Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2004, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2004, Síða 12
12 FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST2004 Fréttir DV Allt stefnir í málsókn erfingja Jóhannesar Kjarval á hendur borgaryfirvöldum. Gunnar Eydal borgarlögmaöur segir að ekki verði orðið við óskum erfingja lista- mannsins um að skila munum úr dánarbúi hans. Kristinn Björnsson hrl., lög- maður erfingjanna, bíður eftir gögnum. n'ærri Áístað Berlusconis ítalska lögreglan gerði sprengju óvirka á Sardiníu, nærri sumarbústað Silvio Berlusconi, forsætisráð- herra ftalíu, aðeins nokkrum klukkutímum eftir heimsókn Tony Blair og eiginkonu hans Cherie. Sprengjan fannst eftir að ábending kom símleiðis frá manni sem sagðist vera liðsmaður í ítölskum öfga- hópi. Undanfamar vikur hafa öryggisráðstafanir ver- ið miklar á Ítalíu eftir hót- anir hryðjuverkahópa tengdum A1 Kaída um árás, dragi Ítalía ekki herhð sitt frá Irak. „Ég held að ég geti fullyrt að flest- ir nýútskrifaðir hjúkrunarfræðingar fái vinnu við sitt fag en því er ekki að neita að hjúkrunarfræðingar hafa ekki sama val og áður um vinnu," segir Elsa Friðfinnsdóttir formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Á Landspítalanum eru sparnað- araðgerðir í gangi og ekki bætt við hjúkrunarfræðingum nema stöður losni. Erla bendir á að áður fyrr þeg- ar skorturinn var hvað mestur hafi hjúkrunarfræðingar getað valið um deildir, vinnuú'ma og vinnuhlutfall. „Þær gátu nánast sagt að þær vildu vinna tvo daga í viku og aðeins á kvöldvöktum eða eitthvað viðlíka. Það er hins vegar liðin U'ð og þær geta ekki lengur valið. Á Landspítal- anum er alltaf hreyfing og enn þörf fyrir hjúkrunarfræðinga á öldrunar- deildum," segir Elsa. Elsa viðurkennir eigi að síður að í bæjunum næst höfuðborgarsvæð- inu séu biðlistar og á lidu stöðunum úti á landi þar sem aðeins ein eða tvær stöður hjúkrunarfæðinga séu fyrir hendi. Eins er ekki hlaupið að því að fá vinnu í stórum bæjum eins og á Akureyri og ísafirði. Elsa segir af og frá að hjúkrunarfræðingar ör- vænti um að fá ekki vinnu í framtíð- inni og nefnir í því sambandi öldr- unarhjúkrun. „Það er grein sem liðið hefur fyrir skort á starfsfólki og þar liggja til að mynda tæki- færi til að byggja upp skemmtilegt uppbyggingar- starf,“ segir Elsa. Elsa Friðfinnsdóttir for- maður félags íslenskra hjúkrunarfræðinga Þreng- 'st um °g hjúkrunarfræöingar velja ekki lengur um stöður. Eftirtalin námskeið verða haldin á — Upledger haustönn 2004 á ■ ■ instttute vegum Upledger wSI Island stofnunarinnar á íslandi(UIIC) Kynningarnámskeið Akureyri 20. og 21. ágúst Kynningarnámskeið í Reykjavík 03. og 04. September. CSTII 07.-10 október 2004. SERII 28.-31 október 2004. Clinical Symposium Ol.nóvember 2004. CSTI 04.