Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2004, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2004, Blaðsíða 11
DV Fréttir MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 2004 7 7 Stríðsfrétta- maður á Akureyri Heimsþekktur breskur stríðsfréttaritari er staddur á Akureyri um þessar mundir. Tim Judah hefur flutt fréttir frá átakasvæðum í Bosníu, Afganistan, írak, Úganda og Angóla og er einn fárra vestrænna blaðamanna sem heimsótt hefur Norður-Kóreu. Judah er hins vegar á Akureyri í þeim tilgangi að haida fyiirlestur í hádeginu í dag sem ber yfirskriftina „From Bosnia to Baghdad: How to Report a War - and Win". Judah starfaði lengi fyrir breska ríkisútvarpið en skrifar nú reglulega fyrir The Economist og New York Reviewof Books. Peninga í heilsu en ekki her Það er komin upp alveg ótrúieg staða þarna í Kabúl þar sem ráðist var á íslenska herinn. Ég heyrði stjómanda friðargæslunnar í utan- ríkisráðuneytinu segja í sjónvarp- inu að íslendingarnir hefðu elcki skotið á móti þeim sem réðst á þá. Óli Ómar Ólafsson hefur áhyggjur af j íslertskum her og finnst peningunum betur varið í heilbrigðiskerfið. Leigubílstjórinn segir Þeir Jilupu upp í bflinn og forðuðu sér. Hvað er þetta annað en her- mennska? Þessir menn em undir vopnum og svo er verið að þjálfa tuttugu manns í viðbót. í hverju er verið að þjálfa þessa menn, varla í flugumsjón eða slökkvistörfum? Það er verið að þjálfa þá í vopna- burði. Það er alltaf verið að segja að þetta sé ekki her en þetta getur ekki verið neitt annað. Það er rosalegt að við séum búin að koma okkur í þessa stöðu, það verður bara að viðurkenna að þetta er her og við séum búnir að dragast inn í þetta stríð í Afganist- an. Mér flnnst líka að pening- unum gæti ver- ið betur varið í annað en að koma skikki á flugvöll ein- hvers staðar í Afganistan. Manni verður hugsað til heilbrigðiskerfis- ins hér uppi á íslandi. Hér em lang- ir biðlistar. Fólk bíður í röðum eftir að komast í aðgerðir en á sama tíma erum við að moka peningum í utanríkisþjónustuna og þetta frið- argæslubatterí hangir utan á henni. Það ætti frekar að nota peningana í að stytta biðlistana þannig að fólk komist í sínar aðgerðir í þessu vel- ferðarþjóðfélagi sem við búum í. Björn Sigurðsson í Krummahólum, sem birti nöfn dópsala á netinu, hefur í undir- búningi stofnun samtaka gegn eiturlyfjum og ofbeldi þeim tengdum ásamt fleiri aðilum. Björn segir samtökin verða þrýstihóp á ráðamenn. Honum hefur ekki verið hótað lífláti undanfarið. Sekur slapp með hrekkinn Síbrotamanninum Finni Frey Guðbjörnssyni verður ekki refsað fyrir að hafa stolið númeraplötum af bif- reið og sett í heimildarleysi á Mercedes Benz „í blekk- ingarskyni", samkvæmt dómi Hérðasdóms Reykja- vflmr. Finnur, sem er 41 árs, á að baki langan sakaferil sem meðal annars skartar umferðar- lagabrotum, hættubrotum, eignarspjöllum, líkamsárás- um, nytjastuldum og fflcni- efriabrotum. Ástæðan fyrir því að Finnur sleppur er að hann var dæmdur í 6 mán- aða fangelsi fyrir önnur brot í júní, og þótti það nóg. ■pF • Samloka með sultu lokkar útdauttdýr Um hundrað sultusam- lokum hefur verið dreift á afskekkt skógarsvæði sem beitu fyrir spendýr sem talið hefur verið útdautt í Englandi undanfarin 100 ár. Um er að ræða dýrið grenimörð, eða Pine mart- en, en frá árinu 1990 hafa komið upp 35 tilvik þar sem fólk hefur talið sig sjá þetta dýr á North York Moors-svæðinu. Náttúru- fræðingar hafa þar að auki safnað hárum og öðrum h'fsýnum sem talin eru frá þessu dýri. Ekkert áþreifan- legt hefur þó fundist en samlokunum var dreift í kjölfar lýsingar frá reynd- um dýralífsljósmyndara sem taldi sig hafa séð dýrið. DóplistamaMn stnfnar samtnk gegn nitri ng nfbnldi „Ástæðan fyrir því að ég stofna samtök