Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2004, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2004, Side 16
lífiö eftir vinnu 5. nóvember 2004 UÁm6\ Þriggja rétta veislumáltíö Ostafyllt Ravioli með pesto og parmaskinku. Fyllt kjúklingabringa með sólþurkuðum tómötum og pekanhnetum. Siennakaka með rjóma og kaffibaunasósu Kaffi. Verð kr. 2.500,- ítölsk baunasúpa meö grœnmeti, bacon, og tómat. Vero kr 990,- Spaghetti “Carbonara" Verðkr 1.100,- Calamari salat, með smokkfisk, ólífum, ansjósudressingu og brauðmolum. Verðkr 1.250,- ítölsk léttvín á tilboðsverði www.solon.is Erna Ómars stjarnan „Á laugardaginn fðr ég upp í KllnK & BanK og sá þar Poni og Trabant koma fram. Poni er hálfgerö gjörningahljómsveit. Þau spiluðu og djöfiuöust út um allt. Þetta var algjör steypa en nokkuö skemmtileg. Góö tilbreyt- ing aö sjá hljómsveit án þess að allir standl kyrrir og spili. Hef ekki séö svona áður hér pá lille Island. Stjarna kvöldsins var Erna Ómarsdóttir dansari. . Hún var mögnuð, dansandi eins og brjálæöingur syngjandi rokk. Trabant spiluðu síöan á eftir og þá komu hinir líka inn meö þeirn." Valgerdur ROnarsdóttir, dansari hjá íslenska dansflokknum. ▼ opnanir Guöríöur B. Helgadóttir er áhugaverö kona sem opnar sýninguna Efnið og andann I Gerðubergi í dag. Guðríöur er áttræð og saum- ar í léreft meö fínum þræði af sundurröktu árórugarni og silki. Landslag og húsdýr eru músur hennar og lætur hún jafnvel dýrin sitja fyrir hjá sér. Hún segir myndirnar eiga rót sína í sterkum tengslum við móöur Jörð og gjöfult föðurland. „Sem veröur þá þeirra leiðarhnoða í dómhörðum heimi hagvaxtar og peningjahyggju. Og þannig hefur íslenska þjóöin ræktað með sér sköpunargleð- ina, menninguna og listaþrána, öld fram af öld, með handverki og hugsmíðum alþýöunn- ari dagsins önn.“ ▼ sýningar í Hafnarhúsinu er grafísk hönnunarsaga á Islandi rakin í gegnum hina ýmsu miðla og birtingarmyndir fram til dagsins í dag. Þetta er fýrsta yfirlitssýning Félags íslenskra teiknara, sem varð 50 ára á síðasta ári. Stebbi Steph sýnir Ijós- myndir sem voru notaðar við hönnun Attention, síð- ustu Gus Gus-plötu, og videoverkið Attention í sýningarsalnum Auga fyrir Auga, Hverfisgötu 35. Norður og niður, farandsýning ungra, nor- rænna listamanna, stendur yfir í Norræna húsinu. Þar er að finna skúlptúra, málverk, teikningar, vídeó, hljóðverk og innsetningar. íslensku llstamenn hópsins eru Sólveig Ein- arsdóttir, Ragnar Jónasson, Rakel Gunnars- dóttir, Guðný Rúnarsdóttir og Guðmundur Thoroddsen. Einnig var átta öðrum boðið að sýna með. Við Tryggvagötuna er sýningarsalurinn íslensk Grafík. Þar er sýning Ragnheiðar Ingunnar, Helgir staðir, og sýning Þórdísar Erlu, Mlnning- arbrot. ▼ síöustu forvöö Á sunnudaginn lýkur sýningu Guðbergs Bergs- sonar á spænskri nútímamyndlist á pappir í Geröarsafni, í blóma/En cierne. Þar er mynd- list á Spáni frá árinu 1948 til umfjöllunar. Á sýningunni eru hundrað og tuttugu verk úr söfnum og í einkaeign eftir þekktustu mynd- listarmenn landsins, málara og Ijósmyndir. Nú er aö Ijúka i Galleríi Fold viö Rauöarárstíg sýningu á verkum Jóhannesar Geirs, þar sem hestar koma við sögu. Síðasta sýningarhelgi í Hafnarborg hjá Valerie Boyce og Margréti Slgfúsdóttur. Óli in the hood „Grand Theft Auto: San Andreas er mjög góður, eins og við mátti búast. Mjög yfir- gripsmikill og nær alveg þessum „In the hood“ fílíng eins og maöur kannast við úr bíómyndum. Allir karakterar tala á þann hátt og öll stemningin er þannig. Ég er nýbyrjað- ur en samt búinn að brjótast Inn í dópgrenl og berja alla í spað með baseball-kylfu. Ég hélt að grafíkin yrði betri en á móti er hann flóknari en fyrri leikirnir. Meiri lífhermlr, maöur þarf aö athuga mataræöið til að halda sér í formi, getur breytt hárgreiðslu og dútlað við karakterinn. Söguþráðurinn er líka meiri og maður fær það á tilfinninguna að . maður sé hluti af því sem er að gerast. Ég held að þetta verði stærsti leikur ársins en varla sá besti að mínu mati. Ólafur Þór Jóelsson, um- sjónarmaöur Geim Tíví. Sara