Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2004, Qupperneq 8
8 MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 2004
Fréttir DV
Hagnaður
íslandsbanka
10 milljarðar
Hagnaður íslandsbanka
á þriðja ársfjórðungi var 3,3
milljarðar króna eftír
skatta. Hagnaður eftir
skatta á fyrstu níu mánuð-
um ársins var 10,1 milljarð-
ur króna og var hann 5,9
milljarðar króna hjá bank-
anum og 4,2 milljarðar
króna hjá tryggingarfélag-
inu. Norska fjármálaeftirlit-
ið samþykkti á fundi sínum
á mánudag að mæla með
því við fjármálaráöuneytiö
að kaup íslandsbanka á
KredittBanken í Noregi
verði samþykkt. í kjölfar
þess samþykkis verður
KredittBanken hluti af sam-
stæðureikningi íslands-
banka en þegar hafa 99,4%
hluthafa samþykkt kauptil-
boðið.
Hagnaður
Straums
6 milljarðar
Hagnaður Straums
fjárfestíngarbanka fyrstu
níu mánuði ársins eftir
skatta nam 6.277 milljón-
um króna og hækkar um
168% frá síðasta ári.
Hagnaður Straums eftír
skattanam 3.141 milljón-
um króna samanborið
við 1.471 milljónir króna
á þriðja ársfjóröungi.
Heildareignir bankans
námu 68.385 milljónum
króna en voru 22.530
milljónir króna í árslok
2003 og hafa því vaxið
um 204% á tímabilinu.
Verkfall
veldur
svartsýni
Nokkuð dró út bjartsýni
neytenda í október sam-
kvæmt væntingavísitölu
Gallups sem birt var í gær-
morgun. Vísitalan stendur
nú í 116,6 stigum og lækk-
aði um 13 stig frá fyrri
mánuði þegar hún stóð
fremur hátt eftir að hafa
hækkað þrjá mánuði í röð.
Hvort sem litið er til mats
neytenda á ástandinu í dag
eða væntinga þeirra til að-
stæða eftir hálft ár, þá eru
nú fleiri svartsýnir en síð-
ustu mánuði. Hugsanlegt
er að verkfall kennara hafi
haft þessi áhrif. Greining
íslandsbanka segir frá.
Birgir Rúnar Benediktsson, sem var barinn svo illa af Annþóri Kristjáni Karlssyni
að hann ber þess aldrei bætur, lítur þannig á að Annþór hafi verið að vinna vinn-
una sína. Reiði Birgis beinist fyrst og fremst að Ragnari Guðmundssyni sem borg-
aði handrukkurunum fyrir að berja hann.
Birgir Rúnar Benedikts-
son Beinir reiði sinni að
leigusalanum, Ragnari
Guðmundssyni, sem keypti
þjónustu handrukkara sem
börðu hann.
....... •> ____........._.._j
Reiður ut i Rugnar leigusala
„Reiði mín beinist að Ragnari leigusala sem borgaði handrukkur-
um fyrir að berja mig,“ segir Birgir Rúnar Benediktsson tuttugu
og þriggja ára Reykvíkingur. Hann var laminn með kylfu þar sem
hann lá mjaðmagrindarbrotinn heima hjá sér. Hann er illa farinn
á sál og likama en réttarhöld standa nú yfir í málinu þar sem Ann-
þór Kristján Karlsson er ákærður fyrir barsmíðarnar.
„Hendin var mölbrotin og ég var al-
blóðugur í framan," segir Birgir Rúnar
sem lá mjaðmagrindarbrotinn uppi í
rúmi þegar ráðist var á hann.
Þetta gerðist að morgni 23. apríl síð-
asta sumar. Þá bmtu Annþór Kristján
Karlsson og Ólafur Valtýr Rögnvaldsson
upp hurðina að heimili Birgis og gengu
í skrokk á honum. Kærasta Birgis Rún-
ars var einnig í íbúðinni. Hún varð vitni
að því þegar kærasti hennar var laminn
sundur og saman.
