Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2004, Qupperneq 3
m e ö m æ 1 i
Óhætt er að mæla með tónleikum
Egó í kvöld. Þeir hafa verið að troða
upp víða um land síðustu vikurnar og í
kvöld er komið að höfuðborginni. Ok,
þetta er bara eitt af þessum peninga-
lyktandi kombökkum sem tröllríða öllu
og Bubbi er orðinn sellout og allt það
en Egó var samt fínasta hljómsveit.
Það er heldur ekki á hverjum degi sem
menn geta öskrað „fjöllin hafa vak-
að!“ með fegurðardrottningu sér við
hlið án þess að þurfa að skammast
sín. Tónleikarnir eru nefnilega á Nasa.
Það er ffnt að kíkja í
Fiskbúðina Vör og
kaupa sér einhvern til-
búinn fiskrétt sem
maður hendir svo í
ofninn þegar
heim er komið.
Einfalt og
ódýrt, eða alla
vega ekkert
allt of dýrt.
Svo er létt að segja við konuna að
maður hafi gúllað þessu saman sjálfur
í einhverri tilraunastarfsemi og þetta
sé útkoman. Fiskikóngurinn kann að
sjá um sína og hver veit nema það
verði eee’s í kaupbæti?
Við mælum með því að fólk hætti að
henda tyggjóinu sínu á gangstéttina
og klína því undir borð. Betra er að
pakka því inn í bréf og
henda því þannig.
Þá getur tyggjó-
lausi minnihlut-
inn gengið
óhuitur um
götur án þess
að eiga það á
hættu að fá
klessu undir skóna
og um leið hætt að
saka fólk um að vísvitandi
knésetja ræstitækna og neyða þá til að
taka sér kíttisspaða í hönd.
Guð og sonur
hans Jesú virðast
hafa gleymst enn
og aftur. Það er
ekki nógu gott
enda synd að
hugsa ekki um Krist
og kristileg gildi
nokknjm sinnum
yfir daginn. Jesú
virtist vera að ná
fyrri frægð hérna
fyrr á árinu með
dyggri aðstoð frá
leikstjóranum Mel
Gibson en nú virð-
ist fólk hafa gleymt
Guði enn á ný, og
það rúmum tveimur
mánuðum fyrir jól.
Skamm!
Teiknimyndaþættirnir um Happy
Tree Friends á MTV eru afbragðs
skemmtun. Aðalpersónurnar eru lítil
krúttleg dýr sem tala með helíum-
röddum og vita fátt skemmtilegra en
að leika sér úti í náttúrunni. Þegar leik-
arnir standa sem hæst vill það þó oft-
ar en ekki gerast að einhver persón-
anna lætur lífið með frekar grófum
hætti.
Árlegt Oktoberfest verður haldið í kvöld í risatjaldi á túninu
fyrir framan aðalbyggingu Háskóla íslands. Mikið er lagt í
þennan viðburð sem mældist sérlega vel fyrir á síðasta ári þar
sem fjöldi fólks lét sjá sig og skemmti sér fram eftir kvöldi.
Herra Wenzl, sendiherra Þýskalands, mun setja hátíðina á
hádegi með því að stinga á bjórtunnu með táknrænum hætti.
Það verður mikið um dýrðir á
túninu fyrir utan aðalbyggingu
Háskóla íslands í kvöld því félag
þýskunema við Háskólann ætlar
að standa fyrir risa Októberfest,
með bratwurzt, salzbrezeln, kart-
offelsalat og að sjálfsögðu bjór,
bjór og meiri bjór.
Yfirvaraskegg og allir í röð
„Þegar við héldum Októberfest á
síðasta ári vonuðumst við til að fá
u.þ.b. fimmhundruö manns í tjald-
ið og að fólk færi að tinast inn um
áttaleytið en viðtökurnar voru
rosalegar, miklu betri en við höfð-
um búist við, það komu tólf hund-
ruð gestir og var tjaldið orðið troð-
fullt klukkan átta. Háskólanem-
arnir byrjuðu að flæða inn í tjald-
ið í þýskum fílíng með álímd yfir-
varaskegg og fleira í þeim dúr
strax klukkan sex, dælumar
gengu stanslaust allt kvöldið, við
þurftum að selja flöskubjór fyrir
utan tjaldið og á tímum var rúm-
lega þrjátíu metra röð fyrir utan
tjaldið" segir Silvía Seidenfaden,
ein af aðstandendum hátíðarinnar.
