Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2004, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2004, Blaðsíða 13
r böndin Sinfó poppar sig upp Þaö er oröin vel þekkt formúla að þekktar Islenskar popphljómsveitir rugli saman reit- um með Sinfón- íuhljómsveitinni. Todmobile, Sál- in, Botnleðja og Quarashi gerðu Jþað og nú er komið að Ný danskri. Fengnir voru þeir Samúel Jón Samúelsson í Jagúar og Kjartan Valdimarsson píanóleikari til að útsetja helstu lög Ný danskrar fýrir hljómsveitina. Af- raksturinn hljómaði fyrst fýrir áhorfendum í gærkvöldi og gerir það aftur í kvöld og á morgun. Hér er þó ekki um heilt Sinfó- prógram með Ný danskri að ræða. Einnig spilar sveitin klassfk, Bolero eftir Ravel og tvö verk eftir Katsatúrjans. Eftir hlé stíga þeir Jón Ólafsson, Stefán Hjörleifsson, Björn Jör- undur Friðbjörnsson og Ólafur á sviðið og spila blöndu af smellunum sínum og nýrri lögum. Hljómsveitarstjóri er Bernharður Wilk- inson. Tónleikarnir hefjast klukkan 19.30 bæði kvöldin. meonmir Ny danskrar hafa nú aöeins full- orönast síöan þessi mynd var tekin. ■sslt ,Jah, sumir vilja meina að ég sé Maus-fan númer eitt. Ég verð i fremstu röð. Missi ekki af svona stórviðburði," segir tónlistarmaður- inn Trausti Laufdal Aðalsteinsson. Það er há- tíð hjá honum því í kvöld halda Mausararn- ir útgáfutónleika í Austurbæ. Þar verða án efa allir hörðustu aðdáendurnir, enda fagna þeir hinni glæsilegu útgáfu Maus á dögun- um, tónlyst 1994-2004 og lystaukar 1993-2004. „Maus er bara langbesta hljómsveit ís- landssögunnar. Eða ... allavega á topp tveir listanum með Trúbroti. En Maus er ekki hætt þannig að maður veit aldrei," segir Trausti. Hann hefur fylgt hljómsveitinni hvert fótmál í fjölda ára, heyrði fyrst i þeim þegar Ghostsongs kom út en varð forfallinn aðdáandi með Lof mér aðfalla ... „Ég hef far- ið á kannski fimmtíu, sextíu tónleika með Maus. Meira að segja þrjá á einum degi. Þá nennti ég að elta þá hvert fótspor. Fylgdist vel með og mætti alltaf á svæðið. Síðan kynntist ég Bigga söngvara og byrjaði að hjálpa þeim við að róta. Það var mjög kúl að róta með uppáhaldshljómsveitinni. Lærði ekkert smá af því.“ Trausti er söngvari hljðmsveitarinnar Lokbrár. Biggi hefur hjálpað henni við upp- tökur en auk þess neitar Trausti því ekki að Maus sé áhrifavaldur. „Næsta lag sem við sendum frá okkur er t.d. Mauslegt. Það heit- ir Stop the Music.“ í gegnum tíðina hefur Trausti sankað að sér alls kyns dóti tengdu Maus. í safni hans má fmna plaköt, boli og plötur. Hann er einnig með Maus-merkið tattúverað á úlnliðinn, fór með Bigga og Danna á tattústofu þegar merk- ið fæddist með Musick. Stoltastur er hann þó af demóteipunum sínum - af öllum plötunum. „Fullt sem þeir eiga ekki af því að ég er með það. Besta er þó af Musick, sungið á íslensku. Það er jafngóð, ef ekki stundum betri útgáfa.“ Trausti fagnar, eins og gefur að skiija, út- gáfu tvöföldu Maus-plötunnar á dögunum. Þar er bæði að finna 17 af bestu lögum sveit- arinnar, auk endurvinnsla, tónleika- og demóupptaka. „Þeir spurðu mig auðvitað hvaða lög ættu að vera á plötunni og ég ráð- lagði þeim eftir bestu getu. Er mjög sáttur með útkomuna. Þeir eiga efni í aðra slíka útgáfu að mínu mati.“ Þegar Trausti er inntur eftir eftir því besta á ferli Maus er hann ekki lengi að svara: „Musick er besta platan, Dramafíkill er besta lagið, Kerfisbundin þrá er besta myndbandið og bestu textana er að finna í Kerfisbundinni þrá, Manninum með járn- röddina og Djúpnœturgöngunni." Plötubúð Smekkleysu er staðsett á miðjum Lauga- veginum, nánar tiltekið í Kjörgarði lýrir neðan Bón- us. Þar er ekki bara hægt að kaupa sér plötur og geisladiska því iíka er hægt að virða fýrir sér sýninguna Lobster or Fame þar sem gefur að líta alls kyns hluti úr sögu Smekkleysuútgáf- unnar og hljómsveita tengdum henni. Seinnipartinn I dag verður svo lifandl tónlist í búðinni, Dj Galdur veröur á bak við plötuspilarana og þá ætlar hin sér- stæða hljómsveit Retron einnig að troða upp en hún spilar einhvers konar Súper-Maríó- rokk. Þetta mun allt hefjast kl. 17 en á morg- un munu hljómsveitirnar Ske og Jan Mayen troða upp í versluninni upp úr kl. 15. Sveitirn- ar voru báðar að senda frá sér plötur á vegum Smekkleysu og verða þær að sjálfsögðu seld- ar á staðnum á aðeins betra verði en vant er. Lifandi tónlist í Smekkleysu- búðinni r----- V Styttist í Þegar er farið að auglýsa næstu Hróarskeldu- hátíð sem mun fara fram um mánaðamótin júní/júlí næsta sumar. Miðasala fer af stað 1. desember og á saman tíma verða fyrstu hljómsveitirnar sem þar munu leika kynntar til sögunnar. Hér á landi er hægt aö nálgast miða í gegnum Stúdentaferðir og á vefnum exit.is en þeir kosta um 10 þúsund kall en það fer allt eftir því hversu lengi menn ætla að vera á hátíðinni. Hægt er að fylgiast nánar með framvindu mála á slóðinni roskilde-festi- val.is auk þess sem þar verða gefnar ferðir á hátíðina og fleira sniðugt. www.glaumbanis www.glaumbar.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.