Ætlar að bera vitni
„í dag get ég ekki hreyft höndina
nema takmarkað. Þetta á eftír að há
mér alla ævi,“ segir Birgir Rúnar og á
greinilega erfitt með að rifja upp at-
burðinn.
Málflutningur í málinu þar sem
Annþór og Ólafur Valtýr em ákærðir
fyrir árásina á Birgi Rúnar stendur yfir
fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur um þess-
ar mundir.
Réttarhöldin hafa gengið illa því
Birgir dró kæm sína til baka skömmu
eftir árásina - að sögn foreldra hans
vegna ótta við handrukkara. Hann seg-
ist nú hins vegar ákveðinn að mæta fyr-
ir rétti og greina frá sannleikanum.
Hendin var mölbrotin
„Ég hef aldrei orðið eins hræddur á
minni litlu ævi og þegar ég sá þessi tröll
koma inn," segir Birgir um árásina
sjálfa. „Ég heyrði þá sparka upp hurð-
inni inn í svefnherbergi, þar sem inn-
gangurinn er, og stóð upp og þá
byrjuðu hótanir og geðveiki. Kærastan
mín stóð bara öskrandi og grátandi.“
Fyrir dómi játaði Ólafur Valtýr að
hafa hent keramik-disk upp í loftið.
Birgir segist muna vel eftir því hvemig
diskurinn bromaði á höfði sínu. Hann
hafi hoppað af stað alblóðugur á einni
löpp og ætlað út en ekki komist lengra
en upp í rúm.
„Ég var allur í blóði, höndin á mér,
andlitið og alit. Svo horfði ég á hendina
mína og sá að hún var mölbrotín," seg-
ir Birgir. „Óli Valtýr sótti síðan hand-
klæði til að ég gæti þurrkað mér. Ég fór
svo strax í aðgerð og var saumaður."
Leigusalinn sagðist óttasleginn
I gær steig fram nýtt vitni í DV sem
staðfesti að Ragnar Guðmundsson, eig-
andi Gistiheimilisins Adam, hafi borgað
Annþóri og félögum 100 þúsund krónur
fyrir að berja Birgi Rúnar.
Ragnar leigusali mun hafa fundið
dóp á gistíheimiiinu og leitað til lögregl-
unnar. Nánir aðstandendur og vinir
segja að síðan hafi Birgir ráðist á hann í
félagi við annan mann. Ragnar hafi
óttast um líf sitt og fengið kraftlyftinga-
manninn Hjört Geirsson til að búa á
Gistiheimilinu sér til vamar. Að lokum
réði hann Annþór og félaga.
Birgir Rúnar viðurkennir að hafa
staðið í hasssölu á sínum tíma og hafa
falið 800 grömm af hassi undir þvotta-
vél í sameigninni. Harm neitar því hins
vegar að hafa sjálfur barið leigusalann
en segir að vinur hans hafi einu sinni
tekið í Ragnar og rifið peysuna hans.
I dag er Birgir Rúnar enn að ná sér
eftir árás Annþórs.
„Ég þorði ekki inn í íbúðina strax eft-
ir árásina," segir Birgir. „Á meðan ég var
í burtu hvarf allt dótið mitt. Sjónvörp,
vídeótæki, tölvur og DVD-spólur. Raggi
leigusali hefur trúlega ætlað að ná til
baka hundraðþúsundkallinum sem
hann eyddi í að koma mér út.“
Reiður út í leigusalann
Birgir segir að Annþór hafi beðið
hann að draga kæruna til baka. „En
hann hótaði mér samt ekki,“ tekur Birg-
ir fram. „Ég hef hitt Anna og þessa
stráka aftur og það hefur ekld verið í
vondu. Þeir vom bara að vinna vinnuna
sína. Mín reiði beinist að Ragnari leigu-
sala fyrir að kaupa þá til verksins."
