Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2004, Qupperneq 25

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2004, Qupperneq 25
DV Menning MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 2004 25 Bjössi Thor, Gunni Þórðar og Jón Rafns taka Asíulönd með trompi Guitar Islancio í Japan Zonet-útgáfan hefurgert leyfissamn- ing á þremur plötum Guitar Islancio í Japan. Þaö er fyrirtækið Allios music í Yokohama sem verðurhinn japanski útgefandi. Plöturnarsem um ræðireru: Gutiar Islancio 1, Guitar Islancio 3 og Scandinavian songs sem verður fyrst í röðinni og mun koma útíJapan á vori komanda. Grúppan er um þessar mundir í Peking en þangað héldu þeir félagar frá Sjanghæ þar sem þeir léku við góðan orðstír á sjöttu listahátíð Sjang- hæborgar. Tríóið Guitar Islancio hefur starfað frá árinu 1998 og komið fram á tón- leikum víðs vegar um heiminn. Þeir hafa gefið út fjóra geisladiska sem allir innihalda íslensk þjóölög í létt djössuðum útsetningum. Það má segja að Guitar Islancio hafi þróað með sér sérstakan tón, hlýjan og hraðan, sem hefur gert tríóið eftirsótt - bæði hér á landi og erlendis. Eins og kunnugt er skipa tríóið þeir Björn Thoroddsen, Gunnar Þórðarson og Jón Rafnsson. Björn hefurí tvo áratugi verið einn virtasti djasstónlistarmaður landsins og gefiö út fjölda diska undir eigin nafni. Hann var valinn Bæjarlistamað- ur Garðabæjar2002. Jón Rafnsson er eftirsóttur bassaleik- ari í allar tegundir tónlistar og hljóð- versvinnu, auk þess aö starfa sem tón- listarkennari. Hann stundaði nám í tónskóla Sigursveins D. Kristinssonarog varhjá Thorvald Fredin, pró- fessor við tónlistarháskólann íStokk- hólmi, auk þess að nema við tónlistar- kennaraháskólann í Stokkhólmi, SMI. Gunnar Þórðarson hefur verið í fremstu röð í íslensku tónlistarlífi í rúm 40 ár og samið og hljóðritað yfir 500 lög. Gunnar hefur starfað í og leitt margar afallra vinsælustu popphljóm- sveitum /slandssögunnar, m.a. Hljóma og Trúbrot, auk þess að starfa sem tón- listar- og upptökustjóri við ótal verk- efni; í sjónvarpi, leikhúsi og víðar. I janúar2002 varhann sæmdurhinni íslensku fálkaorðu fyrirframlag sitt til tónlistar á Islandi. Þessir piltar eru þvf verðugir fulltrúar íslenska tónlistararfsins og megi gengi þeirra I Asíu vera sem allra mest. Hátíðartónleikar með Caput þar sem hluti af verðlaunaverkinu Fjórða söng Guðrúnar eftir Hauk Tómasson verður flutt ásamt verkum eftir danska tónskáldið Hans Abrahamsen Caputhópurinn Tjnldm ollu sem til er I konsert med dönskum og islenskum veidlaunatónskáldum. Mánudagskvöldið 1. nóvemberkl. 20 efnir Caputhópurinn, tvöfaldur handhafi menningarverðlauna DV, til hátíðartónleika í Listasafni íslands. Tileftfi tónleikanna er tvíþætt: þann 2. nóvember verða Hauki Tómassyni tónskáldi veitt tónlistarverðlaun Norðurlanda og þætti það tilefni ærið til hátíðahalda. Með tónleik- unum hefst vegleg tónlistarhátíð sem ber nafnið „Ný endurreisn" sem Caput stendur að í samvinnu við Vox Academicakórinn. Á þessum hátíðartónleikum verð- ur flutt tónlist úr verki því sem Hauk- ur hlýtur verðlaunin fyrir, Fjórða söng Guðrúnar. Þá verða flutt nokkur verk eftir hið heimsfræga danska tón- skáld, Hans Abrahamsen, en hann mun jafnframt heiðra hátíðina með nærveru sinni. Það er Ingibjörg Guðjónsdóttir sópransöngkona sem syngur hlut- verk Guðrúnar. Fjórði söngur Guðrúnar var fyrst fluttur í Kaupmannahöfn 1996 þegar hún var menningarborg Evrópu. Er mönnum í fersku minni tilkomumik- ill flutningur verksins ofan í herskipa- kví í Kristjánshöfn þar í borg. Leiknum lauk með því að hleypa vatni í kvína. Caput hefur frumflutt fjölda verka eftir Hauk Tómasson og má með sanni segja að Haukur hafi verið eins konar hirðtón- skáld Caputhópsins, einn af stofnfélögum hópsins og þátttakandi á marga lund. Það er því hópnum mikið fagnaðarefni að Hauki skuli hlotnast þessi heiður að vera settur í fremstu röð norrænna tónskálda. Caputhópurinn mun tjalda öllu til á þessum tón- leikum: stjórnandi verður bandríski hljómsveitarstjórinn Joel Sachs en hann er listrænn stjómandi Julliard-tónlistarhópsins sem kennir sig við nýja tónlist (New Julliard Esnemble). Hitt tónskáld tónleikanna er Hans Abrahamsen sem hlaut heimsathygli ungur að árum fyrir nýbreytni tónsmíðum sem vom kenndar við nýjan einfaldleika (new Æ / F-m íygh Á simplicity) sem