Að þessu sinni ætla þýskunem-
arnir að vera viðbúnir marg-
menni, enda eru háskólanemar
sérstakir áhugamenn um þýska
menningu, sérstaklega bjór. Verða
dælurnar nú átta í stað tveggja
áður, tjaldið verður 600 fermetrar
í stað 250 áður, lifandi Október-
festtónlist og mörg hundruð lítrar
af þýskum eðalbjór munu flæða
um tjaldið.
Heidi verður á svæðinu
Veglegar hálfs líters glerkrúsir
verða í boði undir veigarnar svo
allt sé ekta enda um alvöru Októ-
berfest að ræða. Festin er að þessu
sinni haldið í samstarfi við Lands-
bankann, Germaníu (félag
áhugafólks um Þýskaland) og
Becks.
„Herra Wenzl, sendiherra Þýska-
lands, mun setja hátíðina á hádegi
með því að stinga á bjórtunnu likt
og gert er við setningu á Oktober-
fest í Múnchen. Þetta verður mjög
flott og hvergi til sparað, hljóm-
sveitin Léttfetar mun spila
Týrólatónlist og Helga Braga mun
mæta í gervi Heidi og skemmta
fólki. Þetta verður án efa vegleg-
asta Oktoberfest sem haldið hefur
verið á íslandi," segir Silvía og
bætir við að þýskunemar eigi von
á enn fleiri bjórþyrstum háskóla-
nemun í ár. Hún hvetur fólk til að
mæta snemma, tryggja sér sæti við
langborðið, fá sér bratwurst,
brezeln og ískaldan bjór, því það sé
stórkostlegt á Oktoberfest.
Flestum finnst gaman að detta í það.
Það hefur samt sína ókosti: Timbur-
menn. Fókus gróf upp nokkur
gömul ráð sem eiga að hjálpa.
Ávextir og kynlíf
Eitt ráð er að kreista þrjár appel
sínur og eina sítrónu og drekka
það allt í einum teyg. Síðan að
fara í langa sturtu og stunda
kynlíf þangað til þynnkan er far-
inn. Skemmtilegt og áhrifaríkt.
Bjórtappatrikkiö
Gott ráð er að setja bjórtappana alltaf í
vasann þegar maður fær sér bjór. Þegar
heim er komið geturðu talið hvað
þú drakkst marga. Síðan drekk-
ur maður jafn mikið af vatni
áður en farið er að sofa.
Læknirínn
Ef fólk er virkilega timbrað er
gott að fara til læknis. Hann
getur skrifað upp á 500-
1000 mg verkjatöflur sem
geta drepið Satan sjálfan.
Svona losnarðu
við þynnkuna
Gott er að skola töflunum
niður með orkudrykk til að fá
virkni.
Banani og B-vítamín
Það svínvirkar að taka inn B-vítamín,
borða einn banana og steikja sér
tvö egg. Drekka svo mikið vatn og
eftir smá stund hreinsar maginn
j ’ sig, ekki er ábyrgst hvoru megin
— hreinsunin á sér stað.
Klakakúrínn
Borða klaka og
mikið af honum.
Þetta veldur
gjarnan miklum
. höfuðverk og
þegar kuldaverk-
urinn hverfur er
þynnkan bara
barnaleikur. Svo
virkar vatnið líka vel á magann
g f n i
Hilmar Guöjónsson
Leikur sam-
kynhneigðan
son geita-
elsknuga 4
Guórún María
í Nœsland
Fetar í fót
spor Brando
og Deniro í
New York.
Taktu prófið
Ertu farinn
að hugsa
eins og
kona?
7
Landslag íslenska
poppheimsins
Hver er
hvar á popp-
landakort-
inu? 8-9
Ace á leiöinni á
Airwaves
Hatar hval-
Höt en
akkar til að
hitta
Mínus 11
Sólveig Einarsdóttir
Myndlistar-
konan sem
býr til lunda
úr lakkrís 13
Hljómsveitin Baul
Verfallsrokk-
arar sem
rífa kjaft
Þorsti i
Reykjavík
Hverjir
eru að
drekka
hvað? 15
Líf iö
ef tir
vinnu
• Hverjir voru hvar?
• Egó i Reykjavík
• Jóhann G. kominn
heim í Hárió
• Bíófrumsýningar
• Djammkort íslands
Forsíðumyndina tók Teitur af
Sólveigu Einarsdóttur
1. október 2004 f Ókus