Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2004, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2004, Blaðsíða 8
♦ Tclcifii fbi 8& 1 v tGi&i i )K1 (3-'/ ■ ■ ■ ^ Ifókus 1 ístinn SÆTI FLYTJANDI LAG 1. Eric Pryds Call on me 2. Britney Spears Stars 3. Eminem Just Loose it 4. Macy Gray Love Is Gonna Get You S. Skítamórall Ástin 6. Joss Stone You Had Me 7. Destiny’s Child Lose My Breath 8. Danzel Pump It Up 9. Igor R&B 10. í Svörtum Fötum Á meðan ég sef 31. Benassi Brothers Turn Me Up 12. Christina Aguilera Car Wash 13. Twista Sunshine 14. Brian McFaden Real to me 15. Justin Timberlake Good Foot 16. J-Kwon You and me 17. Seether & Amy Lee Broken 18. Nylon 5 á richter 19. Natasha Bedingfield These words 20. Gwen Stefani What you waiting for K-Dominos- « > listinn SÆTI FLYTJANDI LAG Placebo Twenty Years Jan Mayen On A Mission Muse Butterflies And Hurricanes Lostprophets Last Summer Sum 41 Were All To Blame U2 Vertigo Quarashi Payback Used Take It Away Maus Over Me under Me The Libertines Can’t Stand Me Know Brain Police Coed Fever Solid l.v I.V Interpol Slowhands A Perfect Circle Imagine Jimmy Eat World Pain Marilyn Manson Personal Jesus Rammstein Anierika Strokes The End Is No End The Bravery Honest Mistake Fran Ferdinand This Fire s Slóvenska hljómsveitin Laibach á sér merkilega sögu. Hún var um langt skeið bönnuð í heimalandinu og hún hefur verið sökuð um að daðra við nasisma, en hún er líka sameiginlegur áhrifavaldur Ham og Rammstein. Nýlega kom safn af hennar þekktustu lögum út bæði á CD og DVD. Trausti Júlíusson rifjar upp söguna. Tónlistin sem Laibach er þekkt- ust fyrir er einhvers konar Wagnerískt rokk - kraftmikið og áhrifarikt. Það muna margir eftir útgáfu Laibach af Queen-laginu One Vision. Hjá Laibach heitir það Geburt Einer Nation og er eins og titillinn gefur til kynna sungið á þýsku. Meðlimir Laibach virðast hafa sérstaklega miklar mætur á þýskri menningu. Það heyrist á tónlistinni sem minnir stundum á rokkaða hermarsa og það sést líka á myndböndunum, en í þeim má gjarnan sjá meðlimina arka um búningum sem minna óneitanlega á glæsilega einkennisbúninga þriðja ríkisins. Húmorinn er samt aldrei langt undan. Á nýju safn- plötunni sem heitir Anthems er m.a. að finna útgáfur sveit- arinnar af lögunum Final Countdown (Europe), In The Army Now (Status Quo), Gel Back (Bítlarnir), Sympathy For The Devil (Rolling Sto- nes), Life is Life (Opus) og Jesus Christ Superstar úr samnefndum söngleik. Öll eru þessi lög klædd í Laibach-búninginn sem er sam- bland af iðnaðarrokki, teknói og hermörsum með Wagnerískum áhersluköflum. Snilld. Bönnuð í Júgóslavíu kommúnismans Laibach var stofnuð i Trbovlje í Júgóslavíu 1. júni 1980. Sama ár og Tító féll frá, en hann hafði leitt hið sósíalíska júgóslavneska ríki frá stríðslokum. Laibach byrjaði sem fjöllistahópur. Fyrsta verkefnið sem hann tók sér fyrir hendur var sýningin „Red Districts" sem var ætlað að sýna fram á það mikla ósamræmi sem ríkti í pólitísku skipulagi Trbovlje á þessum tíma. Sýningin var bönnuð áður en hún var opnuð og þar með fóru fyrstu tónleikar Laibach aldrei fram. Árið 1982 skaut Laibach aftur upp kollinum og nú í Ljubliana (núverandi höfuðborg Slóveníu). Þar spiluðu þeir á New Rock-hátíð- inni og fóru í framhaldinu í tón- leikaferð um Lalbach söngvarinn Júgóslavíu. 23. júni 1983 kom sveitin svo í fyrsta sinn fram í sjónvarpi. Þeir voru klæddir upp eins og hermenn og gáfu ögrandi yfirlýsingar. Það leiddi umsvifa- laust til þess að sveitin var bönn- uð og notkun nafnsins Laibach gerð með öllu óheimil. 1984 stofn- aði Laibach ásamt tveimur öðrum hópum (Irwin og Scipion Nasice Sisters Theatre) listahreyflnguna NSK (Neue Slowenische Kunst). Ári seinna kom fyrsta Laibach- platan út. Þar sem notkun nafns- ins var enn bönnuð var svarti krossinn (einkennismerki Lai- bach) einn á framhlið umslagsins. Eftir nokkrar tilraunakenndar iðnaðarrokkplötur hjá mismun- andi útgáfum gerði Laibach samn- ing við Mute árið 1987. Og þá kom út platan Opus Dei sem vakti athygli úti um allan heim. Gerði sína útgáfu af Let It Be Á Opus Dei voru m.a. lögin Geburt Einer Nation og Life Is Life, en þau fengu bæði mikla spil- un á MTV. Síðan hefur Laibach m.a. sent frá sér sína útgáfu af plötu Bítlanna Let It Be og heila plötu með mismunandi út- gáfum af Rolling Stones-laginu Sympathy For The Devil. Á tíunda áratugnum þróaðist tónlist Lai- bach í auknum mæli í áttina að teknó-tónlist þess tíma eins og heyra má á plötunni Kapital frá 1992, en með NATO frá 1994 sem var undir miklum áhrifum frá stríðsástand- inu í Júgóslavíu fóru þeir aftur að gera sínar útgáfur af þekktum slögurum. Meðlimir Laibach eru ekki þekktir undir eigin nöfnum, held- ur eingöngu sem meðlimir sveitar- innar. Undantekningin er samt söngvarinn Milan Fras. Þeir koma ekki fram nema í karakter og eru duglegir við að gefa yfirlýsingar. Þeir segja ásökunina um að þeir séu fasistar út í hött: „Við erum jafn miklir fasistar og Hitler var málari." Byrjuðu snemma að láta remixa lögin sín frá Depeche Mode Breslta hljómsveitin Depeche Mode er ein af fáum 80’s tölvupoppsveitum sein er enn aö da*la út gæðatónlist. Nýlega kom út ineö þeim safnplatan RemLxes 81 - 04, en þar er safnaö sam- an bestu endurgerðunum af Depeche Mode-lögum frá ferlinum. Þetta er tvöfaldur diskur, en til að byrja með fylgir þriðji diskurinn að auki, en á honum eru sjaldgæf og áður óútgefin mix. Saga Depeclie Mode er samofin sögu reinixins. Hljómsveitin byrjaði mjög snemma að fá frumkvöðla i endur- vinnslubransanum til að vinna fyrir sig. Þ. á m. má nefna Franpois Kev- orkian, Adrian Sherwood, William Orbit, Portishead og Air. Á Remixes 81 - 04 er m.a. að finna remix eftir fyrrnefnda frumkvöðla, en líka Underworld, DJ Muggs, DJ Shadow, Kruder & Dorfmeister, Dave Clarke, Speedy J og Flood. Auk þess eru glæný mix eftir Aiison Goldfrapp, Ulrich Schnauss, LFO, Colder, Mike Shinoda og Timo Maas. f Ó k U S 5. nóvember 2004

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.