Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2004, Síða 8
8 FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST2004
Fréttir DV
Víkingasveit
sinnti nærlOO
verkefnum
Samtals sinnti víkinga-
sveit Ríkislögreglustjóra 98
verkefnum á síðasta ári.
Þetta kemur fram í árs-
skýrslu Ríkislögreglustjóra-
embættisins fyrir síðasta ár.
Af þessum fjölda voru 24
öryggisgæsluverkefni, 52
voru vegna vopnaðra lög-
reglustarfa og 22 voru
einstök fræðsluverk-
efni. Þá sinntu
sprengjusérfræðing-
ar sveitarinnar
nokkrum verk-
efnum, meðal
annars í kjöl-
far sprengju-
hótana og ör-
yggisleitar vegna
opinberra heim-
sókna.
Ekki inn á
Svalbarða
Einar Gíslason, bóndi og krabbameinssjúklingur í Skagafirði, segist gangandi
kraftaverk. Seyði frá Ævari Jóhannessyni hafi bjargað sér. Ævar sagði í DV í gær
að dæmi væru um að seyðið læknaði krabbamein. Ævar hefur gefið krabbameins-
sjúkum ókeypis seyði í rúman áratug. Orðunefnd neitar að sæma hann fálkaorðu.
íslensku sfldarskipin á
miðunum úti fyrir Svalbara
fara ekki inn fyrir meinta
lögsögu Norðmanna fyrr en
skýr skilaboð þess efnis
berast frá útgerðsfélögun-
um. Huginn VE og Guð-
mundur VE hafa haldið
burt en auk Vilhelms eru
Þorsteinn ÞH og Hákon EA
enn við veiðar þarna í ná-
grenninu.
Mikil fjölgun
kvenna í
lögreglunni
Veruleg aukning hefur
verið á lögreglumenntuð-
um konum frá árinu 1997
en þá var hlutfall kvenna
4,3%. HlutfaU kvenna af
heildarfjölda starfandi lög-
reglumanna í upphafi árs
2003 var 9,3%, það er 728
karlmenn og 75 konur. í
frétt frá Ríkislögreglustjóra
um máiið segir að sam-
kvæmt upplýsingum frá
Lögregluskóla ríkisins sé
umsóknarfrestur um skóla-
vist í Lögregluskóla ríkins
runninn út fyrir námsárið
2005. Umsækjendur eru
124 en af þeim eru 95 karlar
og 29 konur. Því má búast
við að konum í lögreglunni
haldi áfram að íjölga.
Krabbasjúkur búndi
bakkar seyðinu lífið
Einar Gíslason hefur nokkrum sinnum greinst með æxli og hafa
þau verið fjarlægð jafnóðum með skurðaðgerðum. Einar byrjaði
að taka seyði fráÆvar Jóhannessyni stuttu eftir að helmingurinn
af nýra hans hafði verið fjarlægður. Áður hafði Einar fengið
krabba í ristilinn, sem var fjarlægður að hluta. „Ég þakka það
þessu lyfi fyrst og fremst að æxlið hefur vaxið svo hægt,“ segir
Einar, sem hefur tekið eitt glas af seyði á dag í rúm tíu ár og tek-
ur ekki önnur krabbalyf.
„Ég fékk hjartaáfall og tek hjarta-
lyf, en aldrei hef ég tekið nein
krabbameinslyf," segir Einar Gísla-
son, bóndi í Skagafirði, sem lætur
engan bilbug á sér finna og vinnur
við bústörfin tíu tíma á dag þrátt fyrir
að vera kominn á áttræðisaldur.
„Ég greindist með krabbamein
1992 og var skorinn upp 1993. Þá var
tekinn úr mér helmingurinn af lifr-
inni. Nokkru áður hafði verið tekið
mjög stórt æxli úr risdinum. Ég var
nær dauður af því helvíti," segir Ein-
ar, sem er þakklátur fyrir að vera á lífi
eftir að hafa fengið bæði hjartaáföll
og krabbamein.
Saurinn ratar sína réttu ieið
„Það voru teknir 50 sentfmetrar af
risdinum en hann virkar þrátt fyrir
það. Saurinn ratar enn sína réttu
leið,“ segir Einar. Hann slapp við að
leysa saur í stómapoka eins og marg-
ir þeirra sem fá krabbamein í ristil-
inn.
Hvað liggur á?
