Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2004, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2004, Page 12
Fræðimenn hafa talið okkur trú um að það sé meiri heilastarfsemi í gangi þegar við erum sofandi en þegar við horfum á sjónvarp, Samt lærir fólk meira af sjónvarpsglápi en svefni. í rauninni slokknar bara á meðvitundinni þegar við dettum inn í eitthvert sjónvarpsefni og þess vegna er í raun verið að dáleiða okkur og fylla hausinn á okkur af alls konar vitleysu. Hérna eru dæmi um það sem sjónvarpið hefur kennt okkur en er í raun kjarftæði. Er þetta svona 4) i alvorunnF Vont fólk hlær hátt og asna- lega. Það er hægt að leysa öll vandamál helmslns meö lítilli ferðatölvu. Allir tölvufælar komast fyrir á eln- um floppídisk. Hundar skynja náttúruna og innræti manna. ) Vondir kallar eru ríkir og með skegg. Löggur geta brotiö upp hurðir með öxlinni i) Tilfinninga- næmlr menn kunna á hljóðfæri. 1 Gamlir Asíubúar eru gáfaðir og tala f gátum. Konur sem kasta upp eru ófrísk- Reitt fölk brýtur spegla. Barþjónar hlusta, sýna samúð og bjóða upp á fría drykki Gáfað fólk er með gleraugu. Það er alltaf hægt múta þjónustufólkí Gáfað fólk sem á vel saman hefur leslð sömu bæk- urnar. Konur fara aldrei á túr. Það tekur nokkrar mínútur að skrifa flókinn tölvuvírus. P Vondir menn eru virki- lega lélegar skyttur. Ailir eiga rómantískar minningar frá París. Illmenni taka sér góðan tíma í aö drepa erkióvinl sína og vilja gera það meö stæl. ; ~ aðj ) Vírar í sprengj- um eru mls- munandl á lit- Inn. . Hetjur rata alls staðar og spyrja aldrei til vegar. Fólk þarf aldrei aö læsa hurðum en alltaf að opna. Það er alltaf einhver sem byrjar að klappa og kem- ur af stað keðjuverkun ákveðnum mómentum. Tölvunördar geta brotlst inn f hvaða kerfi sem er á 15 sekúndum. Mikilvægt fólk er alltaf með hóp fréttamanna f kringum sig. im \ J Allar konur líta vel þegar þær vakna. Um leiö og eitt- hvað dettur springur það. 'v. J Þegar fólk vaknar við sím- ann er hann alltaf við hliðina á rúminu. Ertu orðin(n) of sein(n)? „Þeir sem eru óstundvísir eru í eðli sínu bjartsýnir og þeir sem eru stundvísir eru í eðli sínu svartsýnir." Þessu hélt kennar- inn minn fram í byrjun eins tím- ans þegar nemandi mætti of seint. Hann rökstuddi fullyrð- inguna með því að óstundvíst fólk reiknaði ætíð með því að allt myndi ganga eins og í sögu á leiðinni á stefnumótið en þeir sem væru vanir að mæta á réttum tíma, tækju það iðulega með í reikn- inginn að allt gæti fariö úrskeið- is áður en á leiðarenda væri komið. Mér fannst þessi kenning dáld- ið merkileg, þó að ég þykist vita að hún hafi ekki verið sett fram í fyllstu alvöru. Merkileg fyrir þær sakir að hún kemur illu orði á þá sem mæta á réttum tíma og láta þar af leiðandi eng- an bíða eftir sér, en hefur slugs- ana og dónana sem alltaf mæta of seint upp til skýjanna, í líki einhvers konar gleðigosa sem sökum einskærrar hamingju og bjartsýni er fyrirmunað að mæta á réttum tíma. En ég held að þessi kenning geti átt við fleiri þætti i okkar eðli en bara stundvísi. Ég held til dæmis að þeir sem eru gleymnir séu líka ómót- stæðilega hamingjusamir og bjartsýnir. Það getur ekki verið til neins að muna nokkurn skap- aðan hlut ef sá hinn sami trúir því að allt muni af sjálfu sér leiða til góðs hvort eð er. Fólk sem gleymir því hvað þú heitir eða hvað þú gerir, hvenær það hitti þig síðast og hvenær það átti að hitta þig í gær er þegar á botninn er hvolft, ekki ókurteist eða illa innrætt. Það er bara ein- faldlega að springa úr bjartsýni og hamingju. Þeir sem ljúga eru líka ótrúlega glaðlyndir og bjartsýnir einstak- lingar. Sérstaklega þeir sem ijúga stórt. Að troða til dæmis inn á sig sokkum eða fara i wonderbra áður en maður fer á út á lífið seg- ir aðeins til inn það hversu bjart- sýnn sá hinn sami er um að hið sanna muni aldrei koma í ljós. í raun þyrfti maður að vera hinn versti þunglyndissjúklingur til aö taka það með í reikninginn. Svo eru það þeir sem svíkja og stela. Glaðlyndara fólk er vart hægt að finna og þeir sem halda framhjá eru svo bjartsýnir að helst væri að líkja því við snjóblindu. Því sýnist mér, eftir þessa skarpskyggnu athugun á mann- legu eðli, að þeir sem almennt standa fyrir þeim gildum og þeim viðteknu venjmn og siðum sem af einhverjum sökum eru talin heppileg í okkar samfélagi, eru ekkert annað en sjálfsmorðs- hugsandi þunglyndissjúklingar. Óþolandi fýlupúkar sem arka niðurlútir um stræti borgarinn- ar með annað augað á arm- bandsúrinu en hitt á misfellun- um í gangstéttinni. Og þá spyr ég: Er það tilefni til bjartsýni? Höskuldur Ólafsson f Ó k U S 1. október 2004

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.