var góð við mig „Ég er meö flensu. Ligg heima veikur. Kærastan mín, Sara, var góð við mig í gær. Hún fór út á leigu og tók The Day After Tomorrow. Hún var alveg sæmileg. Allt í lagi vitleysa. Þessar stóru myndir falla venjulega ekki í kramið hjá mér en þessl var mjög flott. Jake Gyllenhall var í lagi. Ekki jafn rosalegur og í Donnie Darko. Von- brigði að hann skyldi velja svona stórar myndir eftir hana. En þær virka kannski fyrir hann, ekki fyrir mig. Það voru ekki leik- ararnir sem stóðu upp úr í þessarri mynd heldur útlitið og fínar tæknibrellur. Veðr- ið á eflaust eftir að breytast í þessa átt. Veit ekki hvort það verður svona dramat- ískt. Það er allt hægt í bió- myndum. En þetta var fínt. Þegar maöur er veikur er gott að hafa einhvern sem er góður við mann.“ Baddi, rappari í Forgotten Lores. er að úti Bland er bannað ^UiGLiST® 51/oy-ranoy ■nsia m dms im smsttK yyy ukglíst ís „Margir vilja fá léttvín og bjór í verslanir. Ég vil hins vegar banna allt léttvín. Þegar ég fer í pólitík verður slagorðið mitt: Ekkert undir 40 prósentum - bland er fyrir byrjend- ur. Ég er mikill gæðingur þegar kemur að gini, vodka og rommi en veit ekkert um léttvín eða svo- leiðis grín. Nýlega fékk ég staup af 15 ára gömlu Havana Club-rommi og er ekki samur síðan. Það var geymt í eikartunnum á Havana öll þessi ár og hefur alla eiginleika sem koníak hefur. Þegar staupið, sem kostaði þrjú þúsund kall, var meter frá andlitinu á mér var ég byrjaður að drekka. Seinna reyndi ég að hafa uppi á þessu 15 ára aftur en þá voru einhverjir Kanar búnir að klára flöskuna. Það komu ekki margar til landsins þannig að ég er ennþá að reyna að komast í þennan þroskaheft vel heppnaða drykk. Sjö ára gamalt Havana Club er líka ofsalega gott og dugar mér í millitíðinni. Eftir því sem maður eldist og verður þroskaðri fylgir vínsmekkurinn með.“ Erpur Eyvindarson, rappari i Hœstu hendinni. Vélsmlðjan á Akureyri er alltaf að » færa sig upp á skaftið og um helgina verður hljómsveitin Slxtles á svæðinu og leikur hún fýrir dansi bæði kvöldin. Húsið opnar kl. 22 og er frítt inn til miðnættis en að því loknu þarf fólk að reiða fram 1000 kall. Nýtt „stórstjörnuband" mun troða upp á Sjallanum á Akur- eyri í kvöld. Það kallar sig Eðl- an og er samansett af nokkrum hetjum úr sveitaballabransanum. Vignir úr írafári, Hanni (X-Birgittu kærasti), Siggi og Andri úr írafári og Guðmundur Júlíus skipa bandið og hefla þeir leik upp úr mið- nætti. Þeir eru gjafmildi ungir menn og ætia ;ss vegna bara að rukka 1500 kall inn. , ■iiiiinimiiiiiiiii*i.-iiiw«ninii ii Miif*T Það er hinn eini sanni Love Guru sem treður upp á Sjallanum I kvöld. Fyrstu hundrað fá Vodka Cruieser í boða Da Guru Man. Igore ætlar aö sjá um að hita upp og svo mæta Guru AIÞ stars á staðinn. Húsið opnar kl. 24 og kostar 1200 kall inn við hurðina. Hljómsveitin Spútnik ætlar að Igera heiðarlega tilraun til að skemmta Grindvíkingum á Cactus bar annaö kvöld. Hljómsveitin inniheldur Eurovlslonfara þannig að það ætti eitthvað að vera spunnið í þetta. Þaö er trúbadorinn Hörður Torfason sem verður í Akoges-salnum í Vest- mannaeyjum í kvöld með tónleika. Gamanið hefst kl. 21. heimavelli annað kvold þegar þeir troða upp í Hvíta húsinu á Selfossi. Þar- mun þeir m.a. leika lög af væntan- legri hljómplötu sinni, íslensk topp- . lög, sem kemur út í næstu viku. /Dai Danssveitin SIN verður fullskipuð 1 núna um helgina og ieikur fýrir dansi á Ránni í Kefiavík bæöi kvöldin. Danssveitina skipa þau Ester Ágústa, söngur og raddir, Guömund- ur Símonarson, söngur og hljómborð og Sigurður Hafstelnsson gítar. Er hægt að biðja um meira? ' Dyrnar á Egilsbúð í Neskaupstað eru aldrei lokaðar eins og fólk þekkir en I kvöld verður meira um að vera en hið venjulega. Idol verður á breiðtjaldinu og sérkjör á barnum. Annað kvöld verður svo dansleikur á staðnum en þá munu Draumadrengirnlr leika fyrir gesti stað- arins ásamt Outloud, Thorlákl og Sigur- jóni. 1500 kall. .................... ' ®o©@® w 0® <3>

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.