er að viðbrögðin voru svo mikil við listanum sem raun ber vitni," segir Björn Tdmas Sigurðsson, 44 ára íbúi í Krummahólum, sem þekktur er fyrir að birta nafnalista yfir dópsala á vefsíðu sinni, dopsalar.tk. Björn hefúr í undirbúningi, í samráði við fleiri borgara, að stofna samtök gegn eiturfyfjum og ofbeldi þeim tengdum. Um verður að ræða þrýstihóp sem mun „krefjast þess að eitthvað verði farið að gera í þessum málum“. Auk þess, segir Björn, munu samtökin hreinsa til. Að sögn Björns er ekki langt í að samtökin verði að veruleika. „Það er verið að vinna að þessu á fullu. Það er þó ljóst að einn maður mun ekki ráða því hvernig samtökin starfa, heldur verður haldinn stofrifundur. Mín hugsun er, hvernig sem fólk leit á listann sem slflcan, að ég vil að þeg- ar stofnfundur verður haldinn verði tekin ákvörðun um þessa hluti af félögunum. Þegar samtök eru stofn- uð er ekki einhver einn sem tekur ákvörðun. Það er verið að undirbúa fyrsta fundinn, ég með aðstoð fleiri aðila,“ segir Björn. Spurður hvaða ráðstafanir verði gerðar til að vernda félaga í samtök- unum segir Björn ljóst að þeir sem verði í ffamlínunni verði opinberir. „Eins og ég hugsa þetta verða þeir sem eru í framlínunni sjálfkrafa op- inberir. Ég mun þó leggja til að hin almenna félagsskrá verði lokuð. En þetta skýrist endanlega á stofnfund- inum. Á fyrsta fundinum er mín uppástunga sú að það verði kosið í stjórn og enginn fari í hana sjálf- krafa," segir hann. „Lögreglan sagði við mig að það hefði ekk- ert upp á sig að kæra." Bjöm hefur fengið nokkrar hót- anir frá því hann hótaði að birta dóphsta sinn í DV 22. september síðastliðinn. Undanfarna viku hefur hann engar hótanir fengið. Svo virð- ist sem aukin athygli hafi ráðið þar mestu, ekki síst Kastljósþáttur Ríkis- sjónvarpsins um dóplistann. „Það vom margar líflátshótanir og aht í þeim dúr. Það voru nokkrir, bæði gegnum síma og sem ég hitti, sem hótuðu. Það albesta við þetta aht saman er að eftir Kastljósþáttinn hef ég ekki fengið neinar hringingar nema bara jákvæðar þar sem fólk óskar mér til hamingju og segist styðja mig." Aðspurður hvers vegna hann láti ekki lögregluna um að berjast gegn glæpum eins og fíkniefnaneyslu, sölu og handrukkurum, segir Björn að viðbrögð lögreglunnar séu langt frá því hvetjandi. „Málið er að almennt hafa þeir í lögreglunni viðhaft ágæt vinnubrögð, en sumt er bara hlægilegt. Það er ekki verið að ýkja handrukkaraógnina, lflct og lög- reglan hefur haldið fram. Ég get ekki svarað fyrir það hvers vegna lögregl- an heldur sliku fram, en það er alrangt miðað við þær reynslusögur sem ég hef heyrt í persónulegum samtölum við fólk sem hefur lent í þessu. Þegar fólk kemur á lögreglu- stöðina að kæra hótanir og hand- rukkara þá er því vísað burtu. Ég hef eigin reynslu af því. Lögreglan sagði við mig að það hefði ekkert upp á sig að kæra. Fyrst var mér vísað burtu af því að það hefði ekki neitt upp á sig og síðan reynt að gera aht til að hafa mig ofan af því, en ég hlustaði ekki á lögregluna," segir Björn, sem kærði mann og fékk hann dæmdan árið 2001 en sá hafði hótað honum og sonum hans lífláti. Björn er nú kærður af lögreglunni vegna nafna tveggja lögreglumanna á dóplistanum, sem hann segir hafa lekið upplýsingum. Lögreglan hefur kæruna til rannsóknar og hefur yf- irheyrt Björn. jontrausti@dv.is D-LINK Þráðlaus netbúnaður I É w * Innif ^ISA ■ uavAÍ« Innifalið í verði: 1 12.900,- ) • ADSL módem ^--------------------- • Þráðlaus 54 Mbps sendir • 4 porta skiptir (switch) •• Beinir (router) og eldveggur 108 WlbPs W 14.900,-) Innifalið í verði: Þráðlaus 108 Mbps sendir Þráðlaust 108 Mbps netkort f/ferðavélar svan) tækni SIÐUMULA 37 - SIMI 510 6000 - WWW.SVAR.IS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.