Barnadagurinn - 22.04.1937, Blaðsíða 5

Barnadagurinn - 22.04.1937, Blaðsíða 5
BARNADAGURINN 1937 5 þeim góðu áhrifum, sem dvölin þar hafði á þau. — Það væri æskilegt, að félagið gæti enn fært út kvíarnar, því að mikil og brýn er þörfin. Katrín Thoroddsen. Magnús Jónsson, prófessor: Starfsemi Sumargjafar miðar að því, að veita hóp þeirra barna, sem lakast eru sett, bestu gjafir lífsins, sólskin og útiloft á grænu grasi og kjarngóða undirstöðufæðu. — „Sumargjöf“ bætir úr tvímælalausri þörf og gerir það á tví- mælalausan hátt. Eftir langan og vitamínsnauðan vetur gef- ur hún fjölda barna hina bestu „sumargjöf“. Magnús Jónsson. / Pálmi Hannesson, rektor: Eg tel hiklaust, að Barnavinafélagið ,,Sumargjöf“ hafi unnið merkilegt uppeldisstarf hér í Reykjavík, þó að hins sé ekki að dyljast, að það hafi skort fjárhagslega getu til að vinna að áhugamálum sínum, svo sem vilji þess stendur til og þörf barnanna krefst. Pálmi Hannesson. SigurSur Thorlacius, skólastjóri: — Eg lít svo á, að Sumargjöfin hafi fyrst um sinn að- allega tvennskonar hlutverk að vinna fyrir börn þessa bæj- ar, og eru bæði einkar mikils verð. Annarsvegar er verkefni það, sem félagið hefir undanfarin ár einkum helgað krafta sína og lagt í fjármuni sína, það er stofnun og starfræksla dagheimila fyrir börn. Það hefir svo oft verið um það rætt og ritað hér í bænum, hve þýðingarmikil þessi starfsemi er fyrir börnin og heimilin, að eg sé ekki ástæðu til að hafa um það málalengingar, en hitt er augljóst, að enn sem komið er, hefir „Sumargjöfin" ekki haft fjárráð til að rækja nema lítið af þessu umfangsmikla hlutverki. Aðeins lítill hluti þeirra barna, sem hefir brýna þörf fyrir að komast á slík heimili, á þess kost, eins og nú standa sakir. Þó væri þörfin að mínu áliti einna mest og brýnust fyrir dagheimili, er starfaði allt árið, jafnt vetur sem sumar. — Hitt hlutverkið er fólgið í því, að vekja athygli fólksins á börnunum, og þörfum þeirra. „Sumargjöfin“ hefir þegar hafið gott starf í þessa átt, en þó er meira eftir óunnið. Allir, sem alvarlega hugsa um málefni barnanna hér í bænum, sjá það og skilja, að utan heimila og skóla skortir þau mörg heil- brigðis- og menningarskilyrði, sem í hverri annari höfuðborg myndu talin sjálfsögð. Þetta þarf allur almenningur að skilja. „Sumargjöfin“ hefir flestum öðrum betri skilyrði til að efla þann skilning. Óska eg félaginu allra heilla með starf sitt nú og í fram- tíðinni. Sigurður Thorlacius. Ummælí mæðranna: Ritstjóri „Barnadagsins“ hefir haft viðtal við nokkrar mæður, sem átt hafa böm á dagheimilum „Sumargjafar" undanfarin sumur og lagði fyrir þær eftirfarandi spurningar: 1. Hve mörg sumur hafið þér haft börn á dagheimilum Barnavina- félagsins „Sumargjöf“? 2. Hvaða styrk teljið þér í því fyrir mæður, aS geta komiS börnum sínum á dagheimili? 3. Voru'S þér ánægðar meS framfarir barnanna og alla aðbúS á dag- heimilinu? 4. Hvaða áhrif fannst yður dvölin á dagheimilinu hafa á háttu barn- anna? 5. Finnst yður þörf á starfsemi þeirri, er „Sumargjöf" rekur? Ummæli mæðranna fara hér á eftir: Happdrætti Háskóla r íslands Endurnýiun fil 3. fl. hefst 24. april. Endurnýjunarverð: 1.50 XU miði. Söluverð nýrra miða: 4.50 lU miði. Dregið verður i 3. fl. 10. mai. 250 vinningar — 48.800 krónur. „SUNNA“ er mest notuð á lampa og eldavélar, hún er hrein og tær, veitir beztu birtu og mestan hita. Olíuverzlun íslands h.f. Símar 1690 og 2690.

x

Barnadagurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Barnadagurinn
https://timarit.is/publication/869

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.