Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2004, Page 7
farinn að I
eins og
Nú á tímum þykir ekkert
spunnið í karlmann sem
ekki telst vera metró-
sexúal. Þetta hefur valdið
miklum uppgangi í sölu
á hvers kyns snyrti-
vörum fyrir karlmenn
svo fátt eitt sé nefnt en
margir hafa áhyggjur af
því að allt þetta metró-
tal sé farið að ganga of
langt. Sumir taka svo
djúpt í árinni að segja
marga karlmenn raun-
verulega farna að hugsa
eins og konur. Taktu próf-
ið og athugaðu hvorum
megin við strikið þú ert.
■B Þú borðar á Grænum kosti þótt þér þyki ekkert sem þar er
á boðstólnum gott.
Þér finnst oft betra að kúra bara með kærustunni.
Það er handáburður í hanskahólfinu hjá þér.
Þú veist hvað fötin þín heita.
Þú drekkur Breezer frekar en bjór.
Þú hlustar á Létt og Bylgjuna frekar en Radíó Reykjavík og
Þú dælir aldrei sjálfur bensíni á bílinn
•B Þú reynir að breyta um umræðuefni þegar talið berst að
konum og knattspyrnu.
Þú hringir í vini þína bara til þess að
spjalla.
Þú leiðir kærustuna þína þegar þið eruð að labba saman.
•B Þú mætir reglulega á fundi hjá
Félagi ábyrgra feðra.
■Þ Þú stendur þig stundum að því að hafa skipt af Meistara-
deildinni yfir á Fólk með Sirrý.
•• Þú bara sérð ekki hvað er svona
heillandi við að vera með tveimur
konum í einu.
Þú býrð um rúmið þitt um leið og þú ferð á fætur.
• Þú varst móðgaður þegar Siv var látin hætta sem umhverf-
isráðherra.
■I Þér fannst strandblakið á
Ólympíuleikunum vera asnaleg
íþrótt.
Þú lest stjörnuspána þína.
Þú ert á Herbalife eða sambærilegu fæði.
Þú pissar sitjandí
Tíu til fimmtán fullyrðingar sannar:
Þú hefur orðið fyrir skemmdum en ert samt ennþá í smá
sambandi við karlinn í sjálfum þér. Farðu samt varlega svo
þú breytist ekki alveg í konu. Reyndu að haga þér ruddalega
- prumpa og ropa á almannafæri og svoleiðis.
Færri en fimm fullyrðingar sannar:
Þú ert alvöru karlmaöur og veist af því. Það er aftur á
móti spurning hvort skoðanir þínar séu i takt við tíöar-
andann því einhverjir gætu gengið það langt að kalla þig
karlrembu.
Fimmtán til tuttugu fullyrðingar sannar:
Þú hugsar eins og kona. Það virkar kannski heillandi fvrir
einhverjar „kynsystur þinar" en félagarnir verða fljótir að
yflrgefa þig ef þú heldur þessu áfram. Beckham lítur út eins
og Schwarzenegger við hliðina á þér.
Fimm til tíu fullyrðingar sannar:
Þú ert í ágætis sambandi við karlmanninn í sjálfum þér en
samt sem áður viðráðanlegur fyrir kvennþjóðina. Þú tryllir
ekki en ert samt i húsurn hæfur. Meðalmennskan í fyrirrúmi.
Ævi
sett í söngleik
Söngleikur sem byggöur verður á ævi Johnny Cash er nú í smíðum. Lög
kappans og eiginkonu hans, June Carter Cash, munu að sjálfssögðu vera allt
í öllu i þessari uppsetningu en áætlað er að frumsýna sönglcikinn á Broad-
way snemma árs 2006. Ævi Cash er öll hin áhugaverðasta en hann var mik-
ill sukkari héma áður fyrr og á síðari stigum skipaði trúin mikinn sess i lifi
hans. Þetta verður allt saman tekið fyrir i söngleiknum en svona uppákomur
hafa verið mjög vinsælar siðustu ár. Rod Stewart-söngleikurínn er nú að fara
á fullt, We Will Rock You sem byggður er á tónlist Queen hefur gengið vel víða
um heim og það sama verður sagt um Mamma Mia sem byggður er á Abba-
lögum. Hvort eitthvað verðí svo varið í þessa uppsctningu er ekki gott að
segja en hörðustu aðdáendur kappans em litið hrifnir af uppátækinu og segja
það sýna peningagræðgi og óvirðingu við söngvarann.
SKARTHÚSIÐ
Einnig barnastærðir.
Margir litir.
Stærðir 34-41
—
Verð: 1 par 1.290
2 pör 2.000
Sendum í póstkröfu
/f /> /' 7 // o .//a
HAIR ft AIRBRUSH STUDIO
Tímapantanir > 5111552
ÆL
Tilboð á airbrush brúnkumedferd
2.900 kr. sem gildir til 15. okt.
Skráning á airbrush námskeiðin
fyrir nóvember er hafin.
Póshússtræti 13 >101 Reykjavik
www.supernova.is
1. október 2004 f ÓkUS