í dag vinnur Birgir Rúnar fyrir sér
sem sjómaður. Hann segist hafa kvatt
undirheimana, farið í meðferð og sé að
reyna að hefja nýtt líf. Hann er virkur
meðlimur í NA-samtökunum. Og hluti
af því er að bera vitni í málinu sem er nú
fyrir dómi.
kgb@dv.is
simon@dv.is
Vandræði á Vopnafirði sem ekki lýkur
Kaupfélagi á hausnum lokað
„Þetta vom of miklar
skuldir og skuldbindingar
sem ekki var hægt að
standa við. Kaupfélaginu
verður ekki bjargað," sagði
Guðjón Böðvarsson, kaup-
félagsstjóri á Vopnafirði, í
gær þar sem hann var á starfsmanna-
fundi með fjórtán starfsmönnum sem
nú sjá fram á atvinnuleysi.
Síðasti verslunardagurinn hjá
Kaupfélagi Vopnfirðinga var á föstu-
dag. Söluskála fyrirtækisins og bensín-
stöð var lokað í fyrradag.
„Við rákum stóra matvömverslun
og sérvömverslun og það hefði verið
Hvað liggur á?
ábyrgðarhluti að halda
áfram. Það náðist ekki að
vinna úr gömlum vanda
J ogþvífórsemfór."
Nú er aðeins ein versl-
un opin á Vopnafirði;
Kauptún í eigu Áma Ró-
bertssonar. „Það er liklega nóg að gera
hjá honum núna," sagði Guðjón sem
búið hefur á Vopnafirði frá árinu 1992
og verið kaupfélagsstjóri síðustu þrjú
árin, en heldur nú til Reykjavíkur.
„Ég á von á því að söluskálinn og
bensínstöðin opni aftur í dag með nýj-
um rekstraraðilum en það hefur verið
hægt að kaupa bensín hér í gegnum
sjálfsala," sagði Guðjón.
„Mest liggur á að fara til Memphis til að hitta kunningja og fara um sögusióðir Elvisar
eins og langamma mín kallaði hann. Ég kalla hann Kónginn og í næsta mánuði mun ég
hitta mína gömlu féiaga úr Memphis-mafíunni og tæt sníða mér föt hjá klæðskera
Kóngsins," segir Þórarinn„Aggi‘‘ Þórarinsson, Ijósmyndari.
Dagrenning til aðstoðar Lettum
Lettar í hrakningum
við Brennivínskvísl
Á sunnudag var haft samband við
lögregluna á Hvolsvelli af vegfar-
anda sem var á Fljótshlíðarafréttí.
Hafði hann ekið fram á fjóra útlend-
inga sem kváðust hafa verið á gangi
síðan um miðjan dag á laugardegin-
um eftír að hafa fest bifreið í ein-
hverri á uppi á hálendinu.
Var björgunarsveitin Dagrenning
kölluð út tU aðstoðar og fóra menn
frá henni áleiðis inn á afrétt og kom
í ljós að þarna vom fjórir Lettar á
ferð og höfðu þeir fest bifreið sína í
svonefndri Brennivínskvísl á Mæli-
feUssandi og höfðu þeir gengið það-
an áleiðis til byggða tU að fá aðstoð.
Töldu björgunarsveitarmenn að
Lettarnir hafi gengið allt að 40 km.
leið, en þeir hafi verið iUa búnir til
útivistar og göngu.
Dagrenning Björgunarsveitarmenn frá
Dagrenningu draga bíl Lettanna upp úr
ánni.
Munu Lettarnir hafa gist í skáia
um nóttina áður en þeir hófu göng-
una á ný og töldu björgunarsveitar-
menn Lettana hafi gist í skála í svo-
nefndu HvanngUi um nóttina.
Lettarnir voru fluttir inn að Brenni-
vínskvíslinni og bifreið þeirra bjarg-
að upp úr ánni og í ffamhaldinu
komið tU byggða.