Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2004, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2004, Síða 14
n DOGUM immtudagar^ Kynlífsráðgjafinn Fostudagar Neytendamal Manudagar Heimilislæknirinn Miðvikudagar Þriðjudagar Fjölskyldumaðurinn Fréttir DV Þeir Gunnar Birgisson, Guðmundur Árni Stefánsson og Halldór Blöndal hafa eytt síðustu vikunni í sólinni í Kalíforníu sem fulltrúar íslands á sérstakri orkuráð- stefnu. Þar er rætt um jarðhita og vetni. Arnold Schwarzenegger, ríkisstjóri Kaliforníu, átti að mæta á ráðstefnuna en boðaði forföll. Guðmundur Árni segir það hans vandamál. Toptfmandinn hryggbraut íslensku hingmennina „Því miður boðaði Schwarzenegger forföll/' segir Guðmundur Árni Stefánsson þingmaður, sem er staddur í Kaliforníu á orku- ráðstefnu með þeim Gunnari Birgissyni og Halldóri Blöndal, þingmönnum Sjálfstæðisflokksins. Guðmundur Árni Stefánsson þingmaður Segir ráðstefnuna hafa gengið vel og margt verið Þremenningarnir hafa eytt síð- ustu viku á orkuráðstefnu í ríkinu þar sem ríkisstjórinn átti að halda ræðu. Þingmennirnir lýstu því yfir fyrir ferðina að þeir ættu von á skemmti- legri ferð og hlökkuðu til að hitta hasarhetjuna og vaxtarræktargoðið Arnold Schwarzenegger. í för með þingmönnunum eru makar og yfir- maður Alþjóðasviðs Alþingis. Arnold ákvað hins vegar að mæta ekki, hinum íslensku þingmönnum til mikilla vonbrigða. Rætt um jarðskjálfta „Það er nú bara hans vandamál," segir Guðmundur Árni en tekur fram að ráðstefnan hafi gengið prýðilega. „Við höfum rætt við fjölda þingmanna um orkumálin, vetni og fjölmörg atriði. Svo höfum við líka rætt um almannavarnir en Kali- fornía er mikið jarðskjálftasvæði eins og fsland." Svo virðist sem Kalifornía sé orð- in suðupunktur orkunýtingar og ný- sköpunar. í lok mánaðarins er- ís- lensk sendinefnd á leið tii Palm Springs til að kenna Kaliforníubúum nýtingu jarð- hita. Þar er einnig búist við því að Arnold Schwarzenegger, ríkisstjóri og hasarleikari, mæti á staðinn. Arnold ákvað hins vegar að mæta ekki, hinum íslensku þing- mönnum til mikilla vonbrígða. Einn af fulltrúum ísland verður Ásgeir Margeirsson, aðstoðarfor- stjóri Orkuveitunnar. Guðlaugi Þór Þórðarsyni, stjórnarmanni í Orku- veitunni, er einnig boðið en hann sagði í DV fyrr í mánuðinum að hann muni ekki fara á ráðstefnuna þó honum standi það til boða. Kosningaslagur í sólinni Þeir Halldór Blöndal, Gunnar Birgisson og Guðmundur Árni segj- ast hafa lært mikið í ferðinni. Guð- mundurÁrni segir einnig að sérstak- lega hafl verið áhugavert að fýlgjast með kosningaslagnum í Bandaríkj- unum en baráttan milli Gunnar Birgisson og Halldór Blöndal Schwarzenegger boðaði forföll. Safnað fyrir enska boltanum Enski boltinn á nippinu að komast vestur Bæjarráð Vesturbyggðar ákvað á fundi í gærmorgun að veita tvo styrki að upphæð 200 þúsund krónur hvor til kaupa á sjónvarpssend- um á Patreksfirði og Bíldudai þannig að íbú- um byggðarlaganna gefist kostur á að sjá út- sendingar Skjás eins og þar með enska boltann sem sjónvarpsstöðin hefur sýningarétt á. Nauðsynlegur búnað- ur kostar 1,8 milljónir króna á hvorum stað og er sjónvarpsstöðin reiðubúin að mæta þeim kostnaði , að hálfu náist að safna því sem á vantar í heimabyggð. Þá kemur fram að söfnun hafi staðið yfir á Patreksfirði og þar hafi safnast 650 þús- und krónur. Með framlagiVestur- byggðar hafa því safnast 850 þúsund krónur af þeim 900 þúsundum sem þarf að safna í heima- byggð og hillir því undir að íbúar á Patreksfirði geti set- ið við sjónvarpið í frístundum sínum og horft á beinar útsendingar frá ensku knattspyrn- Vinsæl íþrótt Ibúar Vesturbyggðar vilja gjarnan ná Skjá einum svo þeir missi ekki afenska boltanum. Arnold á blómatímanum nú ríkisstjóri í Kaliforniu. og Kerry hefur færst í aukana í Bandaríkjunum síðustu vikur. „Það er verið að kjósa til fylkis- stjórnar í haust þar sem þingmenn eru endurkjörnir. Hér er því byrjað- ur kosningaslagur og mikið um að vera. Svo er baráttan milli Bush og Kerry auðvitað áberandi. Það er trú manna að Kerry taki þetta ríki auð- veldlega," segir Guðmundur Árni í sólinni í Kalíforníu. simon@dv.is Listi birtur yfir hættulegustu hryðju- verkamenn Pakistans Hringurinn þrengist Yfirvöld í Pakistan birtu í gær lista yfir þá hryðjuverkamenn sem þau telja mikilvægast að verði handsamaðir. Auk þess buðu þau verðlaun gegn upplýsingum sem myndu leiða til handtöku á tveimur A1 Kaída meðlimum, eftirlýstum fyrir aðild þeirra að morðtilræði gegn forseta landsins. í auglýsing- unni, sem birtist á forsíðum tveggja stærstu dagblaða landsins, segir að þeir sem veiti upplýsingar muni njóta fullrar nafhleyndar. Með fylgdu tvö gjaldfrjáls símanúmer og netfang. Fimm þeirra eftirlýstu eru Pakistanar en einn er Líbíumaður. Virtust þeir aðeins vera eftirlýstir fyrir hryðjuverk á pakistanskri grundu. Að minnsta kosti 63 grun- aðir hryðjuverkamenn hafa verið handteknir í Pakistan síðan í júlí í Pervez Musharraf Slapp undan morðtil- ræði ídesember 2003. einni árangursríkustu herferð yfir- valda gegn hryðjuverkasamtökum Osama bin Laden. Segja yfirvöld að þau séu nálægt því að handtaka lyk- Umenn í samtökunum en vilja ekki meina að áðurnefndar handtökur muni leiða til handtöku á bin Laden.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.