðeigandi að ræða slík innri mál á opinberum vettvangi á meðan þau eru ekki út- kljáð." Hér megum við til að hnykkja á þessum orðum. Hvers vegna - með leyfi - er „ekki talið viðeigandi" að ræða mikilsverð mál eins og hverjir gegna ráðhérraembætti fyrir Fram- sóknarflokkinn á opinberum vett- vangi? En Dagný heldur áfram: „Nú hins vegar verð ég að láta rödd mína heyrast vegna þess að mér er misboðið. Misboðið vegna þess að í fréttum í kvöld var látið í það skína að allar framsóknarkonur ílandinu séu reiðar formanni ogfor- ystu flokksins vegna ráðherrakap- alsins ogþeirra breytinga sem vænt- anlegar eru á ríkisstjórninni nú í haust. VIÐ SKULUM ALVEG HAFA ÞAÐ A HREINU að þó svo að einhver hópur framsóknarkvenna lýsi sigreiðan þá eru EKKl allar konur reiðar. Ég var t.d. ekkert reið í dag út í einn né neinn, en er reið núna út íþennan hóp sem alhæfír fyrir hönd allra kvenna í fíokknum og leyfír sér þannig að skapa sér áróðursstöðu. Ég hef fengið mörg símtöl í dag frá framsóknarkonum sem skilja ekkert íþessum málfíutningi og furða sig á því að þingflokknum skuli ekki treyst til að velja hæfustu manneskj- una fyrir hönd hans í hvert ráðu- neyti fyrir sig rétt eins og tíðkast hef- ur um áratugaskeið. Ég tilheyriþess- um hópi kvenna og karla sem vilja velja einstakling hverju sinni sem hentar best íþað hlutverk sem velja á í. Það er minn skilningur á nútíma jafhréttisbaráttu, en maður veltir því fyrir sér hvort þessi barátta snúist kannski frekar um framgang ákveð- inna kvenna fremur en kvenna al- mennt. Ég geri mér grein fyrir því að ég kann að eignast óvildarmenn út af þessari afstöðu minni, en það verð- ur þá bara að hafa það. Hér er um að ræða algjört grundvallaratriði í minni lífsskoðun oghefávallt haldið þessari skoðun minni fram og ætti því ekki að koma neinum á óvart. “ EKKIVITUM VIÐ HV0RT DAGNÝ hefur í raun eignast „óvildarmenn" út á grein sína en greinin hefur altént vakið andsvör. Elsa B. Friðfinnsdótt- ir framsóknarkona skrifaði í grein á vefinn Ifk.is og byrjaði á því að gagn- rýna viðbrögð Hjálmars Ámasonar við auglýsingu framsóknarkvenn- anna fjörutíu: „[Hannj virðist ... ekkert skilja í því að konurnar telji þörffyrir slíka auglýsingu, þvíenginn annar stjórn- málaflokkur hafí „flaggað" jafn mörgum kvenráðherrum og Fram- sóknarflokkurinn. Ég spyr nú bara: Gat maðurinn tekið óheppilegar til orða?Með þessu er Hjálmar að segja að konur í fíokknum séu bara til skrauts, þeim sé „flaggað" til að bæta ásýnd flokksins út á við. Viðbrögð Dagnýjar Jónsdóttur komu mér ekki síður á óvart. Hún segist leggja áherslu á að hæfasti einstaklingurinn sé valinn hverju sinni, óháð kynferði. Gott og vel, en af orðum hermar má þá skilja að konumar í þingflokki Framsóknar standi körlunum almennt að baki hvað hæfni varðar. Hitt þykir mér einnig áhugavert að með áherslu sinni á hæfasta einstaklinginn hlýtur Dagný að hafa komið sér upp ein- hverri mælistiku á hæfíii manna til að verða ráðherrar. Ég skora hér með á Dagnýju að birta hæfniskröf- ur þær sem hún hyggst leggja til grundvallar þegar ráðherrar Qokks- ins verða valdir. EF DAGNÝ HEFUR ENN EKKI settniður slika mælistiku vil ég benda henni á þær kröfur sem almennt em gerðar þegar æðstu stjómendur (og jafnvel millistjórnendur) em ráðnir til ríkis- stofnana. í auglýsingum um slík störf má gjarnan fínna texta eins og: Umsækjendur skulu hafa háskóla- prófauk starfsreynslu á viðkomandi sviði. Áhersla eríögð á fæmi ímann- legum samskiptum, sjálfstæði og fagleg vinnubrögð. Ráðherrar hljóta að teljast æðstu stjómendur þessa lands þannig að ekki ætti að gera minni kröfur tilþeirra en almennt er gert varðandi millistjórnendur írík- isstofhunum (undirmenn ráðherr- anna). Ef þingmenn Framsóknar- flokksins em metnir samkvæmt of- angreindum kröfum en Ijóst að að- eins fjórir af tólf þingmönnum flokksins uppfylla menntunarskil- yrðin, þ.e. hafa háskólapróf. Aðeins einn núverandi ráðherra fíokksins hefur háskólapróf. Hvað starfs- reynsluna varðar yrði hún metin í þessu tilviki sem reynsla af þing- störfum. Fimm af núverandi ráð- hermm flokksins hafa þingreynslu. Hvað þriðja hæfhisþáttar varðar er eðlilegt að mínu mati að meta það út frá því atkvæðamagni sem við- komandi hefur á bak við sig í sínu kjördæmi. Það hlýtur að vera besti mælikvarðinn á tiltrú kjósenda á viðkomandi. Fimm ráðherrar fíokksins myndu líklega teljast upp- fylla þetta skilyrði. Athyglivert er að einn og sami ráðherrann uppfyllir ekkert þessara skilyrða um hæfhi. Hann verður því seint talinn meðal þeirra hæfustu. Mér sýnist því að ef lágmarks- hæfniskröfur em gerðar til ráðherra- efha Framsóknarflokksins séu það aðeins fjórir þingmenn sem uppfylla gmndvallarskilyrðið um menntun. Mér sýnist því Ijóst að leita þurfí út fyrirþingflokkinn tilað fylla ráðherra - stöðumar ef Framsóknarflokkurinn ætlar að „flagga hæfasta fólkinu", svo gullkornunum sé slegið saman. Það verður forvitnilegt að vita hvarDagný Jónsdóttir setur krossana þegar þing- menn Framsóknarflokksins velja sér ráðherra oghvaða nafni eða nöfnum hún bætir við listann. Hún vill jú velja hæfasta fólkið. “ ÞEIR FJÓRIR ÞINGMENN sem upp- fýlla öll skilyrðin hennar Elsu eru - þótt hún nefni þá ekki - Halldór Ás- grimsson, Magnús Stefánsson, Hjálmar Árnason og Kristinn H. Gunnarsson, sem reyndar viU svo skemmtilega til að er sambýlismað- ur Elsu. Af einhverjum ástæðum nefnir hún heldur ekki þann ráðherra sem ekki uppfyllir nein af þeim skilyrð- um sem hún telur eðlilegt að setja. En það er Ámi Magnússon.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.