Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2004, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2004, Síða 10
10 MIÐVIKUDAGUR27. OKTÓBER 2004 Fréttir DV Guðlaugi Þór er talið til tekna að vera vel tengdur innan síns flokks. Býryfir mikilli reynslu afpólitík og er talinn klókur. Skemmtilegur félagi og góður húmoristi sem jafnan fylgir mikið líf. Hann er vinur vina sinna og hugsjónamaður. Guölaugur er frekur og oft talinn vaða í mál afmeira kappi en forsjá. Einþykkur og tekur oft sínum skoöun- um sem hinum einu réttu. Guöiaugi er sömuleiðis leg- iö á hálsi aö hafa fórnað sömu sterku skoöunum fyr- ir þingsæti. Hann er tapsár. „Gulli er félagsmálatröll og firnaduglegur. Þegar hann er ekki I pólitlk getur hann llka ver- ið skemmtilegur. En það er stundum stutt á milli elju og einþykkni og hann nýt- urþess og geldur að hafa mjög sterka sann- færingu fyrir þvi að hann hafi rétt fyrir sér. Er vinur vina sinna, en ekki eru öll dýrin iskóginum vinir." Helgi HJörvar alþingismaöur. „Gulli Þór er mjög skemmtilegur og hress náungi sem gott er að starfa með, alltafmikið llfí kringum hann. Erdugleg- ur og fylginn sér. Hann færist stundum fullmikið I fang vegna áhugans. Leysir flest málin vel. Heldur með Liverpool, sem er mikill vanþroski." SlgurÖur Kárl Kristjánsson alþingis- maður. „Gulli er fyrst og fremst einstak- lega traustur. Þeirsem þekkja hann vita nákvæmtega hvarþeir hafa hann. Er mjög opinn og skemmtilegur. Auk þess mikijl keppnismaður, ósérhlif- inn með óbilandi sjálfs- traust. Fer langtá viljan- um og áræðninni. Hefur gaman aflþróttum, og komast fáir óskaddaðir frá viður- eign við hann. Þó hefur hann nægan sannfæringarkraft til þess að fá menn til að mæta sér aftur. Hann þolir ekki að tapa." Vigfús Birgisson, Ijósmyndari og æskufélagi. Guðlaugur Þór Þórðarson er fæddur 19. desember 1 967 í Reykjavík, sonur hjónanna Þóröar Sigurðssonar og Sonju Guðlaugs- dóttur. Guðlaugur ólst upp í Borgarnesi en lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1987 og BA-prófi I stjórnmála- fræði frá HÍ1996. Guðlaugur hefur setið I borgarstjórn Reykjavikur frá 1998 og á Alþingi frá árinu 2003. Guðlaugur er giftur Ágústu Johnson framkvæmdastjóra. Þau eiga tvö börn saman. Munkarfleka tvíburasystur Tveir búddamunkar í Kambódíu eru í slæmum málum eftir að vera gripn- ir í samförum við tvær 17 ára tvíburasystur í klaustri sínu. Munkamir, Nang Peng og Hong Vung, voru hraktir úr þorpi sínu af æstum þorpsbúum er málið komst upp um síð- ustu helgi. Það var faðir stúlknanna, Som Sau, sem sendi hóp manna í klaustrið að til að kanna málið. Som segir dætrum sínum hafa verið nauðgað en tvíburarnir segjast vera ástfangnar af munkunum. Munkarnir hafa alla vega brotið gegn skírlífsheitinu. Landsbankinn tjáir sig ekki um hvort bankinn hafi sóað slysabótum Hinriks Jóns- sonar öryrka í deCODE-bréf. Bankinn segist ekki hafa selt honum eigin bréf og því ekki hagnast sjálfur á viðskiptunum. Bankinn segist eins og margir aðrir hafa þurft að þola tap á fjárfestingu í deCODE. Hinrik ætlar i mál við bankann. Landsbankinn segist ekki hafa selt öryrkja eigin bréf Landsbankinn svarar ekki efnislega umfjöllun DV um að bankinn hefði sóað slysabótum Hinriks Jónssonar, öryrkja á Seltjamamesi, í hlutabréf í deCODE þar sem bankinn tjáir sig ekki um málefhi ein- stakra viðskiptavina. Bankinn andmælir hins vegar staðhæfingu Hróbjarts Jónatanssonar hæstaréttarlögmanns um að bankinn hefði selt Hinriki eigin bréf í deCODE á árinu 2000. Hróbjartur heldur því fram að bréfln sem bankinn seldi Hinriki hafi verið úr því safni hlutabréfa sem bankinn keypti sjálfúr af stofnfjár- festum í deCODE. Sé það rétt hefði bankinn þrefaldað verðið á hluta- bréfunum sem bankinn keypti á genginu 18. Hinrik keypti sín bréf á genginu 56 fyrir 5 milljónir en seldi þau aftur á genginu 5,95 fyrir 500 þúsund. Bankinn hafnaði því að greiða Hinriki bætur en hann hefúr fengið gjafsókn og ætlar í dómsmál. Landsbankinn ætlar að svara Hinriki og Hróbjarti formlega í vikunni. Landsbréf miðluðu bréfum Landsbankinn segir í yfirlýsingu að ekki sé rétt að bankinn hafi inn- leyst gengishagnað af bréfum í deCODE með viðskiptum Hinriks Jónssonar. „Hins vegar veittu Landsbankinn og Landsbréf hf. ein- staklingum og lögaðilum þá eðlilegu þjónustu að miðla