Barnadagurinn - 22.04.1937, Blaðsíða 7

Barnadagurinn - 22.04.1937, Blaðsíða 7
BARNADAGURINN 1987 . 7 Harpa. Þótt nafn þitt hljómi af hörku, þú heillað börnin getur, þrá og vonir þeirra, sem þekkja kaldan vetur. Þlí ert hinn góði gestur með gullin blóm i spori, sem ber i litla bœinn bjarma af nýju uori. Þú ert hinn góði gestur, sem gyðjur vorsins leiða og vonum vorsins barna veg til sumars greiða. Þótt vetur vilji ríkja, er vor í allra sálum. Þú kveður burtu kuldann á hverjuin sumarmálum. Þú kveður burtu kuldann og klakans mœtti eyðir, mót œsku og blóma-angan þú alltaf faðminn breiðir. Þú blessar litlu börnin, sem bezt þér fagna kunna, og gefur öllum gjafir, sem geislum þínum unna. Þú blessar litlu börnin og brosin þeirra vekur, þeim berðu beztar gjafir og blítt í faðm þau tekur. Þau hylla sina Hörpu og hana leiða i bœinn. Með vorsins töfravaldi þú vermir barnadaginn. Hjörtur frá Rauðamýrí. Hvers vegna biðja börnin um ? Vegna þess að hann er svo ljúffengur. Foreldrar! Blái borðinn hefir A og D vitamin eins og sumarsmjör. Allt mælir því með því, að þér kaupið allt af r *. : > o r 5 . ' ^ 1 : 'S 'r t~ i

x

Barnadagurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Barnadagurinn
https://timarit.is/publication/869

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.