kom fram á sjö- unda og áttunda áratug síð- ustu aldar áður en svipaðir straumar mddu sér til rúms í nýja málverkinu í myndlistinni. Hans var ungur beðinn að semja fyrir Berh'nar- fílharmómuna en þann heiður hafa aðeins örfá skandinavísk tónskáld hlot- ið. Á tónleikunum verða flutt sýnishorn úr safni Hans Abrahamsen, Marchen bilder, Winter- nacht og píanókonsert sem kona hans, Ann Marie Abildskov, spilar en þau hjón em heiðursgestir tónleikanna. Joel Sachs ferðast heimsálfa á milh tíl þess að stjóma nýrri tónlist. Hann er kennari við Julliard-skólann í New York, en hann sinnir einnig umfangsmiklum skrifum um tónlist. Hann gaf nýlega út ævisögu k Haukur Tómasson Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs. Ingibjörg Guðjónsdóttir syngur Guðrúnu. bandríska tónskáldsin Henrys Cowell. Hann sækir nú Caputhópinn heim í annað sinn, en mörgum em enn í fersku minni ágætir tónleikar hans á Myrkum músíkdögum síðasta vetur með Caputhópnum, þar sem Joel þótti takast að gæða oft tormelta nútímatónhst skhjanlegu hstrænu innhaldi þannig að hún tók flugið og varð hlustendum ofur skhjanleg. Gamlar ljósmyndir af utangarðsmönnum og fleirum Kúnstin að kunna að lesa mynd Sú list að kunna að lesa Ijósmynd er ekki öllum gefin. Hún útheimtir góða kópíu, helst eftir plötu eða filmu, af- burða vel unna í framköllun, sem færri og færri kunna núorðið þegar inn- skönnun tölvunnar hefur tekið við af baði myrkrakompunnar. Síðast en ekki síst kallar hún á þekkingu eða rann- sókn á baksviði myndarinnar, afhverj- um hún er, hvar hún var tekin, hver fer- ill hennar var og til hvers hún var. Á síðustu árum hefur lestur á mynd- um tekið á sig nýjar víddir: franskir höfundar og bandarískir hafa snúið sér að Ijósmyndinni og lagst í lestur, sumir frá nánast engum gögnum, aðr- irhafa notað hana sem stökkbretti inn ! könnun á minninu og lagt út af henni: Roland Barthes og Héléne Cixous, að ógleymdri Susan Sontag. Þessi tískuhöfundar hafa hverásinn hátt iesið skemmtilega úr myndum en ævinlega afþekkingu. Nýlega kom út i Reykjavík lítið kver með Ijósmyndum frá fyrri hluta síð- ustu aldar eftir Sigurð Gyífa Magnús- son sagnfræðing og boðbera einsögu- aðferðar í islenskri sagnfræði. Sigurður er afkastamikill sagnfræðingur og hef- ur reynst hvirfill i kyrrlátum heimi söguskoðenda. Bókin byggir á Ijós- myndasafni sem Sigurði áskotnaðist eftir afa sinn sem haföi líkt og margir á fyrri hluta aldarinnar síðustu safnað Ijósmyndum: safn hans samanstóð að mestu leyti afútgefnum myndum sem kunnar eru í fjölda eftirgerða og voru saðsöm fylling fyrir forvitna sökum þess að þær birtu almenningi andlit þjóðkunnra vesalinga, fólks sem haföi farið halloka í lífinu sökum fötlunar, sérvisku, óreglu eða brjálsemi. Utan- garðsmannamyndir þessar voru sölu- vara á sinni tíð og þvi hafði afinn safn- að saman nokkru úrvali slíkra mynda. Tillegg Sigurðar I bókinni eru hug- leiðingar sprottnar afhverri mynd. Þær eiga i mörgum tilvikum ekkert skylt við mynd eða myndefni, enda lætur sagn- fræðingurinn myndirnar vera sem rannsóknarsvið. Hvergi ergetið Ijós- myndara, tökustaðar, heitis og æviára þess sem á myndinni er. Þær eru hon- um einungis tæki til almennra hug- leiðinga. Myndirnar eru teknar eftir kóþíum í mismunandi ásigkomulagi, hvergi er getiö hvort þær eru til í frumkópíum eða hvort frummyndir eruyfirleitt til. Skiptirþetta allt einhverju máli?Jú, hérfer fram sagnfræðingur sem hátt hefur látið um faglegar kröfur, bókin er gefin út afMiðstöð einsögurannsókna og ber nafn Reykjavíkurakademíunnar og Ljósmyndasafns Reykjavikur, sem ætla mætti að hefði einhvern standard i notkun Ijósmynda íprentuðum ritum. Hér ægir því saman óskyldum efn- um: hörmuleg örlög verða tilefni létt- vægra hugleiðinga þarsem myndefn- ið heimtar alvarlega hugsun, fagleg vinnubrögð. Er raunar óskiljanlegt aö sagnfræðingurinn skyldilátið ónotað tækifæri til að nota menntun sína til alvarlegar íhugunar um örlög Sigurður Gylfi Hampar bók sinni Snögg- um blettum. DV-mynd Vilhelm myndefnanna og þaðan sin eigin úr þessu kynduga safni afa síns, en eins og segir i bókinni er„engin tilraun gerð til að sannreyna upplýsingarnar Páll Baldvin Baldvinsson Sigurður Gylfi Magnússon: Snöggir blettir Me og Ljósmyndasafn Reykjavíkur Verð: 2980 kr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.