Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2004, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2004, Page 4
4 MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 2004 Fréttir DV Sigfús J. Árnason, prófastur á Hofl í Vopnaflröi, er að kveðja sókn sína eftir * H að hafa þjónað á einhverri mestu hlunnindajörð landsins í aldarQórðung. JSHS. iis ' Laxveiðiréttindi í Hofsá hafa gert honum kleift að þjóna sóknarbörnum og *______gUði sínum. Svipti sig lífi eftir dóm Fertugur karlmaður, sem í fyrradag var fundinn sekur og dæmdur í þriggja ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrir ítrekuð kynferðisbrot gegn stjúp- dóttur sinni og vinkonu hennar, fannst látinn í fyrr- inótt. Hann svipti sig lífi. Maðurinn var fimdinn sek- ur um að hafa margoft m'ðst á stjúpdóttur sinni á árunum 2002-2003, þegar hún var 14 og 15 ára, ýmist á vinnustað sínum eða heimili þeirra. Hann var líka dæmdur fyrir að hafa lagst ofan á og káfað á vin- konu og jafnöldru stúlk- unnar. Óþægileg sms Persónuvemd hafa borist fjölmargar fyrir- spurnir í kjölfar tilboða sem mönnum berast með sms-skilaboðum eftir að hafa hringt í aug- lýst gjaldsímanúmer. Margir kvarta yfir að hvorki hafi komið fram hver sendi umrædd sms- skilaboð né hvernig losna megi undan fleiri slíkum skilaboðum. Þá hefur verið kvartað yfir því að í auglýsingum um gjaldsímanúmer hafi ekki komið fram að símanúmer þeirra sem hringdu í viðkomandi númer yrðu síðar notuð í markaðssetningarstarfi. Brennuvargur fyrir dómi Héraðsdómur Reykja- víkur tók fyrir í gær mál 18 ára drengs sem er ákærður fyrirað kveikja í þremur bifreiðum á Lindar- götunni á síðasta ári. Drengurinn lagði eld að einum bíl en í kjölfarið barst eldurinn til tveggja aðliggjandi biffeiða svo mikið tjón varð af. Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður drengsins, krefst vægustu refsingar. Hann sagði strák- inn hafa verið á þunglynd- islyfjum og drukkið ofan í þau. Hann hefði nú tekið sig á og væri byrjaður aftur í skóla. Prófasturinn á Hofi í Vopnafirði kveður laxabrauðið við Hofsá, eina eftirsóttustu veiðiá landsins. Veiðiréttindin hafa fært séra Sigfúsi J. Árnasyni salt í grautinn síðasta aldar- fjórðunginn. „Tekjumar hjá mér sveiflast. Þetta er sýnd veiði en ekki gefin," segir séra Sigfús J. Ámason, prófast- ur á Hofi í Vopnafirði, sem er á för- um úr prestakallinu og ætlar að setj- ast að í Reykjavík. Um leið kveður séra Sigfús einhverja mestu hlunn- indajörð landsins sem státar af 20 prósent eignarhlut í Hofsá sem varð fyrir valinu þegar Karl Bretaprins vildi renna fyrir lax hér á ámm áður. Heimsendir „Þetta er einangrað-landsvæði, nánast heimsendir, og hér myndi enginn endast til að sitja nema hafa eitthvað meira en prestlaunin stríp- uð. Konan mín hefur til dæmis aldrei fengið vinnu héma og ef það em ekki al- menn mannrétt- indabrot þá veit ég ekki hvað það er,“ segir séra Sig- Séra Kristinn á H°fi’ en Jens Sigurþórs- Hofsá er draumur son HefurLaxáí erlendra laxveiði- Leirársveit. manna um heim allan. „En það hef- ur gengið á ýmsu með fiskgengd í þessari á. Eitt árið veiddist ekki nema 141 fiskur í Hofsá en annað árið 2400 fiskar. Þá sveiflast tekjum- ar," segir séra Sigfús. „Þær hafa ver- iðeinsogjójó." Ekki á topp-tíu Prófasturinn á Hofi vill ekki gefa upp hversu miklar tekjur hann hefur haft af Hofsá í krafti embættis síns á undanfömum ámm. Það sé hans einkamál. En hann viðurkennir fús- lega að oft hafi það verið þolanlegt þótt hann hafi aldrei komist á topp- tíu lista yfir tekjuhæstu presta lands- ins. Hitt sé rétt að laxinn hafi haldið ísérh'finu. „Við erum