hlutabréfum í DeCode eins og öðrum félögum sem virk viðskipti voru með á þessum tíma,“ segir í yfirlýsingunni. Landsbankinn segist hafa eins og margir aðrir þurft að þola umtals- vert tap af fjárfestingu sinni í deCODE. Bankinn keypti eina millj- ón hluta en seldi 600 þúsund hluti beint til fagfjárfesta. „Landsbankinn átti þannig eftir 400.000 hluti sem litið var á sem fjárfestingu af hálfu bankans. Af hálfu Landsbankans var tekin sú ákvörðun að selja ekki af sínum eignarhlut til einstaklinga þrátt fyrir umtalsverða eftirspurn eftir bréfum félagsins á þessum tíma. Staðreyndin er sú að Lands- bankinn á enn stærstan hluta þeirra hlutabréfa sem keyptir voru í upp- hafi.“ Ekki er upplýst hvert bankinn seldi þann hluta sem sem bankinn á ekki í dag. Hefði hlýtt ráðgjöf um að kaupa ekki Peningarnir sem Hinrik fjárfesti fyrir, voru hluti af slysabótum sem hann fékk eftir að hann varð fyrir hjóli í Kirkjustræti. Það blæddi inn á heila og hann lýsir því þannig að eft- ir slysið sé hann eins og stórt barn. Sjálfur segir Hinrik að ef hann hefði fengið ráðgjöf um að kaupa ekki í deCODE, hefði hann hlýtt henni. „Ég les lítið, því það er erfitt að lesa, en horfi frekar á sjónvarpið. Þar var mikið talað um deCODE og að hlutabréfin færu hækkandi þar,“ segir hann. „Ég var á báðum áttum. en ég hringdi í Landsbréf og tal- aði við stúlku þar og ég man hvað okkur fór á milli. Ég var ragur en hún ráðlagði mér ekki frá því að kaupa í deCODE. Hún sagði mér ekki hvort þetta væri góður eða vondur kostur. Ég heyrði síðar að á þessum tíma hefði íslandsbanki ráðið fólki frá því að kaupa í deCODE en það kom ekkert svoleiðis frá Landsbréfum." kgb@dv.is Hinrik Jónsson Finnst að Landsbankinn hefði átt að veita honum betri ráðgjöf. Ég var á báðum áttum, en ég hríngdi í Landsbréf og talaði við stúlku þar og ég man hvað okkur fór á milli. Ég var ragur ^—en hún ráðlagði mér ekki frá því að kaupa í deCODE. Utanríkisráðuneytið skoði fasteignamarkaðinn i Berlin Hópur slóst á Hellu Vill ódýrasta kostinn fyrir sendiherra „Mér finnst sjálfsagt að skoða all- ar leiðir sem hægt er til að spara og auka hagkvæmni," segir Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðis- flokksins, spurður um áform utan- ríkisráðuneytisins að byggja rúm- lega 600 fermetra sendiherrabústað í Berlín. Eins og fram hefur komið í DV er hægt að kaupa jafnstóra eign í sama hverfi og byggja á í Berlín fyrir um þriðjunginn af þeirri upphæð sem ráðuneytið áformar að verja til bústaðarins. í frétt DV um málið í gær kom fram að samkvæmt stærsta fast- eignavef borgarinnar er hægt að fá átta herbergja, rúmlega 600 fer- metra villu með 1150 fermetra garði, á 95 milljónir króna. Utanríkisráðu- neytið áformar hins vegar að byggja rúmlega 600 fermetra bústað fyrir sendiherrann á rúmlega 300 millj- ónir króna. Þegar hefur verið keypt 2.600 fermetra lóð undir bústaðinn í glæsihverfinu Grunewald og er lóða- verðið innifalið í fyrrgreindri upp- hæð. „Ef það er hægt að kaupa sams konar eign í sama hverfi á mun minna verði er það mál sem þarf að skoða nánar," segir Pétur. Þótt það sé ekki slæmt að eiga lóðir í stór- borgum erlendis sé það spurning hvort það er hlutverk íslenska ríkis- ins að eignast lönd í stórborgum. Verð á íbúðum hefur hríðfalhð í Berlín undanfarin ár. Er nú orðið mun ódýrara að kaupa fasteignir þar en byggja. „Það má nefna að fyrir tíu árum var þessi staða uppi hér á ís- landi að það var ódýrara að kaupa en byggja en sú staða hefur nú snú- ist við," segir Pétur. „Höfuðatriðið er að menn taki mið af markaðs- aðstæðum á hverjum stað." Pétur Blöndal „Ef þaðerhægt að kaupa sams konar eign i sama hverfi ámun minna verði er þaðmál í sem þarfaðskoða nánar." Aðfaranótt laugardagsins var lögreglan á Hvolsvelli kölluð út vegna hópslagsmála fyrir utan veitingahúsið Kristján X á Hellu og var einnig óskað aðstoðar lögregl- unnar á Selfossi til að koma skikki á mannskapinn. Tókst það nokkru síðar og voru fimm aðilar fluttir af staðnum í lögreglubifreiðum. Þarna virtist hafa komið upp ósætti milli íbúa tveggja byggðar- laga eftir því sem næst var komist og hjálpaði ölvunarástand við- staddra upp á að kynda undir við- brögðum hvors hóps en engin meiðsl voru að sjá að ráði á fólki vegna þessa upphlaups.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.