Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2004, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2004, Blaðsíða 6
Hvenær kemur ? Hvenær kem <MÍ Kvikmyndin Næsland verður frumsýnd fyrir almenning í kvöld. Ein af aðalleikonum myndarinnar er Guðrún María Bjarnadóttir, 23 ára leikkona sem nú stundar nám í New York í sama skóla og bjó til Marlon Brando, Robert De Niro og Melanie Griffith. Guðrún María kann vel við lífið í Stóra eplinu þar sem hún býr ásamt fimm öðrum íslenskum stelpum. Tónlistarmað- urinn Gísli hef- ur talsvert verið í umræðunni þetta árið en allt í einu datt eitt- hvað lag með honum inn á MTV og skömmu síðar var búið að bóka hann á Hróarskeldu- hátíðina. Hann fékk svo sæmileg- asta plötusamning og eftir helgina kemur fyrsta plata hans í verslan- ir í Evrópu. Það verður gaman að heyra þessa frumraun Gísla en platan heitir How About That. Gísli verður svo á ferðinni næstu vikurnar til að kynna þetta efhi sitt. Hann er búinn að vera víða í Noregi og Bretlandi en nú er hann á leiðinni um meginland Evrópu. Nú bíðum við bara eftir að hann komi heim. Skæm- liða- diskó Quarashi er u.þ.b. að senda frá sér nýja plötu. Platan er tekin upp í hinum og þessum hljóverum á höfuðborgarsvæðinu en lokafrá- gangiu- fór fram í New York þar sem Howie nokkur Weinberg rak smiðshöggið á verkið. Platan mun heita Guerilla Disco og koma út um miðjan mánuðinn. Forvitnilegt verður að heyra útkomuna en eins og fólk veit hefur Hössi nú horfið á braut og Tiny tekið við. Þá hef- ur Sölvi sagt að platan sé mjög frábrugðin því sem fólk á að venj- ast þótt mikill munur hafi ekki heyrst á þeim lögum sem þegar hafa heyrst frá sveitinni. Við bið- um og sjáum hvemig lokaútkom- an verður. tvífarar ■HBmebSSíííí I '",i \kSSfm3SmSSm „Ég var nú bara að vinna í sjoppu á Grundarstíg og Baltasar Kormákur var reglulegur gestur þar og tók eftir mér. Hann bað mig um að koma í prufu fyrir 101 Reykjavík sem endaði með því að ég fékk smá hlutverk í myndinni. Það var fyrsta hlutverkið mitt,“ segir Guðrún María Bjarnadóttir leikkona en hún leikur í kvik- myndinni Næsland sem verður frumsýnd í kvöld. í félagsskap með Brando, Beatty og Den Niro Guðrún María hefur undanfarið búið í New York þar sem hún stundar nám í leiklist við Stella Adler-skólann á Manhattan. Fólk á borð við Warren Beatty, Marlon Brando, Martin Sheen, Kevin Costner, Robert De Niro, Benicio Del Toro og Melanie Griffith stundaði á einhverjum tímapunkti nám við skólann þannig að óhætt er að segja að Guðrún sé í góðum höndum. Áður en hún hélt til Bandaríkjanna hafði hún eins og svo margir aðrir reynt að komast inn í leiklistarskólann hér heima en án árangurs. „Ég reyndi að komast inn í þrjú skipti. Ég komst alltaf inn í 20 manna hópinn en aldrei inn þannig að ég ákvað bara að fara út og gera þetta þar þannig að þið þarna úti, ekki gefast upp, það eru aðrir skólar," segir Guðrún María. „Við vorum 18 saman í bekk til að byrja með en svo var ein stelp- an rekin þannig að við erum 17 núna. Hún bara var ekki nógu fók- useruð á námið þó hana hafi ekki skort hæfileika og þess vegna var hún látin fara. Því miður var þetta ein af bestu vinkonum min- um í bekknum og það var þvi mjög sárt að hún skyldi ekki fá að vera áfram. Annars kann ég bara vel við skólann og kennararnir eru frábærir. Borgin skemmir heldur ekki fyrir, fuli af steypu og skrýtnu fólki.