Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2004, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2004, Blaðsíða 4
Hefur þú nef fyrir nefum? Þjóðþekkta fólkið hérna að neðan er búið að týna nef- inu sínu. Getur þú hjálpað þvl að finna rétta nefnið? Hilmar á afmæli í dag. Hann er líka að leika í Borgar- leikhúsinu í verk- inu Geitin. í sum- ar fór hann mikinn á Útvarpi KR þar sem hann lýsir leikjum liðsins. Hilmar er líka í hljómsveitinni The Cousins sem er skipuð bróður hans og frænd- systkinum. „Ég hef alltaf verið dálítið fyrir athyglina, alltaf verið uppi á sviði að gera hitt og þetta - verið í hljómsveitum, leikið í auglýsing- um og tekið þátt í leikritum," seg- ir afmælisbarnið Hilmar Guðjóns- son, sem er tvítugur í dag. Hann fer með hlutverk Billy í leikritinu Geitin sem sýnt er á nýja sviði Borgarleikhússins. Byrjaði sem Rauða Ijónið Hilmar er mikill áhugamaður um knattspyrnu og er KR-ingur í húð og hár. Hann æfði lengi með félaginu, lék Rauða ljónið á hinu sögufræga ári Vesturbæinga 1999 og lýsir nú leikjum liðsins á KR- útvarpinu. „Ég var upphaflega ráðinn til að leika Rauða ljónið á KR-vellin- um og svo þegar Kristinn Kærne- sted hvarf á braut í KR-útvarpinu var kallað í mig. Þetta var annað sumarið mitt í því,“ segir Hilmar, sem útilokar ekki að leggja fjöl- miðlana fyrir sig í framtíðinni. Hann segist einnig hafa íhugað að reyna við Leiklistarskólann en eins og staðan sé í dag sé það bara óráðið. „Sagan á bak við það hvernig ég fékk þetta hlutverk er þannig að ég var beðinn um að koma í prufu sem ég gerði. Þar gerði ég bara eins og María Reyndal bað mig og það fór svo að ég var ráðinn," seg- ir Hilmar. mfma-. ■ Rauða Ijónið í Borgarleikhúsinu Ráðinn í verkfall Hann hefur auk þess ráðið sig til starfa í grunnskóla í heimabæ sínum Seltjarnarnesi þar sem hann ætlar að vinna með fötluð- um börnum. Einhver bið verður þó á því að hann hefji störf vegna kennaraverkfallsins. „Á meðan er ég bara að leika sem er ágætt. Ég hef lært mikið af fólkinu sem ég er að vinna með i leikhúsinu og þetta er þrælgaman. Leikritið er kómískt drama í leikstjórn Maríu Reyndal en Eggert Þorleifsson fer með aðalhlutverkið. Hann leikur mann sem lifir fínasta lífi, er gift- ur og á son. Ég leik soninn og Sig- rún Edda leikur mömmu mína. Effenberg. Svona kall sem kann þetta og klikkar ekki." jlMSBii AilllljTlflijl I líllWHiimimT 1 iIM * (J hl i IB’i [•■ J íh liYt Svo fer Þór Túliníus með hlutverk besta vinar hans. Persónan mín heitir Billy og er 17 ára piltur sem er nýskriðinn út úr skápnum. Það hjálpar honum svo ekkert voða- lega mikið þegar hann kemst að því að pabbi hans er orðinn ást- fanginn af geit,“ segir Hilmar um verkið sem einmitt verður sýnt í kvöld í Borgarleikhúsinu. Tónlistin spilar sína rullu í lífi Hilmars og er hann rythmagítar- leikari í hljómsveitinni The Cousins. „Sveitin er skipuð mér og bróður mínum ásamt þremur frændsystkinum okkar. Við höfum svona verið að taka að okkur helstu fjölskylduboðin og stefnum hátt, allavega hærra. Jafnvel að við tökum eitthvað ættarmót einhverntíma," segir Hilmar. „Við höfum samt aðallega verið í jólaboðunum þannig að það er mikill æfingatimi fram undan." KVArtaMír/Aöbbu SmAiÆP'omiR 4 f Ó k U S 1. október 2004

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.