-07. nóvember 2004. Upplýsingar og skráning eru í síma 466-3090. Á heimasíðunni www:upledger.is eru upplýsingar um námskeiðin og þar einnig er hægt að skrá sig á námskeiðin beint. Námskeiðahald fyrir árið 2005 verður sett upp fyrir 15. september á www.upledaer.is Ul á íslandi Hlíðarási 5 270 Mosfellsbær S: 466-3090. Gunnar Eydal borgarlögmaður segir að embætti hans hafi ákveðið að hafna kröfum erfingja Jóhannesar S. Kjarval um að fá aftur muni úr dánarbúi listamannsins sem borgin fékk í hendur við andlát hans árið 1968. Kristinn Björnsson hrl., lögmaður erf- ingjanna, skrifaði borgaryfirvöldum bréf með kröfunni fyrr í sumar en meðal annars er um að ræða nokkur hundruð teikn- inga eftir Kjarval og talið að verðmæti þeirra nemi hundruðum milljóna króna. Allt stefnir því í að erfingjarnir hefji málsókn gegn borgaryfirvöldum vegna málsins. Gunnar Eydal segir að krafa á borð við þessa hafi áður komið fram og verið hafnað. „Það er ekk- ert nýtt í þessari kröfu nú þótt segja má að hún hafi verið sett fram með formlegri hætti en áður," segir Gunnar Eydal. „Við höfum alltaf lit- ið svo á og gerum enn að þessir munir úr dánarbúinu séu eign borgarinnar." Beðið eftir gögnum Kristinn Björnsson segir að hann bíði nú eftir gögnum og lista yfir þá muni sem um er að ræða frá borgar- yfirvöldum. Hann segir að væntan- lega fái hann þessi gögn í hendur innan skamms og í framhaldi af því verði tekin ákvörðun um framhald- ið. Aðspurður um málsóknina segir Kristinn að hann geti í augnablikinu ekki sagt af eða á um hvort af henni verður. „Við höfum að vísu alltaf gert ráð fyrir að klára þetta dæmi og það væri undarlegt ef við færum ekki alla leið nú," segir Kristinn. Ingimundur Kjarval Það I var að frumkvæði Ingi- I mundar að málið var tekið I upp að nýju. Allt mögulegt Styrinn stendur einkum um 153 troðfulla kassa sem Kjarval skildi eftir sig en þar raðaði hann öllu mögulegu, allt frá tertuafgöngum til bóka og teikninga. Þetta er ígildi mjög ítarlegrar dagbókar og hefur sem slíkt ómetanlegt gildi. Það sem mest er um vert er að seinna kom á daginn að í kössunum eru um fimm þúsund teikningar. Sem fyrr segir fara teikningar eftir Kjarval ekki á undir hundrað þúsund krón- um og miðað við það eru verðmætin 500 milljónir. Þessir hlutir voru teknir af vinnustofu Kjar- vals árið 1968 en vitað er að gerð var ítarleg skrá um allt er komst í umsjá borgarinn- ar á þessum tíma. Ættingjar Kjar- vals hafa áður reynt að fá þessa muni afhenta en það er að frumkvæði son- ar hans, Ingimundar Kjarval, sem er sauðfjár- bóndi í New York-ríki, að þráðurinn hefur verið tekinn upp að nýju. •jrTf-'V wm. Gunnar Eydal „Það er ekkert nýtt í þessari kröfu nú þótt segja má að hún hafi verið sett fram með formlegri hætti en áður." Alltaf hreyfing á Land- spítalanum Þar er ekki leng ur ráðið nema stöður losni. Borgarlögmaöur hafnar krölum erlingja Kiarvals „Maður er bara í kokkaskólan- um hérna sem liggur næstum alveg niðri við Strikið. Hitinn hefur verið mikill og sett strik I reikninginn, sérstaklega vegna þess að ég á það til að svitna svolítið Landsíminn hefur gjörsamlega lamað mig. Við búum I góöu hverfí og ég gæti trúað þvl að það væri gott að vera með börn hérna. Svo er maður alltafað æfa sig I elda- mennskunni á kvöldin. Ég myndi segja að það að kaupa brauð og setja það f frystinn væri„billigforn0jelse‘‘,“segir Stefán Melsted, veitinga- maður f Kaupmannahöfn. Formaður segir þrengja að hjá hjúkrunarfræðingum Erfitt á að fá vinnu úti á landi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.