“ Býr með fimm stelpum „Ég bý hérna í Brooklyn með fimm öðrum stelpum frá íslandi og kann mjög vel við mig. Ég kynntist þeim bara í gegnum vin- konu mína og var í raun bara heppin að komast að hjá þeim því það er ógeðslega erfitt að finna húsnæði hérna,“ segir Guðrún María, sem gæti vel hugsað sér að setjast að í Stóra eplinu þegar hún hefur lokið námi. „Það er samt hægara sagt en gert. Sérstaklega ef maður ætlar að reyna að fá eitthvað að gera í leiklistinni eða í einhverju henni tengdu. Það skiptir öUu að fá sér umboðsmann áður en maður út- skrifast og það er hægara sagt en gert. Svo er þetta alltaf vandamál með íslenska hreiminn. Hann má helst ekki vera til staðar ætli mað- ur að eiga einhverja von um að fá eitthvað að gera. Svo er borgin náttúrlega full af listamönnum sem aUir eru að reyna að koma sér á framfæri," segir Guðrún María. Frí á föstudögum „Venjulegur dagur hjá mér er bara þannig að ég vakna á morgn- ana og þarf aö vera komin í skól- ann klukkan níu eða tíu. Það tek- ur mig svona klukkutíma að kom- ast niður á Manhattan og svo er ég í skólanum fram á kvöld. Það er reyndar frí á föstudögum en svo notum við helgarnar mikið tU að æfa okkur. Mest af minum tíma fer þess vegna í námið,“ seg- ir Guðrún María, sem er stödd hér á landi yfir helgina vegna frum- sýningarinnar á Næsland. „Það er frábært að komast svona aðeins heim og heUsa upp á fjölskyldu og vini og svo hlakkar maður auðvitað tU að sjá mynd- ina. Næsland fjaUar um strák sem er svona aðeins eftir á eða mis- þroska og ég leik kærustuna hans. Þetta er eiginlega þroskasaga hans hvað ástina varðar og eiginlega bara lífið sjálft," segir Guðrún en myndin er öU á ensku og segir Guðrún Maria að það hafi verið erfitt fyrst en fljótlega vanist. „Myndin var tekin upp sumarið áður en ég hóf námið. Þetta var virkUega skemmtUegur tími og hluti af myndinni var tekin upp í Þýskalandi. Myndin á samt ekki að gerast á neinum ákveðnum stað eða stað sem við þekkjum í raunveruleikanum en nafnið Næs- land vísar einmitt tU þessa „einsk- ismannslands" sem atburðir sög- unnar eiga sér stað á,“ segir Guð- rún María. Kind sem er alltaf til í tuskið Karl Slgurbjörnsson Karl Slgurbjörnsson Ott er það svo að þó menn líkist útlitslega og beri jafnvel sama nafn þá getur innrætið ver- ið ólíkt. Þannig er það að vissu leyti með tvífara vikunnar. Báðir heita þeir Karl Sigurbjörnsson og eru langskólagengnir. Annar þjónar Guði almáttugum og titlar sig biskup á meðan hinn titl- ar sig hæstaréttarlögmann en margir segja lögfræðinga einmitt vera handbendi djöfulsins. Með þessu erum við ekki að segja að Karl lögfræðingur sé vondur maður eða Karl biskup sé algóður. Það er einfaldlega skemmtileg tilviljun að mennimir skuli heita sama nafninu, vera svona sláandi likir í útliti en samt sem áður vera i sitthvorum enda þjóðfélagsins - annar reyn- ir að finna það góða i manninum á meðan hinn reynir að taka það góða frá honum. Það er ekki að spyrja að því þegar kemur að úrvalinu í klámbúðum landsins. Vasapíkur, gervilimir, snípakítlur, sleipiefni, klámmyndir og annað í þeim dúr þykir með sjálf- sögðustu hlutum í dag en alltaf er eitthvað í þessum búðum sem er frekar vafasamt. í verslunni Venus Erotic Store að Freyjugötu 1 er t.d. hægt aö fá uppblásið lamb sem er sérstaklega hannað með ástarleiki í huga. Fram að þessu hefur mest sala verið í uppblásnum konum en nú hafa menn í klámbransanum séð viðskiptatækifæri í búfénaði. Hvort þetta tengist landbúnaðarráðuneyt- inu og Nýsköpunarsjóði með ein- hverjum hætti er ekki gott að segja en í það minnsta er verðið á lambinu ekki nema tæpur 2.000 kall á meðan konurnar eru mun dýrari. Þetta hefur fengið marga til að hugsa hvort lömbin seú að einhverju leyti niður- greidd af hinu opinbera. Umrædd kind kostar ekki nema tæpan 2000 kall og er ailtaf til í tuskið. f Ó k U S 1. október 2004

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.