bara settir niður á þessa staði og ráðum engu um það og verðum að fara að lögum eins og ökumaður verður að fara eftir um- ferðarlögum," segir séra Sigfús. Munar um hverja krónu Meðal annarra presta, sem sitja á Séra Lára G. Oddsdóttir Fékk á aðra millión afsölu hreindýraveiöileyfa. Séra Sigfús J. Arnason Tekjurnar eins og jójó en Hofsá stendur fyrir sínu. í 4 Séra Gunnar Kristjansson Hefur Laxá I Kjós. laxveiðijörðum og drýgja tekjur sín- ar með sölu laxveiðileyfa, má nefna Kristinn Jens Sigurþórsson á Saur- bæ í Hvalfirði. Laxá í Leirársveit er hluti af jörð hans: „Það er eins hjá okkur prestun- um og kennumnum, það munar um hverja krónu," segir séra Kristinn Jens en aftekur þó með öllu að Laxá í Leirársveit margfaldi laun sín. „Það er af og frá,“ segir hann. Á Reynivöllum í Kjós situr séra Gunnar Kristjánsson. Hann er ekki margmáll um hlunnindin sem hann hefur af Laxá í Kjós sem lengi hefur verið ein vinsælasta laxveiðiá lands- ins. „Það munar vissulega um það hvort maður situr á þokkalegri jörð eða ekki en því ræður maður ekki sjálfur," segir séra Gunnar á Reyni- völlum. Hreindýragróði Af Austurlandi berast svo þær fréttir að séra Lára G. Oddsdóttir á Valþjófsstað hafi á síðasta ári haft eina milljón og tvöhundmð og fimmtíu þúsund krónur í tekjur af sölu hreindýraveiðileyfa. Bætast þau hlunnindi ofan á prestlaun hennar sem þegar vom orðin ærin þegar hún fékk tæpar m'u milljónir í bætur frá Landsvirkjun vegna jarðaraska í tengslum við fram- kvæmdimar á Kárahnjúkum. Fjör í Melabúðinni Svarthöfði er Vesturbæingur og fílar það í botn. Því gladdi það hann sérstaklega þegar hann sá kaup- manninn sinn í Melabúðinni í blað- inu í gær veifandi vínflöskum og bjór með yfirlýsingum um að til stæði að opna vínkjallara í búðinni. Það er einmitt þetta sem vantað hefur í Vesturbæinn. Vínkjallara sem virkar. Þegar Svarthöfði verður þyrstur er ekki í mörg hús að venda í Vestur- bænum. Annað hvort er að rölta út á Mímisbar eða á Rauða ljónið á Eiðis- torgi. Fer eftir vindátt hvort verður ofan á. Gallinn er bara sá að ekki er nógu skemmtilegt á þessum sjald- gæfu vínstofum Vesturbæjarins. Á Mímisbar eru bara útlendingar en á Rauða ljóninu helst KR-ingar. Og þar sem Svarthöfði talar hvorki út- lensku né spilar fótbolta á hann ekk- ert erindi á þessa tvo staði. Annað mál með Melabúðina. Þar hittir Svarthöfði fólk af eigin sauða- húsi. Menn sem bragð er að og kon- ur sem kippa í kynið. Þarna er hægt að spjalla út í eitt á meðan kræsing- arnar eru skoðaðar, en vöruúrval í Hvernig hefur þú það? „Ég hefþað fínt," segir Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmaður.„Málin mín ganga vel og mér finnst sakamálin skemmtileg. Ánægðastur er ég samt með glæsi- legan og sanngjarnan sigur Manchester United á Arsenal og hárréttan vítaspyrnu- dóm. Ég er alltafsáttur við dóma þegar þeir ganga mínum mönnum I vii“ Melabúðinni miðast við sælkera og helst þurfa viðskipavinir að vera með magistergráðu til að versla þar. Þama væri hægt að vera alla nóttina ef kaupmaðurinn lokaði ekki klukk- an átta. En nú er von um betri tíma og skemmtilegt fútt. Þegar vínkjallar- inn verður opnaður í Melabúðinni styttist í að verslunin sjálf breytist í veitingastað. Staðsemingin er góð, húsnæðið eins og bandarískur næt- urklúbbur í laginu og ekki þarf að breyta neonskiltinu neitt. Það lýsir upp hálft hverfið og myndi sóma sér óbreytt í Rauða hverfinu í Amster- dam. Nóg er að éta í Melabúðinni. Gestirnir eru til staðar. Það vantar bara drykkina og þeir eru á leiðinni. Vonandi sem fyrst. Svarthöfði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.