„Eftir að ég fékk krabbann í annað
sinn leitaði ég til Ævars og eftir það
fór krabbinn að minnka,“ segir Einar,
sem fór í athugun 6 árum síðar og
hafði þá krabbinn ráðist til atíögu að
ný:
„Þá greindist ég aftur með lítíð
æxh í nýrunum. Læknarnir voru
steinhissa á því hvað það hafði vaxið
hægt miðað við að það væri af sama
stofiii og æxlið sem var fjarlægt
áður,“ segir Einar og þakkar seyðinu,
sem hann hafði þá tekið í 6 ár.
„Ég tel að þetta sé alfarið vegna
þess að ég var að taka seyðið hans
Ævars. Það hægði á vextí æxlisins og
stöðvaði hann í raun að mestu," seg-
ir Einar, sem er enn í vandræðum
með hjartað þó hann telji sig vera al-
gjörlega laus við krabbameinið.
Settur í rafmagnsstólinn
„Hjartaáfallið hafði ég fengið áður
en krabbinn greindist í íyrst sinn. Svo
lent ég í vandræðum með það aftur í
fyrra. Þá fór helvítið að slá helmingi
of hratt. Ég var settur í rafmagnsstól-
„Fg er upptekin við að leika i indversk-enskri kvikmynd sem verður tekin upp í Portúgai, Frakklandi,
Bretland og Indlandi," segir söngkonan Leoncie Martin.„Ég erálslandi núna að undirbúa mig.
flyt ég frá Sandgerði. Sandgerðisfólkið hefur ofsótt mig rosalega. Húsið er komið á sölu og
tilboðið verður að passa mér vel, 8,5 milljónir króna. I gær var ég í Eymundsson í Reykjavík
og það kom hellingur afstrákum hlaupandi og fékk eiginhandaráritanir og myndir. En
heima íSandgeröi voru tvær unglingsstelpur að reyna að hræða mig með bumbunni
sinni, risastórri vömb sem þær höfðu. They don't scare me."
„Ég tel að þetta sé al~
faríð vegna þess að
ég var að taka seyðið
hansÆvars, Það
hægði á vexti æxlisins
og stöðvaðí hann í
raun að mestu."
inn og nú slær það á réttum hraða.
Þeir setja á mann rafskaut til þess að
koma hjartslættinum á réttan hraða,
það hefur virkað vel á mig og nú er ég
alveg 100 prósent," segir Ævar, sem
hefur aldrei hætt að taka seyðið síðan
hann smakkaði á því fyrst.
Einar drekkur nú eitt glas á hverj-
um morgni og trúir því að það komi í
veg fyrir frekari útbreiðslu krabba-
meins í lfkamanum.
„I upphafi tók ég helmingi meira
en nú,“ segir Einar. Hann er þakklát-
ur Ævari, sem aldrei hefur rukkað
hann um krónu þau 12 ár sem hann
hefur fengið hjá honum seyðið sem
Einar segir halda sér á lífi.
Orðunefnd hafnar Ævari
„Ég trúi því að þetta styrki ónæm-
iskerfið og varni þannig útbreiðslu
krabbans," segir Einar, sem neitar
stundum að taka
við seyðinu
nema fá að
skiija eftir
einhvem
smá aur upp
í kostnað.
Ævar hefur aidrei
rukkað hann né
nokkum annan fyrir seyð-
ið, vinnur sína vinnu í sjálf-
boðastarfi og leggur sjáifur út fyrir
kostnaði.
„Hann sýður og svo setur hann
flöskumar út á tröppumar hjá sér.
Síðan keyrir fólk fýrir utan hjá hon-
um og hirðir þetta upp, sumt án þess
að þakka fyrir sig,“ segir Einar, sem er
ekki í nokkrum vafa um að seyðið
hafi bjargað h'fi hans og erÆvari æv-
iniega þakklátur.
Einar hefur ásamt öðrum krabba-
meinssjúklingum safnað undirskrift-
um og sent á orðunefnd í þeim tfl-
gangi að Ævar verði sæmdur fálka-
orðu fyrir manngæsku og magnað
sjálfboðastarf í þágu sjúkra. Þeirri
beiðni hefur orðunefnd hafnað.
freyr@dv.is
Ævar Jóhannesson Hefursoðið
t jurtaseyði Í13 ár án þess að hafa
nokkurn tímann þegið greiðslu frá
skjólstæöingum sfnum. Krabbameins- .
sjúklingar eru Ævari þakklátir og sum- ’
ir telja sig eiga honum Iffað launa.